Fréttablaðið - 13.09.2013, Side 56
„Það hefur lengi angrað mig hvað umræðan um atvinnusköpun á
Íslandi er takmörkuð. Þessi einhæfa umræða um stóriðju eða eitt-
hvað óskilgreint og afar loðið „annað“ er ekki líkleg til að hvetja
fólk til þess að búa til alls konar störf á Íslandi. Og eftir að hafa
unnið í öll þessi ár við fréttir, þar sem maður fær illt auga frá
vaktstjórum ef fréttin er lengri en 90 sekúndur, fannst mér það
stórkostlegt tækifæri nú þegar við erum farin af fullum krafti að
framleiða íslenskt efni að fá að hitta fólk sem er að gera „eitthvað
annað“,“ segir Lóa Pind Aldísardóttir um tilurð væntanlegra þátta
sem nefnast einfaldlega Eitthvað annað.
„Ég held líka að geðheilsa þjóðarinnar megi alveg við því að
fá sögur af skapandi frumkvöðlum, svona inn á milli frétta um
milljarða afskriftir og markaðsmisnotkun hrunsins. Sögur sem
vekja innblástur en ekki reiði.“
Þættir Lóu, Tossarnir, vöktu mikla athygli fyrr í sumar og
Lóa heldur áfram að fjalla um menn og málefni sem vekja áhuga
hennar. „Ég hef einfaldlega brennandi áhuga á fólki sem þorir,
fólki sem hefur ástríðu fyrir því sem það gerir og fólki sem
hugsar út fyrir rammann. Frumkvöðlar eru svoleiðis fólk, fólkið
sem fær hugmynd og er tilbúið að leggja nótt við dag, vinna launa-
laust ef þörf krefur og jafnvel fresta jólunum ef það er það sem
þarf. Við Egill Aðalsteinsson myndatökumaður fengum að verja
tíma með alls konar frumkvöðlum í hinum ólíkustu geirum til
þess að segja sögu þessa fólks. Og ég dáist óendanlega að svona
fólki sem þorir að stíga skrefið út fyrir þægindaramma laun-
þegans og láta drauminn um „eitthvað annað“ rætast.“
Lóa segir sitthvað hafa komið sér á óvart við gerð þáttanna. „Það
sem hefur komið mér mest á óvart er hvað það er til öflugt frum-
kvöðlasamfélag á Íslandi. Því þótt sprotafyrirtæki fái talsverða
athygli í fjölmiðlum þá er slík umfjöllun í smáskömmtum þannig
að maður fær ekki tilfinningu fyrir umfanginu og fjöldanum. Þau
eru svo miklu, miklu fleiri en CCP, Marel og Össur. Ísland er fullt
af fólki sem hefur uppgötvað eittvað nýtt og komið því á markað.
Ég vona bara að þættirnir verði einhverjum áhorfendum innblástur
og frumkvöðlunum fjölgi enn frekar. Eins kom mér á óvart hversu
margir frumkvöðlar kváðust vera ofvirkir með athyglisbrest. Það
virðist vera eiginleiki sem nýtist vel við nýsköpun.“
Frumkvöðlar
sem þora
Eitthvað annað
Hefst á Stöð 2 í október.
Þau Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir og
Finnur Thorlacius ætla að leiða saman
hesta sína í glænýjum og sjóðheitum bíla-
þætti sem nefnist einfaldlega Á fullu gazi.
„Áhorfendur mega búast við stuði. Og
dóti. Fullt af dóti. Við skoðum flottustu,
skemmtilegustu, skrítnustu og ljótustu bíla
landsins. Sjáum óbreytta borgara keppa
í ralli og heimsækjum landsins helstu
bílageggjara svo fátt eitt sé nefnt,“ segir
Sigríður Elva. Finnur tekur undir: „Þeir
mega búast við skondnu og skemmtilegu
sjónarhorni á bílaheiminn, keppnishörku
ýmissa þátttakenda, flottum og óvenju legum
bílum, smá fróðleik um bíla en umfram allt
glensi og gamni sem fylgir bílum sem leik-
tækjum jafnt sem farartækjum.“
Þetta er fyrsta samstarfsverkefni
Sigríðar Elvu og Finns og þeim líst vel
á samstarfið. „Meðstjórnandi minn er
tækjabrjálæðingur eins og ég, góður öku-
maður og gullfalleg að auki. Er hægt að
hafa það betra?“ spyr Finnur. Sigríður
Elva segir það sömuleiðis forréttindi að
vera í félagsskap fólks sem er jafnvel
tækjabrjálaðra en hún sjálf. Hún segir
Finn einnig hafa yfirburði þegar kemur
að visku um bíla.
„Enda er Finnur einn helsti bílasér-
fræðingur landsins til margra ára. Ég
held ég þurfi að prófa hvert einasta trylli-
tæki sem ég kemst yfir á næstunni til að
vinna upp forskotið.“
En hver skyldi vera draumabíll hinna
nýju þáttastjórnenda? „Yfirleitt heillast
ég mest af sportbílum sem eru bæði
fagrir og kraftmiklir en kosta tíföld árs-
laun meðalmanns og komast ekki með
góðu móti yfir hraðahindrun. Nú er ég
hins vegar nýbökuð móðir og praktísk
eftir því. Á Íslandi þarf bíla sem kom-
ast bæði yfir hraðahindranir í höfuð-
borginni og veita fullt ferðafrelsi á há-
lendinu. Draumabíllinn í augnablikinu er
því stökkbreyttur ofurjeppi svo ég geti
ferðast með krílið í vetur,“ segir Sigríður
Elva. Finnur á heldur ekki í vandræðum
með valið: „Draumabíllinn minn í bili
er einn sá er ég tók síðast í, Porsche 911
Turbo S, en Tesla Model S fylgir fast á
eftir.“
Tækjabrjálaðir bílasjúklingar
Á fullu gazi Hefst á Stöð 2 í haust.
„ Áhorfendur mega
búast við stuði
og dóti. Fullt af dóti.
Við skoðum fl ottustu,
skemmtilegustu,
skrítnustu og ljótustu
bíla landsins. Sjáum
óbreytta borgara
keppa í rallí og
heimsækjum landsins
helstu bílageggjara …
Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir
„Ég held að þjóðin megi alveg við
því að fá sögur af frumkvöðlum,
svona inn á milli frétta um markaðs-
misnotkun og milljarðaafskriftir.
Lóa Pind Aldísardóttir
18 FÖSTUDAGUR 13. september 2013