Fréttablaðið - 17.10.2013, Page 26
17. október 2013 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 26
Áslaug Friðriksdóttir,
borgarfulltrúi Sjálfstæð-
isflokksins og leiðtogi
flokksins í velferðarráði,
segir í viðtali í helgar-
blaði Fréttablaðsins að
meirihlutinn í Reykjavík
hafi gert sín stærstu mis-
tök í upphafi kjörtíma-
bilsins, þegar ákveðið var
að hækka fjárhagsaðstoð
þrátt fyrir að augljóst
væri að slíkt myndi draga
úr fjárhagslegum hvata fólks til
að fara út á vinnumarkað.
Í viðtalinu stillir Áslaug dæm-
inu þannig upp að þeir sem þurfa
að reiða sig á fjárhagsaðstoð
borgarinnar séu baggi á „venju-
legum“ fjölskyldum. Þetta rök-
styður borgarfulltrúinn með því
að draga fram meintan kostn-
að hverrar fjölskyldu í Reykja-
vík vegna fjárhagsaðstoðar
sem Áslaug segir að hafi aukist
um 250 prósent frá árinu 2008.
„Þá hafi þessi kostnaður numið
rúmum 52 þúsundum króna á ári
á hverja fjölskyldu en sé kominn
upp í rúmar 130 þúsund krónur.“
Ábyrgð Sjálfstæðisflokksins
Velferðarleiðtogi Sjálfstæðis-
flokksins í borginni nefnir það
ekki að aukinn kostnaður vegna
fjárhagsaðstoðar stafar ekki
af hækkun bóta, heldur mikilli
fjölgun fjárhagsaðstoðarþega.
Þessi mikla fjölgun fólks sem
neyðist til að lifa á aðstoðinni er
bein afleiðing efnahagshruns-
ins, en þá jókst atvinnuleysi um
meira en 700 prósent á örfáum
mánuðum.
Hrunið skrifast fyrst og
fremst á Sjálfstæðisflokkinn og
í raun ætti Áslaug og aðrir full-
trúar flokksins frekar að
skammast sín og biðja
fórnalömbin afsökunar
en að stilla upp kröfum
um að tekjur þeirra verði
lækkaðar enn frekar.
Lækkun fjárhagsaðstoðar
Staðreyndin er sú að frá
2008 hefur fjárhagsað-
stoðin í Reykjavík lækk-
að að raunvirði hjá meiri-
hluta þeirra sem hana
þiggja og sennilega hjá þeim
öllum.
Fyrsta verk núverandi meiri-
hluta var að breyta reglum um
fjárhagsaðstoð í Reykjavík þann-
ig að búinn var til nýr hópur
sem nefndur var „einstaklingar
sem búa með öðrum“ og er fjöl-
mennasti hópur þeirra sem njóta
aðstoðarinnar, en þessi hópur var
færður verulega niður í tekjum.
Síðan var fjárhagsaðstoðin hækk-
uð til þeirra sem tilheyra efsta
hópnum, en aðrir fengu ekki
verðbætur það árið.
Núverandi reglur
Núverandi reglur borgarinnar
um fjárhagsaðstoð eru svona:
1 Grunnfjárhæð fjárhagsað-stoðar til einstaklings, 18
ára eða eldri, sem rekur eigið
heimili getur numið allt að
163.635 kr. á mánuði.
(Með rekstri eigin heimilis er
átt við þær aðstæður þegar við-
komandi býr í eigin húsnæði eða
leigir húsnæði og leggur fram
þinglýstan húsaleigusamning um
húsnæðið.)
2 Grunnfjárhæð fjárhagsað-stoðar til hjóna/sambúðar-
fólks getur numið allt að 245.453
kr. á mánuði.
3 Grunnfjárhæð fjárhagsað-stoðar til einstaklings sem
býr með öðrum (leigir húsnæði
án þinglýsts leigusamnings eða
hefur ekki aðgang að húsnæði)
er 137.871 kr. á mánuði.
4 Grunnfjárhæð fjárhagsað-stoðar til einstaklings sem býr
hjá foreldrum er 81.818 kr. Hafi
einstaklingur, sem fellur undir
framangreint, forsjá barns, skal
viðkomandi reiknuð grunnfjárhæð
sem nemur 137.871 kr. á mánuði.
