Fréttablaðið - 19.10.2013, Side 42
19. október 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 42
Ég þræði nokkra stiga á leið upp í risí-búð Önnu Ringsted. Heimilishund-urinn Labbi heilsar gjammandi á skörinni en vingast við mig um leið og ég tek undir kveðju hans. Hlý-leg stofa blasir við en ég vel að tylla
mér við tekkborðið í borðkróknum þar sem
gluggar á þrjá vegu veita útsýni yfir marglit
þök og garða. Anna ber fram kaffi úr eldhús-
inu, sem er í litlum krók undir súð.
Missti manninn sviplega
Anna hefur sett svip á miðborgina með rekstri
fornsölunnar Fríðu frænku. Þeir sem hafa
komið þar inn gætu ímyndað sér að heima
hjá eigandanum væri allt stappfullt af antík-
húsgögnum og öðrum gömlum munum. Svo er
ekki. Þar eru að vísu einungis fornir og fal-
legir hlutir, til dæmis gamlir leikfangabílar
uppi á bitum í borðkróknum. Skyldu svona
dýrgripir koma inn í Fríðu frænku? „Já, en
sjaldnar og sjaldnar,“ segir Anna. „Maðurinn
minn átti þessa bíla. Hann var eiginlega meiri
safnari í sér en ég, mér finnst ekki þægilegt
að hlaða endalaust í kringum mig. Það geng-
ur ekki að vera safnari sjálfur þegar maður
rekur svona búð. Samt eru hlutir sem ég fell
fyrir, eins og skálar, blómavasar, gömul veski
og skartgripir, en ég er læknuð af þeirri þörf
að eiga þá alla.“
Þar sem Anna hefur rekið búðina í þrjátíu
og þrjú ár hlýtur hún að hafa smekk sem nýt-
ist öðrum. „Ég er komin með þjálfaðan smekk.
Þegar ég fór út þennan rekstur vissi ég ekki
baun í bala og gerði auðvitað margar skyss-
ur. Heyrði einhvern tíma að maður yrði ekki
góður í neinu starfi fyrr en eftir svona sautj-
án, átján ár. Þá væri þjálfunin komin. Starf
í svona fornsölu byggist upp á þjálfun. Bæði
þarf maður að vera mannþekkjari og búa yfir
hæfni til að meta hluti. (Hlær) Svo þarf maður
að vera góður raðari. Fólk er stundum alveg
undrandi þegar ég er að kaupa heil dánar-
bú. „Já, en búðin þín er full,“ segir það. En
ég tek hlutina inn og byrja að raða – umstafla
og raða.“
Anna kveðst þó hætt að bera stóra skápa og
aðra þunga hluti ofan af þriðju hæð, heldur fá
tvo menn með hverjum sendibíl. „Áður bar ég
heilu dánarbúin út í bíl með bílstjóranum. Víl-
aði það ekki fyrir mér enda finnst mér aksjón
skemmtileg. Það er einhver spennufíkn í mér.“
Nú er Anna búin að selja húsnæðið á Vestur-
götu 2 sem Fríða frænka er í og afhendir það
í byrjun apríl en verður með verslunina opna
næstum fram að þeim tíma. Af hverju er hún
að hætta?
„Ég hef svo lítið getað tekið frí frá því ég
byrjaði með búðina og vil hætta áður en það
verður of seint. Það tengist því meðal annars
að ég missti manninn minn sviplega fyrir
fimm árum. Þá var ég harkalega minnt á að
lífið tekur enda og að maður þarf að njóta þess
líka. Hann var bara fimmtugur. Var að tala
við mig þegar hjartað bara stoppaði. Það var
rosalegt.“
Eiginmaður Önnu hét Sveinn Sigurður Þor-
geirsson og var listamaður. Hann rak búðina
með Önnu, ásamt smíðaverkstæði þar sem
hann gerði upp húsmuni sem þurftu lagfær-
ingar við. „Sveinn var snillingur í höndunum
og smiður af guðs náð,“ segir hún. „Innrétt-
aði til dæmis þessa íbúð hér í risinu og gerði
upp íbúð fyrir ofan búðina, sem við seldum.
