Fréttablaðið - 17.10.2013, Qupperneq 62
17. október 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING BÍÓ | 46
Spennumyndin Gravity, sem skartar
Söndru Bullock og George Clooney
í aðalhlutverkum, verður frumsýnd
annað kvöld. Á frumsýningarhelg-
inni í Bandaríkjunum halaði mynd-
in inn sem nemur 6,6 milljörðum
króna og varð því aðsóknarmesta
októberfrumsýning frá upphafi.
Gravity segir frá tveimur geim-
förum sem komast í hann krapp-
an þegar geimskutla þeirra eyði-
leggst. Nýliðinn Ryan Stone þeytist
út í tómið og kollegi hennar Matt
Kowalski fer á eftir henni. Þau ná
aftur til skutlunnar en þurfa að
taka á honum stóra sínum eigi
þau að lifa af því takmarkað-
ar súrefnisbirgðir eru eftir í
skutlunni.
Sandra Bullock og George
Clooney eru einu leikarar
myndarinnar sem eru í mynd.
Ed Harris, Paul Sharma, Amy
Warren og Basher Savage ljá
öðrum persónum myndarinn-
ar raddir sínar.
Leikstjóri myndarinnar er
hinn mexíkóski Alfonso Cuar-
ón sem leikstýrt hefur mynd-
um á borð við A Little Princess frá
1995, Y Tu Mamá También, Harry
Potter and the Prisoner of Azkaban
og Children of Men. Cuarón skrif-
aði einnig handrit myndarinnar
ásamt syni sínum, Jonás Cuarón.
Leikstjórinn er góðvinur Guiller-
mos del Toro og Alejandros Gonzá-
lez Iñárritu og ganga þremenning-
arnir gjarnan undir nafninu The
Three Amigos of Cinema innan
kvikmyndabransans.
Flestar tökur með leikkonunni
Söndru Bullock fóru fram innan í
risavöxnu málmhylki. Tók það leik-
konuna töluverðan tíma að komast
inn í og út úr hylkinu og því dvaldi
hún þar inni í allt að tíu klukku-
stundir dag hvern. Leikstjórinn og
annað samstarfsfólk Bullock reyndu
að gera hylkið, sem gekk undir nafn-
inu búr Sandy, eins huggulegt og
unnt var til að koma í veg fyrir að
leikkonan fengi kvíðakast eða inni-
lokunarkennd á meðan hún hírðist í
hylkinu. Tökuliðið brá meðal annars
á það ráð að halda teiti í hvert sinn
sem Bullock mætti til vinnu svo hún
væri andlega tilbúin fyrir hylkið.
- sm
Hírðist innan í hylki
í tíu klukkustundir
Sandra Bullock og George Clooney fara með aðalhlutverkin í myndinni Gravity.
Tökur með Bullock fóru að mestu fram í málmhylki sem kallaðist búr Sandy.
Daði Einarsson hjá Framestore Reykjavík er einn af mönnunum á bak við
útlit myndarinnar og starfaði hann náið með leikstjóranum við gerð hennar.
„Ég var í hálft ár með leikstjóranum Alfonso Cuarón að búa bíómyndina
til. Við gerðum allar senurnar og gerðum myndina í raun alveg tilbúna,
nema bara í minni gæðum. Þannig fær leikstjórinn sína sýn á myndina.
Við horfðum saman á myndina og leikararnir horfðu líka á hana áður en
tökur hófust,“ sagði Daði í viðtali við Vísi í september.
Daði og leikstjórinn Baltasar Kormákur keyptu íslenskan hluta tækni-
brellufyrirtækisins Framestore síðastliðið sumar. Starfsmenn fyrirtækisins
vinna nú við þriðju röð sjónvarpsþáttarins Boardwalk Empire.
Daði vann náið með Cuarón
MÖGNUÐ
MYND
Sandra
Bullock
fer með
hlutverk
geimfara
í spennu-
myndinni
Gravity eftir
leikstjórann
Alfonso
Cuarón.
Lofsamleg umfjöllun um Alþjóð-
lega kvikmyndahátíð í Reykjavík,
RIFF, hefur birst að undanförnu í
erlendum fjölmiðlum, þar á meðal í
Le Monde, Hollywood Reporter og
Screen International.
Í franska blaðinu Le Monde er
fjallað um heiðursverðlaunahaf-
ann James Gray og Hrafn Gunn-
laugsson, sem bauð fólki heim til
sín að sjá Óðal feðranna. Blaða-
maður fjallar einnig mikið um
augljósan áhuga Bjarkar á hátíð-
inni. Eins og Le Monde fjallar
Hollywood Reporter um niður-
skurðinn í framlögum stjórnvalda
til íslenskrar kvikmyndagerðar.
