Fréttablaðið - 17.10.2013, Qupperneq 68
17. október 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 52
1. ÞEGAR ÞAÐ GERIST 1998
Unnur Steinsson í hlutverki Lilju strýkur kynfæri hests með
hjálp Pálma Gestssonar (Bjarna).
Sjö fræg hestaatriði í
íslenskum myndum
Hestar hafa komið við sögu í mörgum íslenskum kvikmyndum í gegnum tíðina en
aldrei hafa þeir verið í eins stóru hlutverki og í myndinni Hross í oss, sem nú er sýnd
við mjög góða aðsókn. Ef litið er yfi r íslenska kvikmyndasögu má telja mörg eft ir-
minnileg hestaatriði til. Fréttablaðið tók saman nokkur þeirra.
1. Seabiscuit
2. War Horse
3. The Horse Whisperer
4. Spirit: Stallion of the
Cimarron
5. Hidalgo
TEKJUHÆSTU
HESTAMYNDIR
N-AMERÍKU
2. ÓÐAL FEÐRANNA 1980
Jakob Þór Einarsson í hlutverki Sigga vanar hest ásamt hópi
manna.
3. LAND OG SYNIR 1980
Persóna Sigurðar Sigurjónssonar, Einar, lógar hestinum
sínum sem fellur beint ofan í gröf sína.
4. MAGNÚS 1989
Egill Ólafsson í hlutverki Magnúsar strýkur af sjúkra-
húsi ríðandi á gráum hesti.
5. ENGLAR ALHEIMSINS 2000
Móður Páls (Ingvars E. Sigurðssonar) dreymir að einn hestur í hestastóði missi máttinn í
fótunum og detti. Hesturinn átti að tákna Pál.
6. ROKLAND 2011
Böddi, sem Ólafur Darri Ólafsson túlkar, kemur ríðandi
á hesti frá Sauðárkróki á leið sinni suður og stöðvar
alla umferð á þjóðveginum.
7. DALALÍF 1984
Hallbjörn Hjartarson á
„sebrahestinum“ í Dalalífi.
„Það eru mörg járn í eldinum eins
og oft áður en ég er að fókusera
á myndlist þessa dagana,“ segir
Harpa Einarsdóttir listakona. Hún
heldur myndlistarmaraþon laugar-
daginn 19. október næstkomandi
ásamt Ingu Maríu Brynjarsdóttur.
„Þannig munum við sitja við í sól-
arhring og framleiða myndlist þar
til við dettum niður og á meðan
getur fólk komið við og keypt af
okkur verk á hálfvirði,“ útskýrir
Harpa. „Við erum með vinnustofu í
Skipholti 11-13 og þangað eru allir
velkomnir að kíkja á okkur í næstu
viku. Við stefnum á að byrja um
10 á laugardagsmorgninum,“ segir
Harpa jafnframt.
Harpa virðist aldrei sitja auðum
höndum en hún er hluti af YZ
Creation, ásamt Ýri Þrastardóttur,
og er með eigin fatalínu sem hún
selur í LA og ber heitið Ziska.
Um þessar mundir er Harpa að
safna fyrir „alvöru“ myndlistar-
sýningu.
„Ég stefni að því að halda sýn-
ingu í vor eða í haust, sem fer
bara eftir því hvernig fjármögn-
un gengur. Stefnan er að gera
magnað vídeóverk og stór olíumál-
verk ásamt skúlptúrum,“ útskýrir
Harpa. „Það er dýrt að gera svona
og gera það vel en mig hefur lengi
dreymt um að taka að minnsta
kosti hálft ár í að skapa sýningu.
Hingað til hefur mig skort bæði
tíma og pening,“ segir Harpa létt
í bragði.
„Ég vona að nú bráðlega verði
breyting á,“ segir hún að lokum.
- ósk
Sitja í sólarhring og
framleiða myndlist
Þær Harpa Einarsdóttir og Inga María Brynjarsdóttir
halda myndlistarmaraþon laugardaginn 19. október.
MEÐ FÓKUSINN Á MYNDLIST UM
ÞESSAR MUNDIR Harpa hefur í nægu
að snúast og heldur meðal annars úti
eigin fatalínu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
HROSS
Í OSS
„Fólk segir: Guð minn góður!
Aumingja börnin, þau hljóta
að hafa gengið í gegnum svo
margt.
Segir hver? Þau eru alltaf
hjá mér,“ segir leikkonan Kate
Winslet í nýju viðtali við Vogue.
Þar ræddi hún meðal annars um
móðurhlutverkið, en leikkonan á
tvö börn.
„Börnin mín flakka ekki á
milli mín og pabba sinna – þau
búa hjá mér. Þannig er það,“
sagði hún einnig.
Winslet á tvö börn, dótturina
Miu Honey með leikstjóranum
Jim Threapleton og soninn Joe
Alfie með leikstjóranum Sam
Mendes. Winslet á von á sínu
þriðja barni með þriðja eigin-
manni sínum, Ned Rocknroll.
Kate Winslet segir
börnin búa hjá sér
Kate Winslet segir börn sín tvö búa aðeins hjá sér.
Hún og feður barna hennar deila ekki forræði.
BÖRNIN HJÁ HENNI Leikkonan Kate
Winslet segir börn sín búa hjá sér, ekki
feðrum sínum. NORDICPHOTOS/GETTY