Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.09.2013, Qupperneq 45

Fréttablaðið - 13.09.2013, Qupperneq 45
FRÉTTABLAÐIÐ LÍFIÐ 13. SEPTEMBER 2013 • 7 sannar lega til staðar í fjölskyld- unni. Ætli ég hafi ekki smitast af þessu hjá þeim en þau hvöttu mig áfram. Ég var svo heppin að geta leitað til þeirra og fengið ráð. Ég er stressuð og spennt í senn en fyrst og fremst ætla ég njóta þess á meðan á því stendur og hafa gaman af þessu.“ Rík að eiga tvo pabba Það var mikil sorg þegar faðir þinn, Hermann Gunnarsson, lést fyrir skömmu því hann var elsk- aður af þjóðinni. Hefur þetta ekki verið erfiður tími? „Þetta hefur verið mjög erfið- ur tími. Ég held að enginn sé sér- staklega búinn undir svona áföll og maður er svo blindur á lífið og tekur því sem sjálfsögðum hlut. Ég er svo ung enn og maður held- ur að svona gerist ekki strax held- ur í ákveðinni tímaröð. Það var svo mikið eftir hjá okkur og fjörið í raun rétt að byrja. Ég hef verið rík að eiga tvo pabba í mínu lífi en Steindór ól mig upp frá því ég var eins árs gömul. Hermann var ekki á góðum stað þegar ég var yngri þannig að það var ekki venju- legt samband okkar á milli. Eftir því sem ég varð eldri fór ég sjálf að hafa samband og hann fór að sinna okkur systkinunum betur. Loksins var sambandið orðið gott og við gátum átt eðlileg samskipti. Ég kallaði hann aldrei pabba en hann var stór hluti af mínu lífi og ég vildi hafa hann í mínu lífi. Mig vantar hann voðalega mikið nú þegar ég er að gefa út bókina og taka mín fyrstu skref í sjón- varpi. Hann var svo spenntur fyrir þessu hjá mér og hvatti mig til dáða og að kýla á tækifærin og trúa á sjálfa mig. Í síðasta sinn sem við töluðum saman töl- uðum við um þáttinn. Við ætluð- um að skoða þetta saman um leið og hann kæmi heim. Hann vildi vera með í öllu og fannst agalegt að hann gat ekki verið við staddur upptöku á prufuþættinum í vor. Hann vildi svo ólmur hjálpa til og leiðbeina mér. Ég efast ekki um að hann sé að hjálpa mér í dag, eða það ætla ég rétt að vona. Lífið er svo skrítið því þetta ár hefur verið ótrúlega gott en á sama tíma ótrúlega erfitt. Ég hef fengið þau tækifæri sem mig hefur dreymt um og reyni að njóta þess í botn, en sakna þess að hafa hann ekki hér hjá okkur. Ég hef tileinkað mér að lifa í deginum í dag, lífið er alltof stutt fyrir leiðindi og ég reyni að einbeita mér að því góða Þetta var svo- lítið erfitt því þegar hann lést var hringt í mig tveimur tímum seinna frá fjöl- miðli og ég var náttúrulega ekki viðræðuhæf. Ég var ekki tilbúin að segja neitt og ég vissi ekkert hvað var að gerast. s k ó l a v ö r › u s t í g 1 2 • s í m i 5 7 8 6 0 9 0 • w w w . m i n j a . i s • f a c e b o o k : m i n j a Heico Ugla Kr. 7.400 Heico Dád‡r Kr. 13.300 Heico Páfa- gaukur Kr. 10.900 Eilíf›ardagatal MoMA Skafkort Þú skefur gylltu himnuna af þeim löndum sem þú hfur heimsótt og útbýrð þannig persónulegt heimskort. (Stærð: 82 X 58 cm) Kr. 2.990 Distortion Hefðbundið form kertastjaka bjagað og útkoman er óvenjuleg. Margir litir. Kr. 4.690 Einstök hönnun frá nútímalistasafni New York borgar. Aðeins kr. 8.900 Cubebot róbótar Cubebot er róbót úr tré, vélarlaust vélmenni, hannað undir áhrifum japanskra Shinto Kumi-ki þrauta. Ferningsmennið fjölbreytilega er jafnt leikfang, skraut og þraut. Margir litir, nokkrar stærðir. Verð frá 1.930 K raftaverk Espresso mál.....kr. 2.100 Miðlungs mál....kr. 2.490 Smámál............kr. 2.290 Meiriháttarmál...........kr. 2.690 KeepCup kaffimál Diskamottur Með texta úr bókinni “Matur og drykkur” eftir Helgu Sigurðardóttur. Lasso flöskustandur (Vín)andi flöskunnar svífur í reipinu. Kr. 3.900 Tykho Radio Hannað af Marc Berthier Tykho Radio hefur unnið 7 alþjóðleg hönnunarverðlaun og er á lista hjá MoMA (Nútímalistasafni NY) yfir vörur sem fást í verslunum þeirra að staðaldri. Jafnframt valdi Pompidou safnið þetta útvarp sem annan tveggja hluta til að einkenna tímabilið frá 1985-2000. AM / FM Fæst rautt og grænt Kr. 8.700 Plaggat Ísland Stærð: 50x70 cm Kr. 750 . Stærð: 50x70 cm Kr. 750 Skjaldarmerki Íslendinga Fornkort 50 mottur saman í blokk, kr. 2.790 (Aðeins 56 kr. stk) High Heel köku- spa›inn Lid Sid Gufuventill 2 í pakka, hvítur og rauður Kr. 1.790 Kennslukortið góðaHani, krummi, hundur, svín Veggskraut með 4 snögum. Kr. 11.900 Kr. 3.390 Volume snudda Of hávær? Þú skrúfar bara niður í honum. Kr. 1.790 Eva Laufey og bróðir hennar á aðfangadag. Með vinum í Kaupmannhöfn. Eva og kærasti hennar, Haraldur Haraldsson, við Gullfoss. Eva Laufey og systir hennar einn góðan vordag í Noregi. Myndaalbúmið
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.