Svo var hann að byrja á risinu þar fyrir ofan
þegar hann dó. Ætlaði alltaf að fara að sinna
listinni – seinna.“
Nú kveðst Anna eiga eftir að gera upp
umrædda risíbúð til útleigu og taka íbúðar-
húsið sitt í gegn að utan. Það er kjallari, tvær
hæðir og ris. Börnin hennar tvö búa á annarri
hæðinni en hluta hússins leigir hún út.
Lærð í lífsins skóla
Anna ólst upp á Akureyri í góðu yfirlæti að
eigin sögn. Hún er ein af sex systkinum og
segir fimm til sex börn í fjölskyldum hafa
verið normið á æskuslóðunum efst á Brekk-
unni, enda hafi verið mikið líf í tuskunum þar.
„Það var bara farið út að leika á morgnana
og svo þurfti að draga mann inn einhvern
tíma á kvöldin,“ rifjar hún upp. Aðstaðan var
öðruvísi þegar hún var með sín tvö börn ung
í miðborg Reykjavíkur, þar gat hún ekkert
hleypt þeim út nema vera með þeim. „Mér
fannst þetta svo leiðinlegt og sjónvarpsgláp-
ið var farið að fara svo rosalega í mig að ég
pantaði trampólín frá Ameríku. Þetta var áður
en þau komu í búðir hér. Þá hurfu börnin út í
garð og ekki horft á sjónvarp lengi á eftir. Þau
voru alltaf á trampólíninu og allt hverfið. Ég
held þau hafi gengið gegnum þrjú trampólín.“
Hún kveðst hafa farið ung að vinna. „Ég
rétt skreið út úr gagnfræðaskóla. Pabbi sagði
að skólastjórnendur hefðu látið mig hafa eink-
unnina til að ég kæmi örugglega ekki aftur!
Því ég hafði engan áhuga á náminu. Ég hef
hins vegar alltaf haft gaman af að vinna og
hef reynslu af mörgum störfum, var alltaf
köld að skipta um vinnu þótt ég væri í góðu
starfi og byrja á einhverju nýju. Fyrir mér
hefur lífsins skóli verið fjölbreyttur og dásam-
legur.“
Skyldi hún hafa alist upp við antíkmuni á
æskuheimilinu? „Nei, mamma er fagurkeri
en dálítið nýjungagjörn þannig að hún skipti
út mublum og ég er ekki alin upp við gamalt
dót. Alls ekki.“
Það var í London sem Anna fékk áhuga á
gömlum húsmunum. Þar bjó hún þegar hún
var 17, 18 ára og þá var í tísku að kaupa gam-
alt. „Ég fór að sækja svona fornverslanir.
Fannst alveg vera málið að finna hluti sem
voru öðruvísi en allir aðrir áttu – einstaka
hluti. Ég var líka í Svíþjóð þegar ég var rúm-
lega tvítug, fyrst að vinna á elliheimili, svo
sem lestarþerna en síðan fór ég að vinna í búð
sem hét Sesor og Saker og var í Gamla Stan í
Stokkhólmi, hún seldi dúka og litla antíkhluti.
Þar smitaðist ég endanlega.“
Vel skrifað um búðina
Eitt sinn voru tvær verslanir neðst við Vest-
urgötuna sem seldu notuð föt, Kjallarinn og
Flóin, hvor sínum megin við götuna. Anna
kveðst hafa unnið um tíma í Kjallaranum. En
þar kom að hún stofnaði eigin búð í Ingólfs-
strætinu í um 20 fermetra plássi og byggði
hana upp líkt og Sesor og Saker. „Svo var
ég fljót að sanka meiru að mér. Ég hef alltaf
verið fljót að finna dót,“ segir hún hlæjandi.
