Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.10.2013, Qupperneq 28

Fréttablaðið - 17.10.2013, Qupperneq 28
17. október 2013 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 28 Haustið er komið og skólabörn þyrpast í skólana, flest öll kát og glöð og hlakka til vetrarins. Við foreldrarnir erum líka glöð með að allt skuli vera komið í rútínu. Á næstu dögum eða vikum verðum við kölluð út í skólana og okkur boðið að skoða námsefni og kynna okkur starfið í vetur. Þá fáum við smá hnút í magann. Við vitum nefnilega að nú fer kennarinn að „kvabba“ í okkur um að taka að okkur bekkjarfulltrúastarfið og bjóða okkur fram í foreldrafélagið. Við fyllumst kvíða og hugsum um alla vinnuna, heimilisstörfin, skutlið, félagsstarfið og allt annað sem við þurfum að sinna í vetur. Hvernig í ósköpunum á ég að geta bætt því á mig að taka þátt í for- eldrastarfi í skóla barnsins míns? Hvernig get ég komið mér undan því að vera bekkjarfulltrúi í vetur? Tekur nokkur eftir því ef ég mæti ekki á aðalfund foreldrafélagsins? Skólaráð, hvað er nú það? Ég kann ekkert að skipuleggja bingó. Getur ekki einhver annar gert þetta? Rannsóknir hafa sýnt að áhugi og stuðningur foreldra við nám og skólagöngu barna sinna er stærsti einstaki þátturinn sem hefur jákvæð áhrif á námsárangur og líðan barna. Í því samhengi er auð- vitað mikilvægast að hver og einn sýni námi barnsins síns áhuga, kenni því að nám sé mikilvægt og hvetji það til dáða. En ef foreldr- ar taka höndum saman og halda utan um bekkinn, árganginn og nemendahópinn í heild sinni, hafa frumkvæði að því að efla bekkjar- anda og stuðla að jákvæðum skóla- brag í samvinnu við kennara og skólastjórnendur getum við aukið til muna þau jákvæðu áhrif sem stuðningur okkar hefur. Bekkjarfulltrúar hafa ekki eingöngu það hlutverk að halda bekkjarkvöld tvisvar á ári. Þeir eru fulltrúar bekkjarins gagnvart foreldrafélaginu og skólastjórn. Þeir skipuleggja vetrarstarfið og gæta hagsmuna barnanna í bekkn- um, í samvinnu við aðra foreldra í bekknum. Þeir taka að sér verk- stjórn en allir foreldrar í bekkn- um ættu að taka þátt í starfinu með einhverjum hætti á hverjum vetri. Verkefni vetrarins geta verið mörg og ólík eftir aldri nemenda og áhuga forelda. Vinahópar, foreldra- rölt, fræðslukvöld, stuðningur við kennara, bekkjarkvöld, fjáraflanir, þátttaka í starfi foreldrafélagsins og svo mætti lengi telja. Bein áhrif á starfsemi Foreldrafélagið á ekki heldur bara að halda bingó og vorhátíð heldur einnig leggja sitt af mörkum til að efla skólabrag og jákvæð sam- skipti, fylgjast með að ákvæði aðal- námskrár séu uppfyllt, farið sé að lögum varðandi kennslustunda- fjölda og aðbúnað nemenda, upp- lýsa fulltrúa foreldra í skólaráði um afstöðu foreldra til hinna ýmsu mála og gæta hagsmuna barna og foreldra í hvívetna. Hér er þó ekki verið að gera lítið úr þeim hluta sem snýr að hópefli og skemmtun- um í skólum. Foreldrar hafa bein áhrif á starf- semi skólans í gegnum skólaráðin þar sem þeir eiga að minnsta kosti tvo fulltrúa. Fulltrúar foreldra í skólaráði eru kosnir samkvæmt reglum foreldrafélagsins og er afar mikilvægt að fulltrúarnir séu í góðum tengslum við bakland sitt og að upplýsingaflæði milli þeirra og foreldrafélagsins sé virkt. Sem betur fer fá ekki allir for- eldrar kvíðahnút í magann þegar kallað er eftir starfskröftum þeirra í skólanum. Sumir