Hópur 3, sem áður tilheyrði
hópi 1 og er eins og áður sagði
stærsti hópurinn, hefur dregist
verulega aftur úr og reyndar var
reglum einnig breytt þannig að
einstæðir foreldrar sem búa hjá
foreldrum sínum voru færðir úr
hópi 1 í hóp 3.
Kaldrifjuð nýfrjálshyggja
Þessar tekjur, sem eru langt
undir fátækramörkum, verða
þeir sem neyðast til að lifa á fjár-
hagsaðstoð að láta sér duga, jafn-
vel árum saman. Ef marka má
Áslaugu Friðriksdóttur verða
bæturnar lækkaðar enn frekar
og nú með það að markmiði að
neyða fólk til að sætta sig við allt
of lág laun, nái sjálfstæðismenn
völdum Í Reykjavík.
Nýfrjálshyggjan og fátækir
Við vinkonurnar vorum að
ræða málin um daginn. Sjö
okkar eru í háskólanámi.
Við erum allar í mismun-
andi fögum; hjúkrunar-
fræði, lyfjafræði, sálfræði,
félagsráðgjöf, ferðamála-
fræði, verkfræði og við-
skiptafræði. Við erum sem
sagt mjög ólíkar. Samt sem
áður vorum við sammála
um að við værum allar
með einn eða tvo kenn-
ara sem við vildum helst
að gerðu eitthvað í kennslutækni
sinni.
Innantómur glærulestur
Mig langaði bara að skrifa smá
vitundarvakningu fyrir kennara-
samfélagið og hvetja kennara til að
gera kennslu líflega. Ég get sagt
ykkur það, kæru kennarar, að inn-
antómur glæruupplestur er ekki
það sem flestir nemendur sækj-
ast eftir, við kunnum jú allflest að
lesa, er það ekki? Talið í kringum
glærurnar, hoppið upp á borð og
segið frá Sókrates eða gangið um
salinn og talið um hreyfingu sam-
einda, pH-gildi blóðs eða siðavenj-
ur Hadzabe-þjóðflokksins í Afríku.
Haldið athygli nemend-
anna! Við getum alveg
lesið glærurnar sjálf.
Klárið þetta með stæl
Nú er misserið komið á seinni
helming og því um að gera að
rífa sig upp og klára þetta með
stæl! Þið eigið enn von til að
verða skemmtilegi kennarinn eða
allavega kennarinn sem maður
lærir af. Námið getur verið áhuga-
vert og kennslan drep. En námið
verður ekki skemmtilegt fyrr
en kennslan og námið tvinnast
almennilega saman, alveg eins og
ís með dýfu er ekki ís með dýfu ef
það vantar dýfuna. Ég óska þess
að þið takið þetta til ykkar, elsku
kennarar, því þið eruð lykillinn að
skemmtilegu námi.
Rífið ykkur upp, stingið ísnum í
dýfuna og gerið allt vitlaust!
Kennarar, hvar
er dýfan?SAMFÉLAG
Þorleifur
Gunnlaugsson
varaborgarfulltrúi VG
➜ Hrunið skrifast fyrst og
fremst á Sjálfstæðisfl okk-
inn og í raun ætti Áslaug
og aðrir fultlrúar fl okksins
frekar að skammast sín og
biðja fórnarlömbin afsök-
unar en að stilla upp kröfum
um að tekjur þeirra verði
lækkaðar enn frekar.
MENNTUN
Tinna
Sigurðardóttir
hjúkrunarfræðinemi
➜ Þið eigin enn von
til að verða skemmti-
legi kennarinn eða
allavega kennarinn
sem maður lærir af.
www.saft.is
KENNDU BARNINU ÞÍNU AÐ
SKOÐA EFNI Á NETINU MEÐ
GAGNRÝNUM HÆTTI
Íslensku landsliðin vilja þakka stuðnings-
mönnum fyrir MAGNAÐAN stuðning í leikjum
að undanförnu.
Án ykkar hefðum við ekki komist svona langt
og við erum alls ekki hætt.
SJÁUMST Á NÆSTA LEIK!
takk kærlega!