Fréttablaðið - 13.09.2013, Blaðsíða 34
12 FÖSTUDAGUR 13. september 2013
„Heimili fólks segir manni töluvert
um það og ég er spenntur í hvert
skipti sem ég fer í Heimsókn,“ segir
Sindri Sindrason, sem stýrir sam-
nefndum þætti á Stöð 2 í vetur. Heim-
sókn hóf göngu sína þann 4. septem-
ber síðastliðinn, en um að ræða aðra
þáttaröðina af þessum vinsæla þætti
sem vakti mikla athygli í fyrra.
„Mér finnst alltaf best að taka við-
tal, hvort sem er fyrir Ísland í dag
eða Heimsókn, á heimili viðmæland-
ans því þar er hann á heimavelli og
samtölin verða afslappaðri og eðli-
legri en í stúdíói. Ég geri mér grein
fyrir að það er ekki sjálfsagt að fólk
hleypi allri þjóðinni inn á sitt heilag-
asta svæði og ég er afar þakklátur
fyrir hvað mér hefur verið tekið vel.“
Sindri segist ekki hafa neitt sérstakt
heimili efst á óskalistanum fyrir
Heimsókn.
„Markmið mitt er ekki að heim-
sækja heimili eftir mínum smekk
heldur að hafa þau sem ólíkust og
viðmælendurna líka. Ég hef oft sagt
þáttinn vera blöndu af Innliti/útliti og
Sjálfstæðu fólki og ætla að halda því
áfram. Þættirnir verða sextán talsins
og verða alla vega til jóla. Við munum
heimsækja stór hús, lítil, nýtískuleg
og gamaldags, t.d. flotta piparsveina-
íbúð, glæsilegt sveitasetur, við sýnum
fyrir/eftir breytingar, biskups setrið,
heimili Íslendinga í útlöndum og
hvernig breyta megi á ódýran hátt.“
Spenntur í hvert skipti
sem ég fer í heimsókn
Heimsókn Á Stöð 2 á miðvikudögum. „Ég geri mér
grein fyrir að
það er ekki sjálfsagt
að fólk hleypi allri
þjóðinni inn á sitt
heilagasta svæði og
ég er afar þakklátur
fyrir hvað mér hefur
verið tekið vel.
Sindri Sindrason
„Ég er algjör x-factor-,
idol- og talent-lúði og
hef horft á þetta allt. Ég
varð því mjög spenntur
þegar ég var beðinn um
að taka að mér að vera
kynnir í Ísland got talent.
Auddi
Ef þú, eða einhver sem þú þekkir, lumar á
hæfileikum og munar um tíu milljónir króna
ættir þú að halda áfram að lesa. Stöð 2 ætlar
nefnilega að bjóða stærstu hæfileikakeppni
heims velkomna hingað til lands þegar
Ísland got talent verður hleypt af stokkunum.
Fólki á öllum aldri er velkomið að taka þátt
og skiptir þá engu hvort hæfileikarnir eru á
sviði tónlistar, leiklistar, galdra, uppistands,
íþrótta, dans, áhættuatriða eða einhvers ann-
ars. Eins mega hópar skrá sig til leiks og ekk-
ert aldurstakmark er í keppnina. Þó ber að
taka fram að þátttakendur undir 18 ára aldri
þurfa undirskrift forráðamanns.
Það er sjónvarpsmaðurinn góðkunni Auð-
unn Blöndal sem verður í hinu vandasama
hlutverki kynnisins. Auddi hefur stjórnað
einum vinsælasta útvarpsþætti landsins,
FM 95BLÖ, undanfarið en hefur einnig verið
einn af vinsælustu sjónvarpsmönnum lands-
ins undanfarin ár.
Dómararnir í keppninni eru ekki af verri
endanum en í dómnefndinni eru fjórir hæfi-
leikaríkir einstaklingar. Einn ástsælasti tón-
listarmaður þjóðarinnar, Bubbi Morthens,
hefur munninn fyrir neðan nefið auk ára-
tuga reynslu í tónlistarheiminum, sem og í
dómarastörfum af þessu tagi. Þórunn Ant-
onía Magnúsdóttir hefur þrátt fyrir ungan
aldur gefið út plötur og stjórnað sjónvarps-
þáttum. Auk þess hafa tónlistarmyndbönd
hennar vakið athygli. Þúsundþjalasmiðurinn
Jón Jónsson er ekki bara vinsæll tónlistar-
maður, blaðamaður og knattspyrnumaður,
hann er einnig afar viðkunnanlegur. Og þá
er ótalinn fyrrverandi menntamálaráðherra,
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sem kemur
ekki til með að liggja á skoðunum sínum.
Stærsti sjónvarpsviðburður vetrarins er
því væntanlegur á Stöð 2.
Auddi
Hvernig leggst þátturinn í þig? Bara hrika-
lega vel. Ég er algjör x-factor-, idol- og tal-
ent-lúði og hef horft á þetta allt. Ég varð því
mjög spenntur þegar ég var beðinn um að
taka að mér að vera kynnir í Ísland got tal-
ent.
Hvers hlakkar þú mest til? Að sjá hversu
hæfileikaríkir Íslendingar eru. Ég held að
verðlaunin, 10 milljónir, eigi eftir að draga
nokkra fram sem ekki hafa mætt hingað til.
