Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.10.2013, Qupperneq 72

Fréttablaðið - 17.10.2013, Qupperneq 72
17. október 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT | 56SPORT FÓTBOLTI Þór/KA féll í gær úr leik í 32-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu eftir tap, 4-1, gegn Zorkiy í Rússland. Þór/KA tapaði rimmunni því samanlagt 6-2. Fyrri leik liðanna lyktaði með 1-2 sigri rússneska liðsins. Arna Sif Ásgrímsdóttir gerði eina mark Þórs/KA í leiknum og kom það í síðari hálfleiknum. „Við misstum enn einu sinni hausinn í upphafi leiksins,“ segir Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þór/KA, eftir leikinn í gær. „Við ætluðum að mæta grimmar til leiks og koma Rússunum á óvart með pressu. Liðið hélt út í um tuttugu mínútur en þá fengum við á okkur algjört klaufamark og þar gerði markvörður okkar mikil mistök.“ Rússneska liðið gerði úti um leikinn á tólf mínútna kafla í fyrri hálfleiknum þegar liðið gerði þrjú mörk í röð. „Það er ekki svona mikill getu- munur á þessum liðum en við erum að berjast við andlega þáttinn og einbeitingarskort.“ Þór/KA hafði einu sinni áður tekið þátt í keppninni. „Þetta var vissulega mikið ævintýri og gaman að koma til Rússlands.“ sáp Misstu hausinn við fyrsta markið SÚRT Þór/KA réð ekki við rússneska liðið í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL FÓTBOLTI „Við fórum strax í vor í viðræðum við Lars Lagerbäck um að halda áfram með liðið og munum eflaust ræða nánar við hann á næstu misserum,“ segir Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ. Svíinn var ráðinn landsliðsþjálf- ari Íslands þann 14. október árið 2011 og hefur náð hreint mögn- uðum árangri með íslenska lands- liðið. Ísland komst á þriðjudags- kvöldið í umspil um laust sæti á HM í Brasilíu árið 2014 og hefur enginn annar landsliðsþjálfari náð slíkum árangri með karlaliðið. „Þessi árangur er ótrúlegur hjá liðinu. Það er mitt mat að ákveð- inn grunnur hafi verið lagður að þessum hóp þegar sú ákvörðun var tekin að láta ákveðna leik- menn spila með U-21 landslið- inu þegar liðið átti möguleika á að komast á Evrópumótið í Dan- mörku. Sú ákvörðun var vissulega umdeild en eftir á að hyggja rétt.“ Ísland komst á lokamót Evr- ópukeppni U-21 árs landsliða árið 2011 og fengu nokkrir leikmenn núverandi A-landsliðs ómetan- lega reynslu í aðdragandanum og á sjálfu mótinu. Þeir Kolbeinn Sig- þórsson, Aron Einar Gunnarsson, Jóhann Berg Guðmundsson, Birk- ir Bjarnason og Gylfi Þór Sigurðs- son voru með U-21 landsliðinu á lokamótinu árið 2011 en þeir voru allir í byrjunarliði Íslands gegn Kýpur og Norðmönnum á dögun- um. „Það hefur alltaf verið draum- ur okkar innan sambandsins og sennilega allra Íslendinga að kom- ast í úrslitakeppni stórmóts. Það hvarflaði kannski ekki að mörg- um að liðið yrði svona nálægt því en staðreyndin er sú að við erum alltaf að færast nær þessum loka- mótum.“ Evrópumótið í Frakklandi árið 2016 verður með breyttu sniði en þá munu 24 taka þátt. Áður hafa aðeins 16 lið komist á mótið. „Eftir því sem landsliðið verður betra verða möguleikar okkar á að komast í lokakeppni óhjákvæmi- lega meiri. Það verða að öllum lík- indum níu riðlar í undankeppni Evrópumótsins árið 2016 og lík- lega fara tvö efstu liðin beint á lokamótið og þriðja sætið gefur umspilsrétt.