Fréttablaðið - 13.09.2013, Side 86
13. september 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 42
HELGIN
Tónlistarsérfræðingurinn Arnar
Eggert Thoroddsen hefur ákveð-
ið að framlengja námsdvöl sína
við Edinborgarháskóla. Hann
hefur lokið meistaranámi sínu í
tónlistar fræði, eða musicology, og
hyggur nú á þriggja ára doktors-
nám.
„Þetta leggst afar vel í mig.
Stefnan var alltaf að taka doktor
hérna úti og ég er mjög glaður
með að það hafi gengið eftir. Ég
er þá að fara að vinna með Simon
Frith, sem er mikill poppfræði-
gúrú. Hann lagði í raun línurnar
fyrir fagið sem slíkt fyrir ára-
tugum og er virtur prófessor
í alþjóðaháskólasamfélaginu,“
segir Arnar Eggert, spurður út í
námið.
„Mastersnámið var bara eitt
ár og í rauninni nokkurs konar
undirbúningur fyrir doktorinn.
Íslensk tónlist mun þá tengjast
inn í þetta doktorsverkefni og
ég get þá unnið úr þeirri reynslu
og þekkingu sem ég hef þegar
öðlast.“
Verðurðu þá alfróður um tónlist
að náminu loknu? „Já, mér er sagt
að ég verði alfróður um tónlistina
þegar doktornum lýkur. Þá get ég
loksins hætt að hlusta á þessa tón-
list,“ segir hann og hlær. - fb
Verður doktor í tónlistarfræði
Spekúlantinn Arnar Eggert Thoroddsen hyggur á doktorsnám í tónlistarfræði.
Í EDINBORG Tónlistarfræðingurinn
Arnar Eggert Thoroddsen ætlar í
doktors nám í tónlistarfræði.
➜ Arnar Eggert er einn helsti
tónlistarspekingur þjóðarinnar
og hefur starfað á Morgun-
blaðinu síðustu þrettán ár
ásamt því að sitja í dóm-
nefndum í tónlistarkeppnum.
„Okkur leist best á fallega, litla
einbýlishúsið í Halsviksvägen,
á eyjunni Styrsö, þar sem tólf
hundruð manns búa,“ segir lög-
fræðineminn og fyrirsætan Snjó-
laug Árnadóttir sem flutti ný-
verið til Svíþjóðar, nánar tiltekið
til Gautaborgar, ásamt kærasta
sínum, Arngrími Jóni Sigurðssyni.
Þar stundar Snjólaug meistaranám
í lögfræði.
Við flutningana út fékk parið að
vita að erfitt gæti verið að finna
íbúðir til leigu í borginni og því
ákváðu þau að hafa augun opin
fyrir öðrum kostum. Þau búa nú í
einbýlishúsi á lítilli eyju rétt fyrir
utan Gautaborg og taka ferju yfir á
meginlandið á degi hverjum.
„Eitt kvöld fór ég út að borða
með skólafélögunum og ætlaði að
taka síðustu ferjuna heim. Þegar
ég var komin niður á höfn komst
ég að því að ég hafði misskilið
tímatöfluna og hafði rétt misst af
síðustu ferjunni. Ég neyddist til
að eyða nóttinni alein á bryggj-
unni í skítakulda. Ég hringdi í
Arngrím til að láta hann vita að
mín væri ekki von heim, en sím-
inn varð batteríslaus í miðju sam-
tali. Ég hafði ekkert til að gera
til að drepa tímann og vissi ekki
einu sinni hvað tímanum leið á
meðan ég beið. Þegar ferjan loks-
ins kom hoppaði ég himinlifandi
inn í hlýjuna. Ég endaði að vísu í
vitlausri höfn og þurfti að ganga
þvert yfir eyjuna í þoku,“ segir
hún hlæjandi þegar hún rifjar upp
kvöldið.
Snjólaug segir það ævintýri
líkast að búa á eyju og ekki spillir
fyrir að mánaðarleigan fyrir heilt
hús sé sambærileg því sem þau
hefðu greitt fyrir eitt herbergi í
Gautaborg.
„Þarna eru margar göngu leiðir,
risavaxinn skógur sem minn-
ir á Fangorn-skóg úr Lord of the
Rings-myndunum, og mikið dýra-
líf. Hér er mikill fjöldi dádýra,
froska og fugla,“ segir hún að
lokum. asa@frettabladid.is
Býr á ævintýraeyju
Lögfræðineminn og fyrirsætan Snjólaug Árnadóttir er nýfl utt til Gautaborgar
með kærasta sínum. Þau búa á eyjunni Styrsö sem er rétt fyrir utan Gautaborg.