Fyrstu árin flutti Anna inn fornmuni og
fór í innkaupaferðir til Hollands, Bretlands
og Ameríku. „Svo flutti ég ekkert inn í mörg
ár, þar til ég fór að fara til Danmerkur fyrir
tíu til tólf árum að kaupa tekk. En aðallega
kaupi ég dánarbú hér heima og af fólki sem
er að flytja, breyta, er blankt eða vill losa
sig við eitthvað af öðrum ástæðum,“ lýsir
hún. Hún kveðst alltaf hafa þurft að velja
úr. „Annars væri ég með alla Vesturgötuna
á leigu,“ segir hún og hlær.
Útlendingar eru tíðir gestir í Fríðu
frænku, að sögn Önnu. „Erlendir ferða-
menn hafa alltaf sótt í búðina mína og það
er voða vel skrifað um hana í netheimum.
Þar er oft tekið fram að hún sé eitt af því
sem fólk verði að skoða þegar það komi til
Reykjavíkur.“
En hvernig gekk með Fríðu frænku í
íslenska góðærinu? „Tíðarandinn var þannig
að fólk leit á allt gamalt sem rusl, bæði hús
og húsbúnað, og henti miklu. Ég skildi aldrei
þetta tímabil, fattaði ekki hvernig bankarn-
ir græddu svona og hvernig allir gátu verið
á nýjum bílum. Mér fannst þetta leiðinlegt
fyrir unga fólkið því lífið gekk svo hratt.
Það keypti sér íbúð og allt nýtt og maður
hugsaði: Situr þetta fólk svo bara framan við
flatskjáina, étur snakk og hefur ekki fyrir
neinu að berjast? Óttaðist að það væri ávís-
un á lífsleiða. Öfugt við það sem áður var
þegar fólk sat á kollum þangað til það átti
loksins fyrir sófa, með þeirri dásamlegu til-
finningu sem því fylgdi.“
Dreymir um að tjalda
Hvernig skyldi svo þessi kjarnakona ætla
að njóta lífsins þegar hún er laus við versl-
unarreksturinn?
„Sko, ég byrjaði til dæmis að stunda
hestaferðir fyrir tólf árum. Mig langar
rosalega að fá mér hest. Svo finnst mér
mjög gaman að ferðast. Alveg eins innan
lands og utan. Dreymir til dæmis um að
tjalda í Mývatnssveitinni – í gömlu A-tjaldi!
Ég er að reyna að venja mig af því að vera
alltaf á spani. Hef verið í jóga í mörg ár en
alltaf á hlaupum. Fyrsta veturinn hugsaði
ég alltaf: leiðinlegt, leiðinlegt, leiðinlegt.
Er þetta ekki að verða búið? Svo lærði ég
að meta jóga og finnst það dásamlegt fyrir
líkamann. Nú get ég kannski gert það með
hausinn í lagi líka! En ég er ekkert hrædd
um að líf mitt verði ekki nógu spennandi
og held ég eigi eftir að fá fullt af tækifær-
um. Mér finnst gaman að vera til, á fullt af
góðum vinum og efast ekki um að ég eigi
eftir að hafa nóg fyrir stafni.“
Alltaf verið fljót að finna dót
Anna Ringsted ætlar að loka fornsölunni Fríðu frænku með vorinu eftir áratuga rekstur og snúa sér að því að njóta lífsins.
Veit sem er að enginn á morgundaginn vísan. Á það var hún illilega minnt þegar eiginmaðurinn lést vegna hjartaáfalls.
KAUPKONAN „Ég er að reyna að venja mig af því að vera alltaf á spani. Hef verið í jóga í mörg ár en alltaf á hlaupum,“ segir Anna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Tíðarandinn var
þannig að fólk
leit á allt gamalt
sem rusl, bæði hús og
húsbúnað og henti
miklu. Ég skildi aldrei
þetta tímabil, fattaði
ekki hvernig bank-
arnir græddu svona og
hvernig allir gátu verið
á nýjum bílum. Mér
fannst þetta leiðinlegt
fyrir unga fólkið því
lífið gekk svo hratt.
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is