“ Knattspyrna í heiminum velt- ir gríðarlegum fjármunum á ári hverju en tryggði KSÍ sér ein- hverjar tekjur á því að komast í umspilið um sætið á HM í Brasi- líu? „Við fáum engar tekjur frá Alþjóða knattspyrnusamband- inu vegna þessara leikja og engar tekjur vegna sjónvarpsréttar en umspil er hluti af þeim samningi sem við gerðum við núverandi rétthafa, Sport Five.“ Miðaverð á landsleiki Íslands hefur verið með sanngjörnu móti í núverandi undankeppni en verðið hefur verið frá 1.500 krónum upp í 3.500 krónur í forsölu. „Við höfum tekið þá ákvörðun að undanförnu að vera sanngjarn- ir varðandi miðaverð. Miðaverðið á umspilsleikina hefur ekki verið rætt en það mun aldrei koma til gríðarlegrar hækkunar, kannski einhverjar 500 krónur.“ Umspilsleikir Íslands um sætið á HM í Brasilíu fara fram þann 15. og 19. nóvember en leikið verður á Laugardalsvelli á öðrum hvorum deginum. Völlurinn tekur tæplega tíu þúsund manns og verður án efa uppselt á heimaleik Íslands. Hvað er til ráða ef völlurinn verð- ur hreinlega dæmdur óleikhæfur vegna frosts í jörðu? „Við verðum vissulega að skoða þann möguleika. Fyrsta sanngirn- iskrafa okkar yrði þá að láta færa leikinn á annan dag en ég mun funda með starfsmönnum FIFA í Zürich í næstu viku og ræða þar alla möguleika. Það hefur alltaf verið á stefnuskránni að leggja hitakerfi undir völlinn en hann hefur samt sem áður verið í frá- bæru standi undanfarin ár.“ Takist Íslandi að komast á loka- mótið í Brasilíu eftir umspil mun Knattspyrnusamband Íslands fá gríðarlega háa fjárhæð frá FIFA fyrir vikið en upphæðin er samt sem áður óljós. „Við viljum helst halda okkar við umræðu um íþróttina sjálfa innan sambandsins og lítið ræða peningamál en ég get samt sem áður sagt að þau lið sem féllu úr leik í riðlakeppninni á heimsmeist- aramótinu í Suður-Afríku árið 2010 fengu öll níu milljónir Banda- ríkjadala.“ Níu milljónir dala eru rúmlega einn milljarður íslenskra króna og því er mikið undir. stefanp@365.is Einn milljarður undir Geir Þorsteinsson þarf að huga að mörgu fyrir umspilsleikina í nóvember en formaðurinn leggur mikla áherslu á að halda í Lars Lagerbäck. Íslenska landsliðið fær líklega yfi r einn milljarð íslenskra króna komist það á HM. BJARTSÝNN Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu hefur unnið hug og hjörtu allra landsmanna. Umspilsleikir eru fram undan og því þarf formaðurinn að huga að mörgu. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL „Við erum í viðræðum við Sigurð Ragnar [Eyjólfsson] en í raun hafa þær ekki náð langt. Það er enn verið að spjalla um málin,“ segir Óskar Örn Ólafsson, formaður knattspyrnu- deildar ÍBV. Sigurður Ragnar Eyjólfsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari kvennaliðs Íslands, er í viðræðum við forráðamenn ÍBV um að taka við liðinu. „Vonandi liggur þetta fyrir í lok vinnuvikunnar en í Eyjum endar hún á sunnudögum,“ segir Óskar léttur. Hermann Hreiðarsson hætti með liðið á dögunum en ástæðan fyrir brotthvarfi hans var persónuleg. Eyjamenn hófu þá strax leit að nýjum þjálfara og stendur sú leit enn yfir. „Það hefur verið venjan hjá okkur í ÍBV að ræða aðeins við einn aðila í einu og við bregðum ekki út af vananum í þessu tilviki.“ -sáp Eyjamenn í viðræðum við Sigurð Ragnar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.