Fréttablaðið - 13.09.2013, Side 62
Tíunda þáttaröðin af vinsælasta erlenda þætti Stöðvar 2 frá upphafi er væntanleg
í byrjun október en Grey‘s Anatomy verður sýndur á Stöð 2 beint á eftir frumsýn-
ingu í Bandaríkjunum.
Shonda Rhimes er hugmyndasmiður þáttanna og segir að í upphafi hafi hún
einfaldlega viljað búa til þátt sem hún sjálf myndi vilja horfa á. Það er því hægt
að gefa sér að heill her karla og kvenna um heim allan deili smekk Rhimes á því
hvað er skemmtilegt sjónvarpsefni, slíkar eru vinsældir þáttanna.
Það liggur fyrir að Sandra Oh (dr. Cristina Yang) mun yfirgefa leikhópinn í
þessari þáttaröð, en hvernig brotthvarf hennar kemur til með að vera skrifað inn
í þáttinn verður að koma í ljós. Lítið hefur nefnilega verið gefið upp um hvað fyrir
læknana á Grey-Sloan Memorial-spítalanum kemur á komandi vikum, en það ætti
að vera óhætt að gefa sér að engin lognmolla einkenni komandi misseri.
Grátur og gleði
Grey‘s Anatomy
Hefst á Stöð 2 miðvikudaginn 2. október.
„ Þetta eru allt hræði-leg mál þar sem
fórnarlömbin eru heilu
fjölskyldurnar.
Bubbi Morthens vakti athygli með þáttaröðinni Beint frá býli síðastliðinn vetur,
þar sem landsþekktir tónlistarmenn héldu tónleika heima í stofu hjá bændum. Nú
er væntanleg ný þáttaröð þar sem tónlistarmenn halda tónleika í messa skipa.
Skipin eru hvaðanæva af landinu og hljómsveitirnar jafn ólíkar og þær eru
margar. Meðal þeirra sem troða upp í messanum eru Stuðmenn og Gylfi Ægis-
son ásamt Pöpunum. Auk þess flytur Bubbi Morthens Ísbjarnarblús í heild sinni
í einum þáttanna, í fyrsta skipti í áratugi. Íslensk tónlist í hæsta gæðaflokki flutt
við afar íslenskar aðstæður í Beint frá messa.
Íslenskir tónar
úr messanum
Beint frá messa
Hefst á Stöð 2 14. september.
„Margir af sorglegustu og jafnframt
hrottalegustu glæpum landsins eru
ástríðuglæpir. Þetta eru allt hræðileg mál
þar sem fórnarlömbin eru heilu fjölskyld-
urnar. Ég hef mikla samúð með þeim. Í
sumum tilfellum er nálægð geranda og þol-
anda mikil sem gerir þetta að viðkvæmum
og erfiðum málum. Við munum því nálg-
ast þetta af virðingu og nærgætni,“ segir
sjónvarpsmaðurinn Ásgeir Erlendsson,
sem hefur umsjón með Íslenskum ástríðu-
glæpum, nýjum íslenskum heimildar-
þáttum sem væntanlegir eru á Stöð 2 í
vetur. Þættirnir Mannshvörf vöktu mikla
athygli á Stöð 2 fyrr á árinu og heldur
Helga Arnardóttir áfram á sömu braut
með nýrri þáttaröð, Óupplýst lögreglumál,
nú í haust. Íslenskir ástríðuglæpir verða í
svipuðum stíl, þar sem viðtöl við sérfræð-
inga, þolendur og aðstandendur sem og
ítarleg og vönduð umfjöllun um hvert mál
verða aðalsmerki þáttanna.
„Ástríðuglæpir eru sjaldnast fyrir fram
skipulagðir og þau íslensku mál sem við
erum að skoða eru þannig. Þessir glæpir
eru því miður oft framdir í stundarbrjál-
æði og af hvatvísi. Ástríðuglæpir eru því
ekki eingöngu þeir glæpir þar sem gerandi
og þolandi þekkjast heldur þar sem ger-
andi og þolandi þekkjast ekki. Tilgangur-
inn er að reyna að komast að því hvers
vegna glæpir sem þessir eru framdir,“
segir Ásgeir.
„Þegar ég var í sálfræði í Háskólanum
í Reykjavík voru þetta glæpir sem gripu
athygli mína ekki síst vegna þess að í
mörgum tilfellum, þó ekki öllum, eru þeir
sem fremja þessa glæpi ekki endilega þeir
sem fyrir fram þættu líklegir afbrota-
menn. Í mörgum málanna er um að ræða
mjög hrottalegan fyrsta glæp viðkom-
andi.“
Nálgast viðkvæm mál
af nærgætni og virðingu
Íslenskir ástríðuglæpir Á Stöð 2 í vetur.
24 FÖSTUDAGUR 13. september 2013