Fréttablaðið - 17.10.2013, Page 4
17. október 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
62% Íslendinga taka lýsi þrisvar í viku eða
oftar.
Að jafnaði tekur þjóðin lýsi fjórum
sinnum í viku, en alls tekur um
helmingur þjóðarinnar lýsi daglega.
Heimild: Matís
Sameiginlegir tónleikar Viborg Dom-
kirkes Ungdomskor og Gradualekórs
Langholtskirkju eru í Langholtskirkju
í kvöld, fimmtudag, klukkan 20.
Beðist er forláts á rangri dagsetningu
tónleikanna í blaðinu í gær– og
áréttað að þeir eru í kvöld.
Leiðrétt
VIÐSKIPTI Ungmennafélag Íslands
(UMFÍ) skuldar rúmlega 200 millj-
ónir króna og er því skuldugasta
æskulýðsfélag Íslands. Félagið
hefur fengið rúman milljarð í
styrk frá íslenska ríkinu frá árinu
2001. Þá fær það vel yfir hundrað
milljónir á ári vegna lottótekna en
félagið á hlut í Íslenskri getspá.
Fráfarandi gjaldkeri félagsins
bókaði á stjórnarfundi í lok sept-
ember að skera yrði niður bifreiða-
hlunnindi hjá félaginu, sem meðal
annars formaður þess nýtur. Heild-
arkostnaður vegna bifreiða á síð-
asta ári var tíu milljónir króna
samkvæmt ársreikningi. Gjald-
kerinn leggur einnig til róttækar
aðgerðir eins og að selja höfuð-
stöðvar félagsins að Sigtúni 42.
Orðrétt segir í bókun gjaldker-
ans um húsnæðið: „[…] þrátt fyrir
að húsaleiga til eigin reksturs og
annarra aðila í húsinu sé með því
allra hæsta sem þekkist í Reykja-
vík nást ekki endar saman í rekstri
eignarinnar.“
„Það eru ekki allir sammála
gjaldkeranum,“ segir Helga G. Guð-
jónsdóttir, formaður UMFÍ. Hún
segir UMFÍ hafa fengið Deloitte
til að meta kosti þess að selja hús-
næðið eða leigja og að Deloitte hafi
metið það sem svo að það væri hag-
stæðara að eiga húsnæðið. Spurð
aftur um álit fráfarandi gjaldker-
ans svarar Helga: „Við eigum ekki
í neinum vandræðum.“
Engu að síður fékk stjórnin sam-
þykkt á síðasta þingi heimild til að
selja höfuðstöðvar UMFÍ að Sig-
túni. Eins fékk stjórnin heimild
til þess að selja veitingahús í eigu
félagsins í Þrastarlundi. Mikil
vandræði hafa einkennt rekstur
Þrastarlundar síðustu ár. Þann-
ig var tap af rekstri Þrastarlund-
ar átta og hálf milljón króna árið
2012. Það er þó nokkuð betra en
árið 2011 þegar UMFÍ tapaði 15
milljónum á rekstrinum.
Aðspurð hverjir séu með hlunn-
indabifreiðar hjá UMFÍ svarar
Helga að það séu þrír sem njóti
slíkra hlunninda. Það sé hún sjálf
og svo tveir starfsmenn félagsins.
„En það stendur til að breyta því,“
bætir hún við. Aðspurð hvað komi
til að því verði breytt svarar Helga:
„Við ætlum bara að gera það.“
Þegar hún er innt aftur eftir
svari svarar hún: „Það hlýtur að
vera sparnaðaraðgerð. Við viljum
borga niður skuldir.“
Helga rifjar þá upp áfall sem
UMFÍ varð fyrir eftir hrun þegar
félagið fjárfesti í verðbréfum
hjá VBS fyrir 70 milljónir króna.
Félagið reynir nú að endurheimta
féð og hefur tekist það að einhverju
leyti, auk þess sem UMFÍ hefur
kært VBS til sérstaks saksóknara.
„Reksturinn síðustu tíu ár hefur
ekki verið nógu góður,“ segir Jón
Pálsson, fráfarandi gjaldkeri
félagsins, þegar hann er spurður
um álit sitt á rekstri UMFÍ síðustu
ár, sem einkennst af misheppnuð-
um hlutabréfaviðskiptum hjá VBS,
veitingahúsi sem stendur ekki
undir sér og mikilli skuldasöfnun
þrátt fyrir traustar tekjur.
„En það eru ekki fasteignir eða
veraldlegir hlutir sem þetta á að
snúast um heldur starfið sjálft. Þar
á fókusinn að vera,“ segir Jón að
lokum. valur@frettabladid.is
UMFÍ skuldar 200 milljónir
og afnemur bílahlunnindi
Ungmennafélag Íslands er mjög skuldsett þrátt fyrir miklar tekjur. Fráfarandi gjaldkeri félagsins vill skera
niður bifreiðahlunnindi sem formaður félagsins nýtur. Lagði til að höfuðstöðvar UMFÍ yrðu seldar.
FÉLAGSMÁL „Stúdentar í
háskólum verða að kom-
ast að heiman,“ segir Anita
Brá Ingvadóttir, formaður
Stúdentafélags Háskólans í
Reykjavík. „Fólk er heima
til 25 ára aldurs því það
hefur ekki efni á öðru. Því
fagna ég öllum breytingum
sem styðja stúdenta í leigu-
málum.“
Þingflokkur Bjartrar framtíðar
hefur lagt fram frumvarp um breyt-
ingu á lögum um húsaleigubætur
þannig að stúdentar sem
leigja saman á almennum
markaði fái greiddar húsa-
leigubætur eins og þeir
sem fá sérstakar stúdenta-
íbúðir. Flokkurinn vill að
stúdentar njóti sama stuðn-
ings hvort sem þeir leigja á
námsgörðum eða á almenn-
um markaði.
