Fréttablaðið - 17.10.2013, Page 49

Fréttablaðið - 17.10.2013, Page 49
tilkynningar tilkynningaratvinna FIMMTUDAGUR 17. október 2013 | TÍMAMÓT | 33 AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL Bláskógabyggð, Grímsnes-og Grafningshreppi, Hrunamannahreppi, Skeiða-og Gnúpverjahreppi, Flóahreppi og Ásahreppi Samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst lýsing skipulagsverkefnis fyrir eftirfarandi aðalskipulagsbreytingu: 1. Breyting á Aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2008-2020 í landi Torfastaða. Svæði fyrir verslun- og þjónustu vestan við Álftavatn. Samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar eftirfarandi tillögur að breytingu á aðalskipulagi 2. Breyting á Aðalskipulagi Þingvallasveitar 2004-2016 í Bláskógabyggð, Brennimelslína 1. Færsla á línu og möguleg stækkun úr 220kV í 400 kV. 3. Breyting á Aðalskipulagi Biskupstungnahrepps 2000-2012, í Bláskógabyggð, á spildu úr landi Kjarnolta. Landbúnaðarsvæði í stað frístundabyggðar í tengslum við stofnunar nýs lögbýlis. Samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar lýsingar skipulagsverkefnis fyrir að eftirfarandi deiliskipulagsáætlanir: 4. Deiliskipulag fyrir Skálholt í Bláskógabyggð. Heildarendurskoðun deiliskipulags fyrir Skálholtsjörðina. 5. Deiliskipulag fyrir nýtt lögbýli við Brúará úr landi Efri-Reykja í Bláskógabyggð. 6. Deiliskipulag fyrir verslunar- og þjónustusvæði á spildu úr landi Kjóastaða 1 í Bláskógabyggð (lnr. 220934). Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar tillögur að eftirfarandi deiliskipulagsáætlunum: 7. Deiliskipulag og umhverfisskýrsla fyrir fjallasel við Hlöðuvelli í Bláskógabyggð 8. Deiliskipulag og umhverfisskýrsla fyrir skálasvæði við Hagavatn í Bláskógabyggð. 9. Deiliskipulag frístundabyggðar í landi Iðu II, Bláskógabyggð, á svæði milli gamla og nýja Skálholtsvegar. 10. Deiliskipulag fyrir lögbýlið Yrpuholt í Flóahreppi. Íbúðarhús, gestahús, hesthús og skemma. 11. Deiliskipulag alifuglabús í landi Miklaholtshelli, Flóahreppi, austan . 12. Deiliskipulag nýs lögbýlis (Reyrhagi) úr landi Gafls í Flóahreppi. Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu viðkomandi sveitarstjórna og á skrifstofu skipulagsfull- trúa, Dalbraut 12, Laugarvatni á skrifstofutíma frá 9-16. Að auki er hægt að nálgast nánari lýsingu á tillögunum og tillögurnar sjálfar á vefslóðinni http://www.granni.is/uppsveitirogfloahr/auglysingar.htm. Skipulagstillögur nr. 1 - 6 eru í kynningu frá 17. til 30 október 2013 en tillögur nr. 7-12 frá 17. október til 29. nóvember 2013. Athugasemdir og ábendingar við tillögur nr. 1 - 6 þurfa að berast skipulagsfulltrúa í síðasta lagi 30. október 2013 en 29. nóvember fyrir tillögur nr. 7 - 12. Athugasemdir og ábendingar skulu vera skriflegar. Pétur Ingi Haraldsson Skipulagsfulltrúi petur@sudurland.is AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL Bláskógabyggð, Grímsnes-og Grafningshreppi, Hrunamannahreppi, Skeiða-og Gnúpverjahreppi, Flóahreppi og Ásahreppi Samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt niðurstaða sveitarstjórna varðandi eftirfarandi aðalskipulagsbreytingar. 1. Breyting á Aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2008-2020 í landi Snæfoksstaða við Rauðhólahverfi. Frístundabyggð og landbúnaðarsvæði. Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi 2. október 2013 tillögu að breytingu á aðalskipulagi sveitar- félagsins í landi Snæfoksstaða við Rauðhólahverfi. Annars vegar er gert ráð fyrir að 6 ha lands við norðausturhluta svæðisins verði skilgreint sem landbúnaðarsvæði í stað frístundabyggðar og hinsvegar er gert ráð fyrir að svæði fyrir frístundabyggð stækki um 6 ha við suðvesturhluta svæðisins. Að hluta er um lagfæringu á gögnum að ræða þar sem gildandi deiliskipulag frístundabyggðar nær út fyrir skilgreint svæði fyrir frístundabyggð í aðalskipulaginu (suðvestur hluti). Það svæði sem verður að landbúnaðarsvæði nær yfir frístundahúsalóð með frístundahúsi sem ráðgert er að breyta í íbúðarhús með tilheyrandi breytingu á deiliskipulagi. Breytingin var talin óveruleg þar sem breytingin hefur ekki í för með sér breytingu á leyfilegu byggingarmagni heldur eingöngu skráningu á mannvirki sem þegar hefur verið byggt ogn er því ekki talin hafa áhrif á einstaka aðila eða hafa áhrif á stór svæði. 