Fréttablaðið - 13.09.2013, Side 64

Fréttablaðið - 13.09.2013, Side 64
26 FÖSTUDAGUR 13. september 2013 „Lífsstíll, heilsuefling og forvarnir eru helstu áhersluatriði þáttanna og við tengjum þær áherslur við fræðslu um hina ýmsu sjúkdóma og kvilla, samanber hjarta- og æðasjúkdóma, krabbamein, inn- kirtla- og efnaskiptasjúkdóma, barnasjúkdóma auk andlegra þátta sem skipta sköpum í þróun hinna ýmsu vandamála. Ýmis viðkvæm mál verða einnig tekin fyrir, svo sem steranotkun karla, þvagleki kvenna, kynlíf og margt fleira áhugavert,“ segir Teitur Guðmundsson, sem ásamt Telmu Tómasson stýrir væntanlegum þáttum sem nefnast einfaldlega Doktor. „Áhorfendur mega búast við því að þarna fari þáttur sem verður upplýsandi og skemmtilegur, tekur á málefnum tengdum heilsu á líflegan hátt og kannski eins og einhver sagði „læknisfræði á manna- máli“. Undirtónninn í þáttunum er að almenningur taki með sér boðskap úr þeim sem vonandi mun geta haft jákvæð áhrif á líf þeirra og líðan.“ Teitur segir eitt og annað hafa komið á óvart við vinnslu þáttanna. „Hversu mikinn tíma það tekur að gera slíka þætti og hvað það eru mörg handtök sem þarf til að setja slíkt saman. Einnig var gaman að finna hvað það var mikill áhugi hjá fagfólki á að taka þátt og leggja sitt af mörkum.“ Læknisfræði á mannamáli Doktor Hefst á Stöð 2 í október. „ Undirtónninn í þáttunum er að almenningur taki með sér boðskap úr þeim sem von- andi mun geta haft jákvæð áhrif á líf þeirra og líðan. „Það skemmtilegasta við Sjálfstætt fólk er auðvitað fólkið sjálft. Hið sjálfstæða fólk sem við öll erum. Landið er frjálst og við líka. Hver hefur ekki áhuga á því að kynn- ast fólki eins og það er í raun og veru, hvað það er að fást við og hvernig það sér hlutina, lífið og tilveruna? Ég hef stundum sagt: Maðurinn er mesta undrið. Við höfum áhuga hvert á öðru og það er ef til vill það sem gerir okkur að mönnum. „Maður er manns gaman“ eins og kerl- ingin sagði,“ segir Jón Ársæll Þórðarson, sem nú hefur farið af stað með þrettándu þáttaröðina af einum vinsæl- asta þætti Stöðvar 2 frá upphafi, Sjálfstæðu fólki. Jón Ársæll segist ekki hafa neinn sérstakan óskalista yfir mögulega viðmælendur. „Ég elska alla. Mín reynsla er sú að hver einasti karl og kona hafi merkilega sögu að segja. Það er bara að hlusta. Þannig koma í raun allir til greina sem viðmælendur. Það er okkar sem vinnum við þetta fag að hlusta og skrásetja en auðvitað er það ekki sama hvernig það er gert. Ég er svo heppinn að með mér vinnur mökkur af frábæru fólki á Stöð 2, fólk sem leggur sig fram við að gera hlutina eins vel og hægt er. Að búa til hálftíma heimildarmynd á viku verður ekki gert nema með fólki sem rær í sömu átt og reddar hlutunum þegar á þarf að halda og vandar sig við það. Og svo má ekki gleyma Sigríði Guðlaugsdóttur, frá- bæra tenglinum okkar, og aðalmanninum og stjórnand- anum, Steingrími Jóni Þórðarsyni, sem er búinn að vera með mér frá upphafi og gerir fjölda kraftaverka í viku hverri,“ segir þáttarstjórnandinn góði. „Þegar ég hugsa til baka finnst mér hver einasti við- mælandi hafa komið mér á óvart á einhvern hátt. Við erum í einfaldleika okkar líka flókin og margbreytileg. Mér verður oft hugsað til þess hversu gaman það væri að sjá heiminn með augum einhvers annars. Komast þannig inn fyrir eða á bak við augu og eyru þess sem ég er að ræða við.“„Þegar ég hugsa til baka fi nnst mér hver ein asti við mælandi hafa komið mér á óvart á ein hvern hátt. Allir hafa merkilega sögu að segja Sjálfstætt fólk Stöð 2 á sunnudagskvöldum.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.