Fjalla um RIFF
SKIPULEGGJENDUR RIFF Fjallað er um
RIFF-hátíðina í erlendum fjölmiðlum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Blackfish dramatísk kvikmynd
Dawn Brancheau lést við vinnu
sína í Sea World í Flórída þegar
háhyrningurinn Tilikum réðst á hana.
Það heyrir til undantekninga að
háhyrningar ráðist á mannfólk í sínu
náttúrulega umhverfi en algengara
þegar þeir eru innilokaðir og notaðir
sem sýningardýr. Vísindamenn efast
um að skynsamlegt sé að halda
þessum stóru og greindu dýrum
föngnum. Leikstjóri Blackfish er
Gabriela Cowperthwaite sem hefur
rannsakað lifnaðarhætti háhyrninga
allt frá því Dawn Brancheau lést og
sýnir þessar merkilegu skepnur á
áhrifamikinn hátt.
Konan í búrinu dönsk saka-
málamynd
Ung þingkona hverfur sporlaust af
ferju á leið til Þýskalands. Lög-
reglan skipuleggur viðamikla leit að
konunni en án árangurs. Þegar rann-
sóknarlögreglumaðurinn Carl Mørk er
settur yfir nýstofnaða sérdeild innan
dönsku lögreglunnar kemst loks
skriður á málið að nýju. Leikstjóri
myndarinnar er Mikkel Nørgaard og
með helstu hlutverk fara Nikolaj Lie
Kaas, Fares Fares og Sonja Richter.
Battle of the Year
dansmynd
Danskeppnin Battle of
the Year er haldin árlega
og hefur danslið frá
Bandaríkjunum ekki farið
með sigur af hólmi
undanfarin fimmtán
ár. Dansarinn Dante
hyggst setja saman
sigurlið og sigra í
keppninni þetta
árið.
Leikstjóri er
Benson Lee og
með aðalhlut-
verkin fara Josh
Holloway úr Lost,
Laz Alonso, Chris
Brown og Josh Peck.
FRUMSÝNINGAR
Þrjár kvikmyndir eru frum-
sýndar um helgina.
Danskeppni og
gamall glæpur
BÍÓFRÉTTIR Breski leikarinn Charlie Hunnam
mun ekki fara með hlutverk millj-
arðamæringsins Christians Grey
í kvikmynd byggðri á metsölubók-
inni Fimmtíu gráir skuggar. Í byrj-
un september var tilkynnt um að
Hunnam og Dakota Johnson færu
með hlutverk Greys og Ana stasiu
Steele. Nú þarf Universal hins
vegar að finna nýjan Grey.
Fjölmiðlar hið vestra hafa mikið
velt sér upp úr brotthvarfi Hunnams,
en skýringin sem gefin var fyrir
brotthvarfi hans var sú að tökur á
myndinni stönguðust á við tökur á
sjónvarpsþáttunum Sons of Anarchy.
Fjölmiðlar vilja þó meina að önnur
ástæða liggi að baki enda hefur hvor-
ug tökuáætlunin breyst frá því að
gengið var frá samningum.
Líklegt þykir að leikarinn hafi
hætt við eftir holskeflu gagnrýnis-
radda, bæði frá aðdáendum Hun-
nams sem og aðdáendum bókanna.
Aðrir telja að Universal, sem fram-
leiðir myndina, hafi rift samning-
um við Hunnam vegna þess að hann
þótti ekki líklegur til að geta borið
myndina uppi ásamt hinni óreyndu
leikkonu Dakota Johnson.
Hver svo sem hin raunverulega
ástæða reynist vera er ljóst að Uni-
versal þarf að hafa hraðar hendur
við að finna staðgengil Hunnams
því tökur á myndinni eiga að hefjast
í nóvember.
EKKI NÓGU
ÞEKKTUR FYRIR
HLUTVERK GREYS
Fjölmiðlar telja ýmsar ástæður
liggja að baki brotthvarfi Charlies
Hunnam úr Fimmtíu
gráum skuggum.
Áhættuleikari í kvikmyndinni
Fury, í leikstjórn Davids Ayer,
slasaðist við tökur fyrir stuttu.
Tímaritið Variety segir
frá þessu.
Samkvæmt frétt Vari-
ety var áhættuleikar-
inn stunginn í öxlina og
í kjölfarið fluttur á
John Radcliffe-
sjúkrahúsið í
Oxford. Ekkert
er vitað um
aðdraganda
slyssins.
Kvikmyndin
Fury gerist á
tímum seinni
heimsstyrj-
aldarinnar
og skartar Brad
Pitt, Shia La-
Beouf og Logan
Lerman í helstu
hlutverkum.
Áhættuleikari
stunginn
HÆTTUR Charlie Hunnam er hættur við að taka að sér hlutverk
Christians Grey. NORDICPHOTOS/GETTY
… og passar með öllu
www.ms.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA