Fréttablaðið - 19.10.2013, Blaðsíða 100
19. október 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 64
LEIKLIST ★★ ★★★
Óvitar eftir Guðrúnu Helga-
dóttur í Þjóðleikhúsinu
LEIKSTJÓRN: GUNNAR HELGASON.
LEIKMYND: ILMUR STEFÁNSDÓTTIR.
BÚNINGAR: ÞÓRUNN MARÍA JÓNS-
DÓTTIR. TÓNLIST: MOSES HIGHTOWER.
HLJÓÐMYND: ANDRI ÓLAFSSON,
KRISTINN GAUTI EINARSSON, KRISTJÁN
SIGMUNDUR EINARSSON. LÝSING:
HALLDÓR ÖRN ÓSKARSSON.
Hin nýja sýning Þjóðleikhússins á
barnaleikriti Guðrúnar Helgadótt-
ur, Óvitum, er fyrir margra hluta
sakir furðulegt verk. Leikstjórinn,
Gunnar Helgason, hefur kosið að
sviðsetja leikinn sem hreinan
grínleik. Honum finnst auðsæi-
lega sem verkið standi eða falli
með því hversu mikið sé hægt að
hlæja að því. Leikmynd, búningar
og jafnvel leikgervi eru meira og
minna einhvers konar fígúruverk
sem ég læt öðrum eftir að lýsa eða
ættfæra.
En Óvitar er ekkert grínleik-
rit. Þar er brotið upp á mjög alvar-
legum spurningum um samskipti
barna og uppalenda, virðingar-
leysi fullorðna fólksins fyrir unga
fólkinu sem er enn ofurselt valdi
þess, valdi sem hinir fullorðnu
kunna svo skelfilega oft ekki að
fara með og taka ábyrgð á. Þar
er fjallað um brotnar fjölskyldur,
einmanaleik, örvæntingu, heimil-
isofbeldi, afneitun og þöggun. Hið
einfalda snilldarbragð Guðrúnar,
að snúa við hlutverkum, láta börn
leika fullorðnar persónur, full-
orðna leikara börn, framandger-
ir svo margt í hegðun okkar sem
við höfum annaðhvort afneitað
eða orðið vanablind á; henni tekst
þannig með meðulum leikhússins
að afhjúpa óvitaskap hinna full-
orðnu í sínum fjölmörgu fárán-
legu myndum, jafnframt því sem
hún dregur fram visku barnanna,
skilning þeirra á því sem máli
skiptir: vináttu, trúnaði, hollustu,
samhjálp. Þau hafa ekki enn náð
að týna sér í eftirsókn eftir vindi,
deyðandi kapphlaupi um lífsgæði
sem eru í reynd engin gæði, aðeins
veraldlegt hjóm og hismi.
En þó að Guðrúnu liggi mikið á
hjarta er hún enginn siðaprédik-
ari. Hún er húmanisti sem kann
að nota húmorinn í þágu alvör-
unnar. Hún kann að skapa hið
rétta jafnvægi milli harmleiks-
ins og háðleiksins, að láta fyndn-
ina og gleðina kallast á við treg-
ann og sorgina. Hún kann að
milda ádeiluna með elskulegu
brosi. Þetta fer allt saman að
langmestu leyti forgörðum í þeim
leikstjórnaráherslum sem Gunn-
ar kýs að leggja, endalausum til-
raunum hans til að fitja upp á alls
kyns sprelli og sniðugheitum. Það
er helst ef leikendur fá að vera í
friði fyrir honum og bara leika af
einlægni að þeir nái tangarhaldi
á angistinni sem að baki býr; það
gerir hún til dæmis, hún Ágústa
Eva Erlendsdóttir þegar hún í hlut-
verki Dagnýjar reynir að hreyfa
við foreldrum sínum og hrópar til
þeirra ein mikilvægustu orð leiks-
ins: „Okkur vantar ykkur!“ Það er
ekki nóg að hafa til hnífs og skeið-
ar, fín föt að klæðast í og fínt hús
að búa í. Maðurinn lifir ekki af
einu saman brauði, var eitt sinn
sagt; Óvitar Guðrúnar eru á sinn
hátt tilbrigði við það stef, tilbrigði
sem leiðir beint inn í samtíma sem
er svo oft ráðvilltur og vegalaus.
Slík andartök eru því miður
sjaldséð í sýningunni. Púðrinu er
eytt í annað, hringsviðið snýst og
snýst, líkt og það sé orðið að hring-
ekju; svo er alltaf verið að syngja
og dansa. En rokkuð og ólagræn
tónlist Moses Hightower virðist
samin fyrir unglinga og dansatrið-
in eru hvorki fugl né fiskur, enda
dans í söngleikjastíl ekkert barna
meðfæri. Ég náði ekki að greina
nema lítið eitt af söngtextunum,
en það sem ég heyrði benti ekki
til að ég væri að missa af miklu.
Verk Guðrúnar þarf ekki á svona
tertuskreytingum að halda.