BÝR Á EYJU
Snjólaug
Árnadóttir
býr á eyjunni
Styrsö, skammt
frá Gautaborg,
með kærasta
sínum. Hún
stundar
meistaranám
í lögfræði í
Gautaborg.
MYND/ARNGRÍMUR
➜ Styrsö er um 1,58 ferkíló-
metrar að flatarmáli.
Rithöfundarnir Þórarinn Eldjárn, Sigurbjörg
Þrastardóttir, Madeline Miller og Mazen
Maarouf etja kappi í framsögu á skemmti-
staðnum Gamla Gauknum á sunnudag. Þetta
er í annað sinn sem keppnin fer fram hér á
landi.
„Þetta verður algjört dúndur,“ segir Halldór
Halldórsson, betur þekktur undir nafninu Dóri
DNA, en hann mun dæma í keppninni ásamt rit-
höfundinum Sigurjóni Birgi Sigurðssyni, öðru
nafni Sjón, og leikkonunni Ólafíu Hrönn Jóns-
dóttur. „Ég er klárlega Randy Jackson ef það á
að líkja þessu við Idol,“ segir Halldór um dóm-
arastöðuna. Keppnin kallast Literary Death
Match og er alþjóðleg lestrarröð sem á rætur
að rekja til Bandaríkjanna og er hugmyndin að
brjóta upp hefðbundið upplestrarform og gera
það skemmtilegt. „Það er gaman að upphefja
bókmenntaformið, þrýsta þessu niður á lægra
plan, þetta þarf ekki alltaf að vera svona form-
legt. Það er alltaf gaman að gera eitthvað nýtt
og sniðugt,“ bætir Halldór við.
Dómararnir velja tvo lesara sem komast
áfram í lokaumferðina. Sigurvegarar hvorrar
umferðar reyna hvor annan í leikjum sem hafa
óljósa bókmenntalega skírskotun. Sigurvegar-
inn fer heim með LDM-krúnuna, en ríkjandi
meistari er Kári Túliníus.
Húsið verður opnað kl. 19.30 og kostar litlar
1.000 krónur inn. - glp
Rithöfundar berjast á Gauknum
Fjórir þekktir rithöfundar keppa í framsögu á Gamla Gauknum um helgina.
DÆMIR Í FRAM-
SÖGU Grínist-
inn Halldór
Halldórsson er
einn þriggja
dómara í
keppninni
Literary
Death
Match sem
fram fer
um helgina.
FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
„Ég ætla að horfa á mína menn í
Chelsea rústa Everton á morgun og
fer svo í útskriftarveislu um kvöldið.
Á sunnudag fer ég svo á hljóm-
sveitar æfingu, því það er það eina
sem tónlistarmenn gera.“
Una Stefánsdóttir, söng- og tónlistarkona.
Tók á móti tökuliði
Jón Gnarr sýndi ástralskri sjónvarpskonu borgina.
Jón Gnarr tók á móti níu manna hóp frá ástr-
ölsku sjónvarpsstöðinni Channel 7 á miðviku-
dag. Hópurinn var hér við tökur á ferðaþætti
um Ísland og mun borgarstjórinn leika veiga-
mikið hlutverk í þættinum.
Samkvæmt vef Reykjavíkur borgar
sýndi borgarstjórinn þáttarstjórn-
andanum, Anh Do, ráðhúsið, styttu
Leifs Eiríkssonar á Skólavörðuholt-
inu, kaffihúsið Laundromat og loks
hvíldu þau lúna fætur í fótalauginni
við Gróttu. Tökuliðið mun einnig
mynda torfærubíla, sjósundfólk,
Bláa lónið og náttúruperlur á borð
við Gullfoss og Geysi fyrir þátt-
inn sem verður sýndur í Ástralíu í
byrjun nóvember. Reiknað er með
að um tvær milljónir manna muni
horfa á þáttinn.
VINSÆLL Jón Gnarr tók á móti áströlsku
tökuliði og sýndi þeim borgina.
ROSIE VERKEFNIÐ EFTIR GRAEME SIMSION
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
KRÚTTSPRENGJA
– KOLBRÚN BERGÞÓRSDÓTTIR
Frumleg, heillandi og fyndin!
„Grípandi, fyn
din
saga um það
að maður
finnur ekki ás
tina;
hún finnur ma
nn.“
GLAMOUR