Fréttablaðið - 13.09.2013, Page 32
10 FÖSTUDAGUR 13. september 2013
Siggi Hlö stjórnar einum vinsælasta útvarpsþætti landsins á Bylgjunni á laugar-
dögum og ekki hafa vinsældirnar minnkað eftir að kappinn tók sér stöðu á sjón-
varpsskjáum landsmanna á laugardagskvöldum í þættinum Veistu hver ég var?
þar sem andi níunda áratugarins svífur yfir vötnum.
Hvernig hafa viðbrögðin verið við Veistu hver ég var? á Stöð 2? „Ótrúlega góð við-
brögð og öll eins og ég helst óskaði mér. Fólk hefur gaman af að sjá þessi gömlu
myndbönd og finnst gaman að geta setið heima í stofu og svarað sjálft fullt af
spurningum þótt það séu liðin ansi mörg ár.“
Hvaða lag myndirðu aldrei spila í þættinum? „Það er erfitt að segja því á
þessum tíma voru margar stefnur í gangi, diskó, fönk, pönk, popp og rokk. Það
er kannski NunSexMonkRock með Ninu Hagen sem ég myndi sleppa, því mynd-
bandið var svolítið brútal.“
Hvaða keppendur hafa komið þér skemmtilega á óvart? „Nokkrir sem ég hélt
að vissu allt vissu lítið og öfugt. Doddi litli á Rás 2 er rosalega góður í þessu, Guffi
á Gauknum á góða innkomu og Kjartan Guðjónsson sýnir ótrúleg tilþrif í vælu-
símanum í þætti sem verður sýndur fljótlega.“
Hvernig kemurðu þér í gírinn fyrir þáttinn? „Ég er með besta aðstoðarmann í
heimi, Dj Fox. Saman peppum við okkur upp með því að hlusta á geggjuð lög frá
þessum tíma.
Við erum flottasta
fólkið í landinu
Veistu hver ég var?
Stöð 2 á laugardagskvöldum.
„ Þegar ég las hand-
ritið fannst mér
sérstaklega spennandi
að ég vissi aldrei hvað
myndi gerast næst. Ég
varð mjög forvitinn og
rétt eins og áhorfendur
vil ég láta koma mér á
óvart.“
James Spader
Spennuþáttaröðin The Blacklist hefur
göngu sína á Stöð 2 fimmtudaginn 26.
september, strax í kjölfar frumsýning-
ar þáttanna á NBC-sjónvarpsstöðinni í
Bandaríkjunum. James Spader leikur
aðalhlutverkið í þessum mögnuðu þáttum
sem margir telja besta nýja sjónvarps-
þáttinn í vetur.
The Blacklist hefur verið beðið með
mikilli eftirvæntingu eftir að fyrsti þátt-
urinn var forsýndur á árlegri kaupstefnu
fyrir sjónvarpsstöðvar í Los Angeles sl.
vor. Enginn nýr þáttur hefur vakið jafn-
mikla athygli og sjónvarpsstöðvar um víða
veröld hafa keppst um sýningaréttinn á
þáttunum.
James Spader snýr aftur á sjónvarps-
skjáinn og leikur Raymond „Red“ Redd-
ington sem er á lista bandarísku alríkis-
lögreglunnar, FBI, yfir hættulegustu
glæpamenn heims. Í fyrsta þættinum
gengur hann inn í höfuðstöðvar FBI og
gefur sig fram. Hann býður fram aðstoð
sína við að handsama aðra eftirlýsta
glæpamenn og hryðjuverkamenn gegn
því skilyrði að hann fái að vinna eingöngu
með ungum nýliða innan FBI, Elizabeth
Keen. Við tekur spennandi atburðarás sem
heldur áhorfandanum spenntum frá upp-
hafi til enda.
„Þessi þáttur býr yfir gífurlega miklum
möguleikum og getur þróast í ýmsar
áttir,“ segir Spader, sem er mjög vand-
látur á hlutverk. „Þegar ég las handritið
fannst mér sérstaklega spennandi að ég
vissi aldrei hvað myndi gerast næst. Ég
varð mjög forvitinn og rétt eins og áhorf-
endur vil ég láta koma mér á óvart.“
Raymond Reddington er mikill klækja-
refur og býr yfir mörgum leyndarmálum.
„Ég hef alltaf haft gaman að því að leika
náunga sem eru til vandræða og Raymond
Reddington hefur einstaklega gaman
af því að skapa vandræði. Þess vegna
finnst mér þetta hlutverk svo spennandi.
Stundum gerir gott fólk slæma hluti og
stundum gerir vont fólk góðverk. Raymond
Reddington er bæði góður og slæmur.“
Besti nýi spennuþátturinn
The Blacklist Hefst 26. september á Stöð 2.
Sjónvarpsþátturinn Um land allt í umsjón fréttamannsins Kristjáns Más Unnars-
sonar sló í gegn síðasta vetur. Þar heimsótti hann áhugavert fólk og byggðir á
landsbyggðinni og kynnti fyrir landsmönnum. Kristján segir viðtökurnar ekki
hafa komið á óvart. „Þátturinn fékk mikið áhorf og var einn vinsælasti þáttur
stöðvarinnar og mældist stundum með meira áhorf en fréttir. Ég hef lengi fundið
í starfi mínu að áhorfendur hafa mikinn áhuga á sjónvarpsefni af þessu tagi.“
Þótt þátturinn sé nýr hafa málefni landsbyggðarinnar lengi verið Kristjáni
hugleikin. „Allt frá því ég hóf feril minn á Dagblaðinu fyrir 33 árum hefur það
verið snar þáttur í starfinu að fara um landið og afla fanga sem víðast í fréttir
af fólki, samfélögum og fyrirtækjum. Þegar ég svo fór yfir á Stöð 2 fyrir rúmum
aldarfjórðungi hélt ég þessu áfram, að miðla frásögnum af mönnum og mál-
efnum utan Reykjavíkur inn í fréttir og fréttainnslög. Í þessum þáttum núna
gefst okkur færi á mun dýpri umfjöllun en stutt fréttainnskot bjóða upp á.“
Hefur komið
í allar sveitir
Um land allt Kristján Már verður
á Stöð 2 á mánudagskvöldum í vetur.