Fréttablaðið - 17.10.2013, Blaðsíða 6
17. október 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 6
1. Hversu mörg prósent lögreglu-
manna eru konur?
2. Hvar er mest atvinnuleysi á land-
inu?
3. Hvaða hljómsveit stígur aftur á svið
eftir níu ára hlé?
SVÖR:
1. Innan við 13 prósent .2. Á Suðurnesjum.
3. Maus.
ÖRYGGISMÁL „Fyrirkomulagið eins
og það er nú nær ekki nokkurri átt.
Að sjúkraflug í þessu litla landi sé
annars vegar gert út af velferðar-
ráðuneytinu og hins vegar sjúkra-
og neyðarflug af innanríkisráðu-
neytinu og Landhelgisgæslunni
getur ekki verið hagfellt. Þetta
er spurning um að hagræða, auka
öryggi og spara peninga,“ segir
Georg Lárusson,
forstjóri Land-
helgisgæslunn-
ar, spurður um
fyrirkomulag
sjúkraf lugs á
Íslandi og hvort
það eigi allt að
vera á einni
hendi. „Til að
mögulegt sé að
halda úti öflugri björgunar-, neyð-
ar- og sjúkraflugsþjónustu þarf
reksturinn að vera sterkari,“ segir
Georg.
Hann spyr hvað græðist á því
að hafa tvær miðstöðvar til að
vakta neyðartilfelli; eina á Akur-
eyri ef vantar sjúkraflugvél og
aðra í Reykjavík ef vantar sjúkra-
þyrlu eða stóra vél til að fara til
útlanda. „Gæslan hefur sterka
innviði sem skiptir öllu máli í
þessu sambandi. Auk tækja og
víðtækrar þekkingar og reynslu
við neyðaraðstæður hvers konar,
rekum við stjórnstöðvar sem eru
opnar allan sólarhringinn. Land-
helgisgæslan getur því auðveld-
lega tekið að sér annað sjúkraflug
í landinu jafnvel þó svo þjónustan
verði áfram starfrækt frá Akur-
eyri.
Spurður um kostnað við að
Gæslan tæki að sér allt sjúkra-
flug hérlendis segir Georg ljóst að
stofnkostnaður gæti orðið nokk-
ur, og sértekjur af leigu flugvél-
ar Gæslunnar til útlanda myndu
rýrna. „Þessari vél var ætlað að
vera til taks hér við land til björg-
unar, eftirlits og öryggis svo sem
vegna náttúruhamfara og slysa.
Þess vegna væri mjög eftirsóknar-
vert að vinna hana til baka aftur
með því að endurskoða fyrirkomu-
lag sjúkraflugs. Þegar horft er til
allra þátta svo sem samræming-
ar, umfangsmeiri rekstrar, aukins
öryggis og hagræðingar hlýtur
þetta að vera hagkvæmara fyrir-
komulag.“ svavar@frettabladid.is
Forstjóri vill sjúkra-
flugið til Gæslunnar
Fyrirkomulag sjúkraflugs á Íslandi stenst enga skoðun, er mat forstjóra Landhelgis-
gæslunnar. Mun hagfelldara væri að flugið væri á einni hendi. Ráðherra segir
ekkert mæla gegn skoðun en Ríkisendurskoðun snuprar ráðuneyti fyrir seinagang.
● Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, fékk á mánu-
dag skriflegt svar Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra við spurn-
ingunni hver afstaða hennar væri til þess að LHG taki við öllu almennu
sjúkraflugi, eins og lengi hefur verið til skoðunar innan stjórnsýslunnar.
Ráðherra svarar spurningunni ekki beint, en sér því ekkert til fyrirstöðu að
kanna þá möguleika til hlítar í samstarfi við velferðarráðuneytið.
● Í úttekt Ríkisendurskoðunar á sjúkraflugi sem birt var nýlega kemur fram
að ekki liggi fyrir nægar upplýsingar til að meta hvort framkvæmanlegt er,
og hagkvæmt, að Gæslan annist almennt sjúkraflug á landinu, eins og segir í
svari ráðherra. Þar kemur hins vegar ekki fram að Ríkisendurskoðun snuprar
ráðuneytin fyrir að hafa ekki gengið úr skugga um hvort svo sé.
Ríkisendurskoðun snuprar ráðuneyti
Á VETTVANGI Mýflug hefur annast almennt sjúkraflug síðustu misseri. MYND/HÖRÐUR GEIRSSONGEORG
LÁRUSSON
Prófaðu Sensodyne vörurnar og finndu muninn.
Sensodyne fyrir viðkvæmar tennur
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
NÝ OG BE
TRI
HÖNNUN
!
TANNBURSTAR OG
TANNKREM FYRIR
VIÐKVÆM SVÆÐI
DÓMSTÓLAR „Mér finnst það nátt-
úrulega ótrúlegt að það sé hægt
að úrskurða svona grein ólög-
mæta,“ segir Játvarður Jökull
Ingvarsson, framkvæmdastjóri
símafyrirtækisins Hringdu.