taka við keflinu fullir tilhlökkunar og telja framlag sitt á þessu sviði ekki ein- ungis sjálfsagt heldur mikilvægan hluta af foreldrahlutverkinu. For- eldrastarf þarf ekki að vera leiðin- leg kvöð. Það er okkar sjálfra að skipuleggja starfið þannig að það verði bæði skemmtilegt og gefandi. Stærsti ávinningurinn er glöð og góð börn sem gengur vel í námi, líður vel í skólanum sínum og finna fyrir augljósum stuðningi foreldra sinna við skólastarfið. Ætlar þú að taka þátt í foreldrastarfinu í vetur eða ætlar þú að láta öðrum það eftir að skapa gott umhverfi fyrir barnið þitt í skólanum? Ekki bara bingóstjóri Þetta er ákall til kvenfélaga á Íslandi og annarra félagasam- taka sem unnið hafa að uppbygg- ingu í heilbrigðiskerfinu með gjafafé. Umönnun sjúkra, fatlaðs fólks, aldraðra og stuðningur við þá sem minna mega sín hefur lengst af hvílt á herðum kvenna þessa lands. Meðfram heimilis- störfum og hússtjórn varð það einnig þeirra hlutskipti gegn- um aldirnar að sinna veikum og hjálparþurfi inni á heimilunum. Það var fyrir framsýni og hvatn- ingu kvenna að aðstæðum fyrir þessa hópa var breytt – og til hins betra. Fyrstu sjúkrastofnanir lands- ins og raunar flestar umönnun- ar- og hjúkrunarstofnanir eru byggðar fyrir hvatningu kvenna og að hluta til fyrir þeirra fram- lag. Kvenfélög og síðar ýmis önnur félagasamtök, þ.m.t. karlar einnig, hafa um áratugaskeið sinnt hjúkrunarstofnunum lands- ins með gjafafé. Þetta gjafafé hefur að miklu leyti staðið undir fjármögnun til tækjakaupa hjá flestum eða öllum sjúkrahúsum landsins. Þess vegna hljóta þessi félagasamtök í landinu að hafa eitthvað að segja um niðurskurð- araðgerðir stjórnvalda. Ríkisstjórnin hefur nú lagt til svo blóðugar niðurskurðarað- gerðir að ekki verður við unað. Stöndum vörð um heilbrigðiskerf- ið – og þær stofnanir sem félaga- samtök hafa verið að styðja. Saman getum við fundið leiðir til sparnaðar sem ekki bitna svo harkalega og ósvífið á heilbrigð- isþjónustunni í landinu. Leitum leiða og vinnum saman. Við hvetjum kvenfélög og líkn- arfélög, svo og alla landsmenn til að fylkja liði, þétta raðirnar og mótmæla harðlega. Það verður ekki aftur snúið ef fyrirætlanir ráðamanna ná fram að ganga og þá er viðbúið að umönnunarhlut- verkið færist aftur inn á heimili þessa lands. Með öðrum orðum; við hrökkvum áratugi aftur í tím- ann í heilbrigðisþjónustu. Látum það ekki henda íslenskt samfélag! Nú er nóg komið – fylkjum liði! ➜ Fyrstu sjúkrastofnanir landsins og raunar fl estar umönnunar- og hjúkrunar- stofnanir eru byggðar fyrir hvatningu kvenna og að hluta til fyrir þeirra fram- lag. Kvenfélög og síðar ýmis önnur félagasamtök, þ.m.t. karlar einnig, hafa um áratugaskeið sinnt hjúkr- unarstofnunum landsins með gjafafé. ➜ Foreldrastarf þarf ekki að vera leiðinleg kvöð. Það er okkar sjálfra að skipuleggja starfi ð þannig að það verði bæði skemmtilegt og gef- andi. HEILBRIGÐISMÁL Hólmfríður Sólveig Haraldsdóttir húsfreyja og ferðamálafræðingur Margrét Ingibjörg Ríkarðsdóttir forstöðumaður Elsa María Guðmundsdóttir, verkefnastjóri og aðstoðarforstöðumaður MENNTUN Bryndís Jónsdóttir framkvæmdastjóri SAMFOK Margrét Valgerður Helgadóttir formaður SAMFOK Láttu veðrið ekki stöðva þig util if. isGLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND Á R N A S Y N IR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.