Fréttablaðið - 17.10.2013, Síða 42
KYNNING − AUGLÝSING FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2013
Mynstur dekkja hefur nokkuð að segja um gæði þeirra. Samkvæmt
reglum þurfa sumardekk til dæmis að vera með mynstur sem er að
minnsta kosti 1,6 mm að dýpt og dekkin mega ekki vera miseydd eða
af mismunandi gerðum. Í vetrarakstri þarf mynstur að vera dýpra eða
allt að 3 til 4 mm.
Í rannsókn frá 2006 kemur fram að millimetrarnir geta skilið milli
lífs og dauða þegar kemur að mynstri dekkja. Dekk með 5 mm, 3 mm
og 1,6 mm mynsturdýpt voru prófuð á blautu malbiki. Hemlunarvega-
lengd var mæld og niðurstöðurnar sýndu að þegar notuð voru dekk
með minnstu mynsturdýptina var vegalengdin sem það tók að stöðva
bílinn miklu lengri en þegar mynstrið var dýpra.
Á vef Arctic Trucks er að finna töflu sem sýnir mismunandi virkni
grófmynstraðra og fínmynstraðra vetrardekkja við mismunandi að-
stæður. Hana má sjá hér:
Aðstæður Grófmynstruð dekk Fínmynstruð dekk
Í blautum snjó og slabbi Góð Frekar slæm
Í drullu Góð Sæmileg
Í þurrum snjó Sæmileg Góð
Á þjöppuðum snjó Frekar slæm Góð
Á ís Frekar slæm Sæmileg
Hljóð Frekar slæmt Gott
Mismunandi virkni
dekkjamynsturs
Mynsturdýpt getur skipt sköpum.
Steinar Sigurðsson sölustjóri segir að fyrirtækið hanni og framleiði dekk fyrir breytta
jeppa. Dekkin eru 38x15,5x15".
„Þetta eru einu dekkin sem fram-
leidd eru fyrir snjóakstur í heimin-
um. Fyrstu dekkin komu á mark-
að árið 2005 og hafa vakið athygli
víða. Þeir sem eru í jöklaferðum
nota þessi dekk og aðrir þeir sem
eru á ferðinni á fjöllum. Þau hafa
reynst afar vel,“ segir Steinar.
Artic Trucks rekur fyrirtæki í
Noregi þar sem bílum er breytt
f yrir almennan markað, auk
þess sem unnið er fyrir herinn.
Sömuleiðis er fyrirtækið með
útibú í Dúbaí. „Við vorum að gera
samning við Kasakstan en einn-
ig höfum við verið að vinna með
einu stærsta Toyota-umboðinu í
Rússlandi.“
Fyrir utan eigin dekk er Artic
Trucks með vönduð bandarísk
jeppadekk fyrir jeppa og jepplinga.
„Við höfum verið að flytja inn hin
þekktu Dick Cepek-dekk sem eru
afar vönduð og þekkt fyrir gott
grip og endingu. Þetta eru heils-
ársdekk á góðu verði en fyrirtækið
hefur framleitt hjólbarða í fimm-
tíu ár.“
Artic Trucks er með mikil um-
svif á Suðurpólnum og hefur sent
breytta jeppa þangað. Einn bíll fór
fyrir tveimur vikum og annar er
að fara í gám um þessar mundir.
„Við eigum nokkra bíla á suður-
pólnum og nokkrir til viðbótar
eru í pöntun. Bílarnir hafa stað-
ið sig vel þarna miðað við snjóbíl-
ana sem áður voru. Auk þess hafa
þeir komið vel út í rekstrarkostn-
aði. Það eru margir leiðangrar sem
fara þarna um og töluvert aukning
í ferðalögum á suðurpólnum. Við
erum til dæmis að fara í leiðang-
ur með Harry prins en hann var
með okkur í þjálfun á Langjökli í
sumar,“ segir Steinar.
Artic Trucks hefur víðtæka
reynslu af jöklaferðum og er með
réttu tækin í slíkar ferðir. Starfs-
menn fyrirtækisins lifa miklu æv-
intýralífi og eru stundum í burtu í
tvo mánuði í einu.
Arctic Trucks leggur áherslu á
faglega þjónustu og ráðgjöf til við-
skiptavina sinna.
Fyrirtækið er staðsett að Klett-
hálsi 3, sími 540 4900, heimasíð-
an er arctictrucks.is
Hanna eigin hjólbarða
Arctic Trucks er leiðandi fyrirtæki fyrir þá sem hafa áhuga á jeppum og
ferðalögum. Fyrirtækið er þekkt víða um heim fyrir jeppabreytingar,
sérhönnuð jeppadekk og gott úrval aukahluta.
Steinar Sigurðsson, sölustjóri hjá Arctic Trucks, með nýjum, breyttum jeppum. Fyrirtækið
hefur vakið athygli um allan heim fyrir bíla sína og er sannarlega í útrás. MYND/ARNÞÓR
Villidýrið á meðal vetrardekkjanna.
Skútuvogi 8 / Sími 567 6700 / vakahf@vakahf.is / vakahf.is
Vetradekk, fyrir íslenskar aðstæður,
á felgum tilbúin undir bílin á frábæru
tilboðsverði. Sendum út um allt land.
Dekkjaþjónusta BifreiðaflutningarVarahlutirBifreiðaverkstæði Úrvinnsla bíla Smurþjónusta