Neytendastofa úrskurðaði á
mánudaginn að aðsend grein,
sem Játvarður skrifaði í Morg-
unblaðið á síðasta ári, væri brot-
leg gegn lögum um eftirlit með
viðskiptaháttum og markaðs-
setningu. Í greininni eru gerðar
athugsemdir við þjónustu Símans
og fleiri símafyrirtækja, því
velt upp að verðsamráð sé
á netmarkaði og fjallað um
þjónustu Hringdu. Neyt-
endastofa telur greinina
vera samanburðaraug-
lýsingu gagnvart þjón-
ustu Símans, sem kærði
Hringdu vegna greinar-
innar. Þá voru aug-
lýsingar Hringdu
einnig
úrskurðaðar
brotlegar.
Meðal þess sem Játvarður
skrifar um er skoðun hans
á ljósleiðurum og ljósneti.
„Ef ég væri til að mynda
að flytja bíla til landsins,
og mér fyndist Samskip
betra en Eimskip, mætti
ég þá ekki tjá mig um það
hvort mér fyndist betra?“
spyr Játvarður að lokum.
- vg
Skrifaði umdeilda grein um samskiptamarkaðinn sem var úrskuðuð ólögleg:
Aðsend grein braut gegn lögum
GRIKKLAND, AP Gríska þingið sam-
þykkti í gær að svipta sex þing-
menn Gullinnar dögunar þinghelgi
svo hægt yrði að sækja þá til saka.
Nokkrir helstu leiðtogar flokks-
ins voru handteknir í síðasta mán-
uði, sakaðir um að reka flokk-
inn eins og glæpasamtök. Morð
á þekktum tónlistarmanni, sem
hafði gagnrýnt útlendingahatur
Gullinnar dögunar, varð til þess
að stjórnvöld réðust til atlögu gegn
flokknum.
Gullin dögun er flokkur harð-
skeyttra þjóðernissinna sem náði
töluverðu fylgi í þingkosningum
á síðasta ári, þegar skuldakrepp-
an hafði komið harkalega niður á
almenningi í Grikklandi. - gb
Gríska þingið:
Sex þingmenn
missa þinghelgi
NÝSKÖPUN Íslenska fyrirtækið
Marinox ehf. hlaut á dögunum
veglegan rannsóknar- og þróunar-
styrk á vettvangi Eurostars-áætl-
unarinnar sem 33 ríki í Evrópu eru
aðilar að.
Verkefni Marinox og samstarfs-
aðila var metið fjórða besta verk-
efnið af 594 verkefnum.
Verkefnið snýr að því að full-
vinna verðmæt lífvirk efni úr
íslenskum stórþörungum, sem
meðal annars má nota sem fæðu-
bótarefni eða sem íblöndunarefni í
ýmsar neytendavörur.
Marinox er nýsköpunarfyrir-
tæki sem runnið er undan rifjum
Matís. - shá
Fjórða af 594 verkefnum:
Fá Evrópustyrk
í þararannsókn
NÁTTÚRUFAR Félag refa- og
minkaveiðimanna deilir áhuga
Náttúrufræðistofnunar á mark-
vissri skráningu og rannsóknum
á veiddum refum á Vestfjörðum
í samstarfi við Melrakkasetur
Íslands og fleiri aðila.
Þetta kemur fram í bréfi veiði-
mannanna til bæjarráðs Ísafjarð-
ar sem skorar á umhverfisráðu-
neytið að leggja Melrakkasetrinu
til það fjármagn sem til þarf til
þessara rannsókna og stofnmats
refa á Vestfjörðum. - gar
Bæjarráð Ísafjarðar:
Ríkið borgi
refarannsókn
KÓPAVOGUR Félagsmálaráð Kópa-
vogs hvetur nú bæjarráð til að
taka þátt í útboði sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu um aksturs-
þjónustu við fatlað fólk. Kópavogur
hefur um árabil staðið utan þessa
samstarfs og fengið gagnrýni frá
fötluðum vegna þessa. „Þjónustu-
stig Ferðaþjónustu fatlaðra er ein-
faldlega ekki ásættanlegt í mörg-
um tilvikum, þó að í öðrum sé það
vissulega fullnægjandi,“ sagði til
dæmis Kristinn Halldór Einars-
son, formaður Blindrafélagsins, á
árinu 2010. - gar
Leggja til stefnubreytingu:
Séu í samfloti í
akstursþjónustu
JÁTVARÐUR JÖKULL
INGVARSSON
REFUR Ísfirðingar vilja mat á refastofn-
inum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
REKNIR AF ÞINGI Þingmenn Gullinnar
dögunar í þingsal. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FERÐAÞJÓNUSTA Fatlað fólk nýtir
ferðaþjónustu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
EFNAHAGSMÁL Hagvöxtur mun
aukast um 0,3 prósentustig
og verður 1,7 prósent á þessu
ári samkvæmt spá Greiningar
Íslandsbanka. Ingólfur Bender,
aðalhagfræðingur bankans, telur
að framkvæmdir í Helguvík kom-
ist á skrið á árinu 2015 og hag-
vöxtur verði 2,7 prósent þá.
„Þetta er ekki mikill hagvöxtur
í samanburði við það sem hag-
kerfið hefur verið að vaxa um á
undanförnum áratugum,“ segir
Ingólfur. -eh
Fjármálaþing Íslandsbanka:
Hagvöxturinn
muni aukast
VEISTU SVARIÐ?