2. Breyting á Aðalskipulagi Biskupstungnahrepps 2000-2012 (Bláskógabyggð) fyrir spildu úr landi Kjóastaða 1. Verslun- og þjónusta í stað landbúnaðarsvæðis. Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi 10. október 2013 tillögu að breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins á spildu úr landi Kjóastaða. Í breytingunni felst að gert er ráð fyrir svæði fyrir verslun- og þjónustu í stað landbúnaðarsvæðis á svæði vestan við afleggjara að bæjartorfu Kjóastaða. Breytingin var talin óveruleg þar sem þegar er gert ráð fyrir svæði fyrir verslun- og þjónustu á svæði hinum megin afleggjarans auk þess sem á svæðinu er þegar stunduð töluverð ferðaþjónusta. 3. Breyting á Aðalskipulagi Laugardalshrepps 2000-2012 (Bláskógabyggð) í landi Miðdalskots. Landbúnaðarsvæði í stað frístundabyggðar. Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi 10. október 2013 tillögu að breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins í landi Miðdalskots. Annars vegar er um að ræða breytingu á um 1.500 fm lóð úr frístundabyggð í landbúnaðarsvæði þar sem ráðgert er að byggja íbúðarhús sem tilheyrir búskap á jörðinni. Hinsvegar er um að ræða breytingu á um 1 ha spildu úr frístundabyggð í landbúnaðarsvæði og er það fyrirhugað að byggja húsnæði tengt ferðaþjónustu bænda. Breytingin var talin óveruleg þar sem um er að ræða breytingu á mjög litlu svæði til samræmis við landnotkun aðliggjandi lands. Þá verður deiliskipulag svæðisins bæði auglýst og kynnt fyrir aðliggjandi hagsmunaaðilum. Pétur Ingi Haraldsson Skipulagsfulltrúi petur@sudurland.is Sveitarfélagið Hornafjörður / Hafnarbraut 27 / S: 4708000 / www.hornafjordur.is Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar auglýsir hér með tillögu að deiliskipulagi Árnaness 5 Nesjum samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Markmið skipulagsins felst í, að sníða ramma utan um uppbyggingu í ferðaþjónustu á jörðinni. Deiliskipulag ásamt greinargerð verður til sýnins í Ráðhúsi Hornafjarðar Hafnarbraut 28 frá og með 17. okt. til og með 28. nóv. 2013 Tillagan er einnig aðgengilega á heimasíðu sveitarfélagisns http://www2.hornafjordur.is/stjornsysla undir skipulag í kynningu. Þeim sem telja sig eiga hagsmuni að gæta er hér með gefin kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 28. nóv. og skal skilað í Ráðhús Hornafjarðar Hafnarbraut 28, 780 Höfn eða á netfangið skipulag@hornafjordur.is Hver sá sem ekki gerir athugasemd við tillöguna innan tilskilins frests telst henni sammála. F.h. Sveitarfélagsins Hornafjarðar 17. okt. 2013 Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson Umhverfis-og skipulagsfulltrúi. Auglýsing um deiliskipulag Árnaness 5 Störf á heimili fyrir fólk með fötlun Ás styrktarfélag Þroskaþjálfar, félagsliðar, sjúkraliðar og stuðningsfulltrúar óskast til starfa á heimili við Kópavogsbraut. Umsækjendur þurfa að vera 20 ára eða eldri. Um er að ræða vaktavinnu, morgunvaktir, kvöldvaktir, helgarvaktir og/eða næturvaktir. Stöðurnar eru lausar frá 1. nóvember eða eftir nánara samkomulagi. Umsóknir þurfa að berast fyrir 25.október. Hlutverk starfsfólks í búsetu er fyrst og fremst fólgið í því að aðstoða íbúa í daglegu lífi og efla sjálfstæði þeirra. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Áss styrktarfélags í síma 4140500 á virkum dögum milli kl. 09.00 og 15.00. Upplýsingar um félagið og atvinnuumsókn má finna á heimasíðu þess www.styrktarfelag.is, einnig má skila umsóknum á netfangið erna@styrktarfelag.is Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningum. Seltjarnarnesbær seltjarnarnes.is Laus störf Nánari upplýsingar er að finna á vef Seltjarnarnesbæjar Umsóknum skal skila í síðasta lagi 31. október n.k. á netfangið postur@seltjarnarnes.is Fjölbreytt og spennandi störf hjá Seltjarnarnesbæ • Leikskóli Seltjarnarness auglýsir eftir starfsmanni í sérstuðning • Sundlaugarvörður í Sundlaug Seltjarnarness • Sérfræðing hjá hita, - vatns- og fráveitu Seltjarnarness

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.