Fréttablaðið - 10.10.2013, Síða 72
10. október 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 48
„Brúðuloftið er nýtt leikhús sem
Bernd Ogrodnik hefur fengið til
umráða inni í Þjóðleikhúsinu,“
útskýrir Ágústa Skúladóttir leik-
stjóri spurð hvað Brúðuloftið sé.
Þar var um síðustu helgi frum-
sý nd br úðu-
sýning Bernds,
Aladdín, sem
Ágústa leikstýr-
ir. „Aladdín er
formleg opnun-
arsýning Brúðu-
loftsins. Bernd
semur handritið
og tónlistina og
hannar og smíð-
ar leikmyndina, auk þess að búa
til brúðurnar, stjórna þeim og
vera sögumaður.“
Karl Ágúst Úlfsson á líka bæði
þýtt og frumsamið efni í sýn-
ingunni og átta eðalleikarar ljá
brúðunum raddir sínar. Sagan
fylgir sögunni úr 1001 nótt, án
alls Disney-flúrs, að sögn Ágústu.
„Við erum trú upprunalegu sög-
unni,“ segir Ágústa. „Aladdín á
til dæmis móður í þessari útgáfu
en ekki apa. Andinn er einnig
kvenkyns hjá okkur, þannig að
við höfum aðeins rétt hallann á
kvenhlutverkunum.“
Það eru tólf persónur í verkinu
en til þess að koma þeim til skila í
mismunandi aðstæðum þarf hátt
í fimmtíu brúður. „Hver karakter
þarf að vera til í ýmsum stærð-
um og gerðum í mismunandi bún-
ingum því brúðurnar geta ekki
hlaupið í hraðskiptingu og birst
skömmu síðar í nýju dressi.“
Sýningin er sögð höfða til ald-
urshópsins milli fjögurra og
hundrað ára og Ágústa segir full-
orðna fólkið skemmta sér alveg
jafn vel og börnin. „Fólk kemur
út alveg í skýjunum eftir að hafa
lifað sig inn í þetta ótrúlega
ævintýri,“ segir hún.
Sýningar verða tvisvar á hverj-
um laugardegi fram eftir nóvem-
ber. Ágústa vill leggja áherslu á
að sýningarfjöldinn sé takmark-
aður og því ekki eftir neinu að
bíða með að drífa sig að upplifa
ævintýrið.
fridrikab@frettabladid.is
1001 galdur fyrir alla fj ölskylduna
Brúðusýningin Aladdín eft ir Bernd Ogrodnik var frumsýnd á Brúðuloft i Þjóðleikhússins um síðustu helgi.
Ágústa Skúladóttir leikstjóri segir sýninguna höfða til áhorfenda á öllum aldri enda sé hún mikið sjónarspil
sem dragi fólk inn í ævintýraheim Þúsund og einnar nætur. Hún sé þó talsvert ólík Disney-útgáfunni.
Gennady Rozhdestvenskíj mun
stjórna Sinfóníuhljómsveit
Íslands á tónleikum hennar í
kvöld. Í fylgd með honum er eig-
inkona hans, píanóleikarinn Vikt-
oria Postnikova, og í farteskinu
eru þrjú öndvegisverk rússneskra
tónbókmennta.
Hátíðarforleikurinn Rúss-
neskir páskar er hið síðasta í röð
þriggja glæsiverka sem Rimsky-
Korsakov samdi á árunum 1886-
87. Páskaforleikurinn er byggður
á fornum trúarsöngvum rúss-
nesku rétttrúnaðarkirkjunnar.
Píanókonsertinn sem Korsakov
samdi fyrr á sama áratug byggir
aftur á móti á einu stefi, rúss-
nesku þjóðlagi. Síðust á dag-
skránni er tíunda sinfónía Sjosta-
kovitsj sem sagt hefur verið
um að sé 48 mínútur af harmi,
örvæntingu, ótta og ofbeldi og
tvær mínútur af sigurgleði.
Í dag stendur Vinafélag Sin-
fóníuhljómsveitarinnar fyrir tón-
leikakynningu sem hefst klukkan
18. Þar kynnir Sigurður Ingvi
Snorrason verkin sem flutt verða
á tónleikum kvöldsins.
Rozhdestven-
skíj stjórnar
TÖFRAHEIMUR Sagan af Aladdín er ekki ný af nálinni en hér er á ferð útgáfa sem er trú frumsögunni og því töluvert ólík
Disney-útgáfunni sem flestir þekkja.
ÁGÚSTA
SKÚLADÓTTIR
➜ Það eru tólf persónur í
verkinu en til þess að koma
þeim til skila í mismunandi
aðstæðum þarf hátt í fimmtíu
brúður.
SINFÓNÍUHLJÓMSVEITIN Á efnisskrá
tónleikanna í kvöld eru þrjú stórvirki
rússneskra tónbókmennta.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Ísafirði - Hafnarstræti 2
Akureyri - Hafnarstræti 91-93
Vestmannaeyjum - Faxastíg 36
Penninn - Hallarmúla 4
Austurstræti 18
Skólavörðustíg 11
Kringlunni
Álfabakka 14b, Mjódd
Smáralind
Strandgötu 31, Hafnarfirði
Keflavík - Sólvallagötu 2
Akranesi - Dalbraut 1
kr 2.999
VILDARTILBOÐ
Fullt verð
kr 3.999
Í þessari fyrstu bók Sesselju opnar hún
hugmyndabankann sinn sem hún hefur
safnað í svo lengi.
Hugmyndirnar beinlínis streyma út!
Hér finna allir eitthvað skemmtilegt
við sitt hæfi.
G
ild
ir
til
o
g
m
eð
1
4.
O
kt