Gunnar Helgason kann sann-
arlega að setja kraft í „showið“,
þrusukraft meira að segja; það
hefur hann sýnt og sannað oft
áður. Börnin voru enda ófeimin
og óþvinguð, léku bæði af einbeit-
ingu og ósvikinni leikgleði og víst
hittu þau stundum á skemmtilega
tóna. Samleikur þeirra Jóhann-
esar Hauks Jóhannessonar og
nýliðans Odds Júlíussonar í burð-
arhlutverkunum virtist á nokk-
uð góðri leið og gæti átt eftir að
batna, einkum þegar Oddur nær
að slaka betur á og finna sig í sínu
hlutverki. Af öðrum í eldri hópn-
um vakti Friðrik Friðriksson eftir-
tekt fyrir fínleg vinnubrögð, getu
til að sýna hið barnslega án þess
að grípa til yfirborðslegra takta;
það var vel gert hjá leikara sem
hefur vaxið og mætti fara að sjást
í stærri hlutverkum.
Að lokum: vanmetum ekki börn
sem áhorfendur. Rétt eins og við
fara þau ekki í leikhús til þess eins
að sækja sér stundarafþreyingu,
af henni fá þau meira en nóg ann-
ars staðar. Þau koma þangað til að
láta segja sér góðar sögur, kynn-
ast fólki sem býr að óvenjulegri
og á einhvern hátt merkilegri lífs-
reynslu, læra meira um veröld-
ina sem bíður þeirra handan við
hornið. Þau eru að leita að húmor,
mannlegri hlýju, lífsvisku – sem
nóg er af í verki Guðrúnar Helga-
dóttur. Það sýndi hin snjalla upp-
færsla Brynju Benediktsdóttur á
því fyrir þrjátíu árum. Við verðum
að vona að næsta uppfærsla Þjóð-
leikhússins, hvenær sem hún nú
verður, sýni það jafn vel.
Jón Viðar Jónsson
NIÐURSTAÐA: Kraftmikil og lit-
skrúðug sýning sem líður mjög fyrir
grunnfærna nálgun leikstjórans að
verki Guðrúnar Helgadóttur.
Óvitar er EKKI skrípó
ÓVITAR
„Leikmynd,
búningar
og jafnvel
leikgervi eru
meira og
minna ein-
hvers konar
fígúruverk
sem ég læt
öðrum eftir
að lýsa eða
ættfæra,“
segir Jón
Viðar.
Sýning á vatnslitamyndum verður opnuð í dag í sal Íslenskrar grafíkur að Tryggvagötu 17. Þar sýnir Bergljót Svanhildur
Sveinsdóttir list sína. Hún málar einkum abstrakt og kveðst hafa
sótt í þá tegund myndlistar með tímanum.
„Ég hef lengi stundað nám við Myndlistarskóla Kópavogs mér til
ánægju, er eilífðarstúdent þar og finnst frábært að upplifa fram-
farir þótt aldurinn færist yfir, enda hef ég góða kennara. Eftir að ég
hætti að vinna gefst mér líka meira tóm til að sinna listinni,“ segir
hún glaðlega.
Sýningin verður opin fimmtudaga til sunnudaga til 3. nóvember
milli klukkan 14 og 18. Inngangur er hafnarmegin.
Málar einkum abstrakt
Bergljót Svanhildur Sveinsdóttir opnar sýningu í dag
í sal Íslenskrar grafíkur að Tryggvagötu 17.
Ljósmyndasýningin Dreggjar sum-
arsins verður opnuð í dag í List-
húsi Ófeigs að Skólavörðustíg 5.
Þar sýnir Leifur Þorsteinsson
myndir
sínar
sem
sýna
kyrrð og
ró. „Ég
geng um
borgina,
gróin
hverfi,
þar sem
dreggj-
ar sum-
arsins
koma
í ljós, laufið fellur, stólarnir eru
auðir og reiðhjólin eru heima við.
Enginn á ferli nema ljósmyndar-
inn,“ segir hann.
Listhús Ófeigs er opið virka
daga frá 10 til 18 og 11 til 16 á
laugardögum.
Dreggjar
sumarsins
MENNING
Tónleikaröð með
ungum söngvurum
Eflum
ungar raddir
Kaldalón — Veturinn 2013–2014
Einu sinni í mánuði í vetur verða tónleikar með ungum
söngvurum sem eru í framhaldsnámi og að stíga fyrstu
skrefin sem atvinnumenn á tónlistar brautinni. Dagskrá
þeirra verður því mjög fjölbreytt, allt frá ljóðasöng og
óperuaríum yfir í jazz og söngleikjatónlist.
Samfélagssjóður eflu verkfræðistofu styrkir tón-
leikana sem haldnir eru í samstarfi við Hörpu.
Tónleikarnir hefjast kl. 16:00
Ókeypis aðgangur
Sjá nánar á www.harpa.is
Kristín Sveinsdóttir
mezzo
20. október
Aðalsteinn Már Ólafsson
baritón
26. janúar
Unnur Helga Möller
sópran
23. mars
Rúnar Kristinn Rúnarsson
söngleikjatónlist
24. nóvember
Ingibjörg Fríða Helgadóttir
jazz
23. febrúar
Kristján Jóhannesson
baritón
13. apríl
www.tjarnarbio.is
Miðasalan er opin frá kl. 15:00-18:00 þri-fös
midasala@tjarnarbio.is / 527-2100 / midi.is