Stúdentafélag HR fagn-
ar framtaki þingmanna Bjartrar
framtíðar en hvetur þá til að huga
áfram að því að jafna stöðu háskóla-
nema með því að tryggja jafnan
aðgang að húsnæði. „Við viljum sjá
framtíðarstefnu í húsnæðismálum
allra stúdenta á höfuðborgarsvæð-
inu, óháð því hvaða nafn, aldur eða
sögu skóli þeirra ber. Félagsstofnun
stúdenta leigir út fjölmargar íbúðir
fyrir stúdenta en þær eru eingöngu
fyrir nemendur Háskóla Íslands. Ef
litið er almennt til leigumála stúd-
enta þá er skrýtið að það sé ekki jafn
aðgangur að húsnæði.“
Félagsstofnun stúdenta hýsir
1.500 einstaklinga, nemendur og
fjölskyldur þeirra, í byggingum
sínum. Stúdentar HÍ eiga Félags-
stofnun stúdenta og vinnur stofn-
unin eingöngu í þágu þeirra. FS er
sjálfseignarstofnun, þiggur ekki
styrki frá ríkinu heldur fjármagnar
byggingar með lánum frá Íbúðalána-
sjóði og eigin féi. -ebg
Stúdentafélag Háskólans í Reykjavík vill ganga lengra til að jafna stöðu háskólanema á leigumarkaði:
Aðgangur að húsnæði ætti að vera jafn
MENNTUN Upplýsingakerfið
Mentor hefur verið endurskrif-
að frá grunni og verður það inn-
leitt í áföngum á þessu skóla-
ári og því næsta. Fyrsta skrefið
í innleiðingunni er nýtt viðmót
sem Illugi Gunnarsson mennta-
málaráðherra mun opna form-
lega í Hörpu í dag.
Mentor, sem er þekkingarfyr-
irtæki á sviði kennslufræði og
aðalnámskrár, er eitt mest not-
aða upplýsingakerfi landsins, að
því er segir í fréttatilkynningu.
Kerfið er einnig notað í fjórum
öðrum löndum í Evrópu. -ibs
Nýtt viðmót opnað:
Endurskrifuðu
kerfi Mentors
ÖRYGGISMÁL Sýn, þyrla Landhelgis-
gæslunnar, er farin í reglubundna
skoðun og endurbætur. Skoðunin
er nokkuð umfangsmikil en auk
þess verður þyrlan útbúin nætur-
sjónaukabúnaði. Áætlað er að þyrl-
an komi ekki til landsins fyrr en
eftir áramót.
Flugvélin Sif er nú við landa-
mæraeftirlit á Miðjarðarhafi á
vegum Frontex, Landamærastofn-
unar Evrópusambandsins. Upphaf-
lega var áætlað að flugvélin yrði
mánuð á svæðinu en LHG hefur
boðið Sif fram til verkefna til ára-
móta. Á meðan munu þyrlurnar Líf
og Gná sinna verkefnum flugdeild-
ar LHG hér heima. - shá
Tvær þyrlur til áramóta:
Sýn af landi
brott í skoðun
UMFÍ Fráfarandi
gjaldkeri UMFÍ
lagði til að hús-
næði félagsins
yrði selt.
HELGA
GUÐJÓNSDÓTTIR
ANITA BRÁ
INGVADÓTTIR
➜ Félagsstofnun stúdenta
hýsir 1.500 einstaklinga,
nemendur og fjölskyldur
þeirra, í byggingum sínum.
JÓN PÁLSSON
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sigurður Helgi Grímsson sigurdurhg@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
Ingibjörg Karlsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Laugardagur
Strekkingur með SA-ströndinni annars
hægari.
HELGIN VERÐUR NOKKUÐ BJÖRT og fremur hægur vindur ef undan er skilin
suðurströndin. Það er heldur að kólna á landinu en engu að síður viðrar ágætlega til
útiveru hvort sem um er að ræða haustverk í garðinum eða gönguferðir.
5°
4
m/s
6°
2
m/s
6°
4
m/s
7°
11
m/s
Á morgun
Strekkingur allra syðst, annars hægari.
Gildistími korta er um hádegi
4°
4°
3°
1°
1°
Alicante
Aþena
Basel
27°
20°
19°
Berlín
Billund
Frankfurt
15°
14°
15°
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
16°
13°
13°
Las Palmas
London
Mallorca
25°
18°
27°
New York
Orlando
Ósló
23°
31°
9°
París
San Francisco
Stokkhólmur
18°
20°
8°
5°
5
m/s
5°
7
m/s
3°
5
m/s
3°
6
m/s
4°
3
m/s
4°
2
m/s
0°
5
m/s
5°
3°
4°
3°
4°
Reksturinn síðustu
tíu ár hefur ekki verið
nógu góður.
Jón Pálsson,
fráfarandi gjaldkeri UMFÍ
HAFÐU BÍLINN
KLÁRAN FYRIR
VETURINN!
Gæði, reynsla og gott verð!
REYKJAVÍK, Bíldshöfða 9, Funahöfða 13
KÓPAVOGUR, Smiðjuvegi 4a, græn gata
HAFNARFJÖRÐUR, Dalshrauni 17
REYKJANESBÆR, Krossmóa 4, SELFOSS, Hrísmýri 7
AKUREYRI, Furuvöllum 15, EGILSSTAÐIR, Lyngás 13
www.bilanaust.is
EX
PO
-
w
w
w
.ex
po
.is
VERSLANIR
SJÖ
MEÐ MIKIÐ
VÖRUÚRVAL