Býstu við einhverjum kjánahrolli? Hann
fylgir alltaf. Það verða örugglega einhverjir
athyglissjúkir Auddar eða Sveppar sem láta
sjá sig.
Hefðir þú tekið þátt? Ég hefði örugglega
tekið þátt ef þátturinn hefði verið sýndur
fyrir nokkrum árum, bara til að sjá mig í
sjónvarpi.
Hvað hæfileika hefðir þú sýnt? Ætli ég
hefði ekki dansað, tekið Jackson á þetta.
Þorgerður Katrín
Hvernig leggst verkefnið í þig? „Verkefnið
leggst afar vel í mig. Ég held að þetta verði
gríðarlega skemmtilegt, enda frábær hópur
sem kemur að þættinum. Það er mikill
heiður fyrir mig að fá að vinna með þessu
ólíka en hressa fólki. Um leið gefur það mér
tækifæri til að upplifa aðrar og fleiri hliðar
á Íslendingum og vonandi uppgötva ein-
hverja leynda hæfileika,“ segir Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir, fyrrverandi mennta-
málaráðherra, sem verður einn af dómurum
þáttarins.
Að hverju ertu að leita? „Ég mun leita
eftir framkomu, einlægni, heiðarleika og
frumleika. Þetta verður stórt skref fyrir
hvern og einn keppanda og maður þarf að
passa upp á að fólki líði vel á sviðinu,“ segir
hún enn fremur. „Þetta er vissulega ólíkt því
sem ég hef áður gert en á endanum snýst allt
um að vera maður sjálfur. Mér getur fylgt
einlægni en líka gassagangur. Ég hlakka
mikið til, það verður gaman að fara út á land
og hitta fólk. Vissulega er þetta svolítið nýtt
verkefni sem ég er að takast á við, þetta er
önnur tegund af fjölmiðlun en sú sem ég hef
verið í samskiptum við lengi. Það verður
skemmtilegt að kynnast þessu nýja starfi.“
Bubbi
Hvernig leggst verkefnið í þig? „Þessi þáttur
leggst mjög vel í mig. Hann er búinn að vera
í undirbúningi í langan tíma. Svona hug-
mynd þarf að malla í potti í smá stund. Svo
þarf að bragða á og setja krydd út í, þetta
krydd og hitt kryddið, svo á endanum verður
hugmyndin og þátturinn fullsköpuð.“
Að hverju ert þú að leita í Ísland got tal-
ent? „Ég er fyrst og fremst að leita að ein-
hverjum sem fær mig til að standa á öndinni
og segja vá! Við leitum öll að því í fari þátt-
takenda, þessum stóra 40 pundara.“
„Hvernig leggst keppnin í þig? Þetta
leggst rosalega vel í mig og ég hlakka til.
Þetta er krefjandi og spennandi verkefni.“
Þórunn Antonía
Að hverju ertu að leita? „Ég leita að ein-
lægum náttúrutalentum. Ég veit að það er
mikið af hæfileikaríkum Íslendingum þarna
úti og ég hvet þá alla til að taka þátt. Um leið
tek ég ofan fyrir fólki sem leggur þetta á sig
– að standa svona fyrir framan dómnefnd er
auðvitað erfitt og ótrúlega krefjandi.“
Myndirðu taka þátt í svona keppni sjálf?
„Ég var reyndar tólf ára þegar ég stökk
upp á svið í hæfileikakeppni Tónabæjar.
Ég var ekki einu sinni skráð í keppnina og
kunni ekkert á karókí, en söng Frank Mills
úr Hárinu án undirspils og vann. Í úrslitun-
um keppti ég svo meðal annars við Þorvald
Davíð Kristjánsson, og vann þar líka.“
Jón Jónsson
Hvernig leggst verkefnið í þig? Það leggst
mjög vel í mig því ég á ekki von á öðru en
flottum atriðum í keppnina enda til mikils
að vinna. Ég er líka mjög spenntur að sitja
í dómarasæti við hliðina á þessu frábæra
fólki. Með þættinum rætist hjá mér draumur
því ég er mjög veikur fyrir hæfileika- og
raunveruleikaþáttum og sit jafnan límdur
við skjáinn að horfa á sams konar þætti.
Maður á því eftir að komast í góðan gír; ekki
spurning.
Að hverju ert þú að leita í Ísland got tal-
ent? Ég leita fyrst og fremst að einlægum
hæfileikum og tilgerðarlausum atriðum. Að
þeim sem fylgja hjartanu og eru virkilega
góðir í því sem þeir gera af sannfæringu og
góðri tilfinningu.
Stærsta hæfileikakeppni í heimi
Ísland got talent Hefst á Stöð 2 í vetur.
Þetta er vissulega ólíkt því
sem ég hef áður gert en á
endanum snýst allt um að
vera maður sjálfur.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Við leitum öll að því í fari
þátttakenda, þess um stóra
40 pundara.
Bubbi
Ég leita að einlægum
náttúrutalentum. Ég veit
að það er mikið af hæfi -
leika ríkum Íslending um
þarna úti og ég hvet þá
alla til að taka þátt.
Þórunn Antonía
Ég er líka mjög spennt ur
að sitja í dómarasæti
við hliðina á þessu
frábæra fólki.
Jón Jónsson