Fréttablaðið - 13.09.2013, Blaðsíða 40
FRÉTTABLAÐIÐ Fólk, tíska og skart. Heilsa og list. Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir. Fröken Fix. Fataskápurinn og Innblástur. Helgarmaturinn og Spjörunum úr.
2 • LÍFIÐ 13. SEPTEMBER 2013
HVERJIR
HVAR?
Umsjón blaðsins
Marín Manda Magnúsdóttir
marinmanda@frettabladid.is
Umsjón Lífsins á Vísir.is
Ellý Ármanns
elly@365.is
Útgáfufélag
365 miðlar ehf.
Forsíðumynd
Valgarður Gíslason
Auglýsingar
Atli Bergmann
atlib@365.is
Hönnun
Silja Ástþórsdóttir
siljaa@frettabladid.is
Lífið
Skaftahlíð 24,
105 Reykjavík,
sími 512 5000
www.visir.is/lifid
Hár og makeup Tara Pétursdóttir
Stílisti Marín Manda
Lífi ð
Hamingja, fólk og
annað frábært
Á landsleik Íslands og Albaníu á
þriðjudaginn var margt um mann-
inn. Þar voru meðal annars
Rakel Garðarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Vesturports, og
eiginmaður hennar, Björn Hlynur
Haraldsson leikari. Þá voru einnig
í áhorfendastúkunni Vignir Rafn
Valþórsson leikari og Björn
Bragi Arnarson sjónvarps-
maður. Þá var Sigurður Pálmi
Sigurbjörnsson, forstjóri Sports
Direct á Íslandi, á staðnum
og fagnaði ákaft þegar ljóst
var að Ísland hefði unnið
sigur á liði Albana. Hall-
grímur Helgason rithöf-
undur lagði leið sína á leikinn.
haustvörurnar
komnar í
Gyllta köttinn!
AUSTURSTRÆTI 8 - 10 • SÍMI 534 0005
OPIÐ ALLA DAGA
Helga Ólafsdóttir, eigandi Lastashop.com, kynnir íslenska hönnuði í Los Angeles og segir viðbrögðin hafa verið frábær.
„Þetta var hugmynd sem ég var búin að ganga
með lengi. Ég á svo mikið af vinum sem búa í út-
löndum en fara mikið til Íslands og flestir hafa
verið að kaupa sér skó og fatnað sem er íslensk
hönnun og fæst bara á Íslandi. Við erum með
svo frábæra hönnuði og því fannst mér tilvalið
að koma þessu á framfæri hér úti. Ég hef búið í
LA í þrjú ár en áður bjó ég í London í þrettán ár.
Það var ekkert meira sem beið mín í London svo
ég ákvað að færa mig um set. Svo er bara yndis-
legt að vakna hér upp með sólina skínandi inn
um gluggann,“ segir Helga Ólafsdóttir, eigandi
netverslunarinnar Lastashop, sem var opnuð í
sumar.
Helga starfaði áður nánast eingöngu við fjár-
festingar svo hún segir fatabransann vera
skemmtilega tilbreytingu. „Sjálf er ég að fram-
leiða þrjár línur; Kali fyrir Svölu Björgvins,
Zisku eftir Hörpu Einarsdóttur og okkar eigin
línu sem heitir By-Lasta eins og búðin. Sú lína er
meira hversdagsfatnaður. Harpa var efst á blaði
þegar ég fór að skoða íslensku hönnuðina og ég
er mjög stolt yfir að hafa hana með okkur. Við
stefnum á rauða dregilinn með Zisku-línuna.“
Helga segir markmiðið að öll hönnun í versl-
uninni sé íslensk og hún er í engum vafa um að
vefverslanir séu framtíðin. Fljótlega verði jafn-
vel hægt að prófa fatnaðinn „online“. Merkin
sem fást í Lastashop.com verða einnig fáanleg í
E-label á Íslandi frá og með miðjum september.
TÍSKA STEFNIR Á RAUÐA
DREGILINN MEÐ ZISKA-LÍNUNA
Helga Ólafsdóttir hefur opnað íslensku netverslunina Lastashop.com
í LA og selur eingöngu föt eftir íslenska hönnuði.
„Ég hef alltaf verið að gera eitthvað í höndunum en
ákvað síðan að útbúa armband með blóðsteini fyrir vin-
konu mína, sem var að byrja í skóla á ný, því steinninn
er svo góður fyrir hugann. Fleiri vinkonur fóru síðan að
óska eftir armböndum svo þetta vatt bara upp á sig,“
segir Guðrún Edda Haraldsdóttir, sem nú getur vart
annað eftirspurninni eftir ástarböndunum. Armböndin eru
unnin úr orkusteinum og kristöllum og segist hún jafn-
an reyna að hafa jákvæða merkingu með armböndunum
en litlu búddarnir tengjast meðal annars góðu andlegu
jafnvægi. Nafnið segir hún tilkomið vegna þess að arm-
böndin vinni hún með heilmiklum kærleik og ást. Ástar-
armböndin og -hálsmenin er hægt að nálgast í gegnum
Facebook-síðuna Guðrún Edda-Ástarbönd.
SKART ÁSTARBÖND
Guðrún Edda Haraldsdóttir hannar armbönd og háls-
men sem unnin eru með heilmiklum kærleik og ást.
Ástarböndin eru búin til úr orkusteinum og kristöllum og fást í ýmsum litum og gerðum. Búddarnir eru meðal annars vinsælir.