Fréttablaðið - 13.09.2013, Page 36
Ráðist var í sameiningu fréttastofanna með það
að markmiði að draga úr tvíverknaði og nýta
betur krafta þeirra rúmlega hundrað starfs-
manna sem koma að fréttum miðlanna.
„Þetta hefur tekið tvo til þrjá mánuði, nú er
rykið að setjast og fólk að finna sína fjöl. Á
þessum skamma tíma hefur okkur tekist að
búa til stærstu fréttastofu landsins. Þetta hefur
gengið ótrúlega vel. Vonum framar. Frétta-
menn eru reyndar þeirra gerðar að þeir kunna
að koma að auðu blaði. Hver dagur er öðrum
frábrugðinn og það er meðal annars það sem
gerir starf fréttamanns að skemmtilegasta
starfi sem fyrir finnst,“ segir Mikael.
Hann segir magnað að fylgjast með fólk-
inu sem starfar á fréttastofu Stöðvar tvö. „Þú
finnur varla vinnustað þar sem
hraða. Fréttamenn mæta á mo
undir og hlutirnir eru fljótir að
fréttastofu Stöðvar 2 vinnur sa
sem er vanur að vinna undir g
og standa skil á sínu að kvöldi.
Fréttastofa Stöðvar 2 býr að
fólks og þar hefur verið lagt up
blanda saman fólki með reynsl
leikafólki. „Fjölmiðlar hafa lað
það besta og kraftmesta fólk s
lifandi og brennandi af áhuga
Sameinuð fréttastofa hefur þ
að margir fréttamenn vinna jö
fréttir fyrir ólíka miðla. „Á fré
litið svo á að það séu vinnubrög
„Nærmyndir af fólki hafa alltaf verið vinsæl-
astar í Íslandi í dag; sögur af fólki í óvenjulegum
aðstæðum, ásamt baráttu- og sigursögum. Einnig
innslög þar sem mikill hraði og spenna koma við
sögu, helst þar sem við höfum verið í „lífshættu“
eins og fallhlífarstökki, með Landhelgisgæslunni,
löggunni, sjúkraflutningamönnum eða einhvers
staðar úti á ballarhafi eða uppi í háloftum,“ segir
Sindri Sindrason, ritstjóri og einn þáttagerðar-
manna Íslands í dag.
Sindri segir veturinn fram undan vera spenn-
andi. „Við ætlum að henda okkur í hvert snilldar-
efnið á fætur öðru en helsta breytingin verður
eflaust sú að mánudagar verða fréttatengdari en
hingað til.“
Auk Sindra starfa við þáttinn þau Ásgeir
Erlendsson og Hugrún Halldórsdóttir en nýliðinn
í hópnum er Birta Björnsdóttir.
„Hópurinn samanstendur af ólíkum einstak-
lingum sem hafa menntað sig á ólíkum sviðum í
háskóla og við bjóðum Birtu hjartanlega vel-
komna í þáttinn.“
Sindri kveðst ekki geta gert upp á milli viðmæl-
enda sinna.
„Flestir viðmælenda minna eru eftirminni legir
á einhvern hátt. Mörg af þeim málefnum sem við
tökum fyrir eru viðkvæm og erfið fyrir fólk að
tala um. Við gerum okkur fyllilega grein fyrir
þessu og að flestir viðmælenda okkar eru óvanir
sjónvarpi. Ég hef nú verið í Íslandi í dag í yfir
fimm ár og á Stöð 2 hátt í tíu ár og held að fólk sé
farið að þekkja hvernig maður gerir hlutina. Það
vinnur með okkur.“
En hvernig kemur lýðveldið Ísland Sindra fyrir
sjónir í dag? „Vonandi erum við á réttri leið eftir
hrunið en ég held að við þurfum að passa okkur á
að vera ekki of rétthugsandi og muna að það þarf
að vera pláss fyrir fleiri skoðanir en eina. Þó svo
að allir séu ekki sammála manni þýðir það ekki að
viðkomandi viti ekki betur eða skilji ekki hlutina.“
Lífshættan
er vinsælust
Ísland í dag Fólkið á bak við Ísland í dag hefur
puttana á þjóðarpúlsinum hvort sem viðfangs efnið er
á alvarlegum nótum eða í léttari kantinum. Fram undan
er hörkuspennandi vetur.
Stærsta frétt
Fréttastofur 365 miðla; ritstjórn Frétta
voru sameinaðar í eina um miðjan maí. M
ásamt Ólafi Þ. Stephensen ritstjóra og úr