Fréttablaðið - 13.09.2013, Qupperneq 75
FÖSTUDAGUR 13. september 2013 | MENNING | 31
„Þeir voru kannski dálítið tregir
fyrst, að fá húðflúrsstefnu inn í
Súlnasalinn á Hótel Sögu. Þeir
héldu að við myndum jafnvel
skilja salinn eftir sem rjúkandi
rúst. En þetta gekk og eftir á
sögðust þeir sjaldan hafa átt
samskipti við jafn kurteist og
snyrtilegt fólk,“ segir Fjölnir
Geir Bragason, betur þekktur
sem Fjölnir tattú, um ráðstefn-
una Icelandic Tattoo Expo sem
haldin verður hér á landi um
helgina. Fjölnir er andlit ráð-
stefnunnar, sem haldin er í annað
sinn, og hefst í dag klukkan þrjú.
Um fimmtíu húðflúrarar verða
við störf á hátíðinni í ár.
„Við erum að fá rjómann af
húðflúrlistamönnum hingað til
landsins. Um þrjátíu og fimm
þeirra eru erlendir,“ segir hann
og bætir við: „Þetta gekk vonum
framar í fyrra. Það mætti fjöldi
fólks og við vorum sveittir á
skallanum að flúra liðið. Ég
heyri svo oft að fólk vilji fá sér
flúr en viti ekki hvað það vill fá
sér. Fyrir það fólk er þessi hátíð
tilvalin. Þarna verður um flestar
stefnur húðflúrlistanna að velja,
þannig að ég hvet fólk til að mæta
snemma og kynna sér stefnur og
skóla í húðflúri.“
Hátíðin er hugarfóstur Svans
og Sessu sem reka húðflúr stofuna
Tattoo og Skart. „Það verður þétt
dagskrá á hátíðinni, tónlistar-
atriði, tattúkeppni og þar fram
eftir götunum. Þetta verður hin
besta skemmtun og ég hvet sem
flesta til að láta sjá sig, hvort sem
þeir vilja láta flúra sig eða eru
bara forvitnir,“ segir Fjölnir að
lokum. - ósk
Rjóminn af húðfl úrlistamönnum til Íslands
Icelandic Tattoo Expo er haldin í annað sinn í Súlnasal Hótel Sögu. Dagskráin hefst klukkan þrjú í dag.
ANDLIT HÚÐFLÚRRÁÐSTEFNU Fjölnir
Geir Bragason, betur þekktur sem
Fjölnir tattú, er andlit ráðstefnunnar
Icelandic Tattoo Expo.
Kvikmyndin Málmhaus var
heimsfrumsýnd um síðustu helgi
á TIFF (Toronto International
Film Festival). Sýningin gekk
vonum framar.
Hátt í tvö þúsund gestir sáu
myndina á fimm sýningum, þar á
meðal kanadískur almenningur,
blaðamenn og kvikmyndagerðar-
fólk frá öllum heimshornum.
Að sýningu lokinni uppskáru
aðstandendur Málmhauss mikið
lófaklapp. Sátu flestir kvik-
mynda gestir sem fastast í sætum
sínum eftir að sýningu á mynd-
inni lauk og biðu eftir að fá að
spyrja leikstjórann Ragnar
Bragason og aðalleikkonuna
Þorbjörgu Helgu Þorgilsdóttur
spjörunum úr.
Málmhaus
fékk lófaklapp
RAGNAR BRAGASON Leikstjórinn í
Toronto þar sem kvikmyndahátíðin TIFF
fór fram.
Ofurfyrirsætan og eiginkona
söngvarans Davids Bowie, Iman,
er ósátt við þá staðreynd að það
eru færri svartar konur á tískupöll-
unum í ár en voru í kringum 1980.
„Það er kominn tími til aðgerða,
við getum ekki þagað um þetta
mál lengur. Ef það er ekki hægt
að ræða þetta innan tískugeirans
er eitthvað mikið að,“ segir hún.
Á nýafstaðinni tískuviku í New
York voru 82,7 prósent af fyrir-
sætunum hvítar en einungis sex
prósent voru svartar. Iman berst
fyrir því að fjölbreytni ríki innan
tískuheimsins og segir það ábyrgð
hönnuða og ritstjóra tískutíma-
ritana að svo sé.
Of fáar svartar
fyrirsætur
GAGNRÝNIR TÍSKUVIKUNA Iman
segir skammarlegt hversu fáar svartar
fyrirsætur sjást á tískupöllunum í ár.
NORDICPHOTOS/GETTY
Vilhjálmur prins er hættur í
hernum eftir sjö ára starf. Vil-
hjálmur starfaði sem þyrluflug-
maður í leitar- og björgunarsveit
breska flughersins. Breska kon-
ungshöllin tilkynnti að prinsinn
myndi nú alfarið snúa sér að kon-
unglegum skyldum sínum og góð-
gerðarmálum.
Næsta árið mun Vilhjálmur,
sem er nýbakaður faðir, vinna
fyrir Royal Foundation of The
Duke and Duchess, ásamt yngri
bróðir sínum, Harry prins.
Hann og fjölskylda hans ætla að
flytja frá heimili sínu í bænum
Anglesey á vesturstönd Wales, í
Kengsington-höll.
Hættir í
fl ughernum
Hljóðfæraleikur og söngur
Sigríður Beinteinsdóttir
Grétar Örvarsson
Friðrik Karlsson
Jóhann Ásmundsson
Sigfús Óttarsson
Einar Bragi Bragason
Eiður Arnarsson
Jón Elvar Hafsteinsson
Þorsteinn Gunnarsson
Þórir Úlfarsson
Bakraddir
Friðrik Ómar
Regína Ósk
Erna Hrönn