Fréttablaðið - 19.10.2013, Blaðsíða 80

Fréttablaðið - 19.10.2013, Blaðsíða 80
19. október 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 44 Það kom í raun til af nauð-syn að ég flutti í miðbæ-inn, því strætókerfið býður ekki upp á að búa svona langt frá skóla og vinnu. Ég var orðin eins og „bag lady“ og farin að gista allt of oft hjá vinum mínum með dót í plastpoka,“ segir leikkonan Hildur Berglind Arndal þegar hún sest niður með blaðamanni á kaffihúsi skammt frá heimili hennar í Þing- holtunum. Hildur Berglind er upp- alin í Hafnarfirði og flutti í bæinn þegar hún var á öðru ári við leik- listardeild Listaháskóla Íslands. Þaðan útskrifaðist hún síðastliðið vor og var í kjölfarið ráðin til eins árs við Borgarleikhúsið. Frumsýn- ing á fyrsta verkinu hennar í leik- húsinu stóra, Hús Bernhörðu Alba, var í gær og eftir áramót bíður ekki smærri rulla en sjálf Ófelía í Hamlet Shakespeares. Það er því skammt stórra högga á milli hjá leikkonunni ungu, sem segist kunna vel við sig sem mið- bæjarrotta. „Ég hugsa að ég sé komin hingað til að vera, úr því sem komið er. 101 Reykjavík er dálítið eins og sjávarþorp sem maður fer ekki mikið út fyrir. Svo hittir maður líka mikið sama fólkið á kaffihúsunum, sem þjóna hlutverki róluvalla fyrir full- orðna fólkið. En ég skrepp samt mjög reglulega til foreldra minna í Hafnarfirðinum. Það er svo þægi- legt og svo eiga þau líka svo gott baðkar. Þar fæ ég lúxusmeðferð,“ segir Hildur Berglind. Harmonikka frekar en franska Leiklistarfræjunum var sáð á téðum æskuslóðum Hildar Berg- lindar utan Reykjavíkur, nánar til- tekið í Fjölbraut í Garðabæ (FG) þar sem hún segist hafa manað sjálfa sig upp í að fara í áheyrnar- prufu fyrir söngleik sem var settur upp í skólanum. „Ég vildi sanna fyrir sjálfri mér að ég gæti sungið fyrir framan fólk en mér þótti tilhugsunin hræðileg og þurfti að gera þetta skref fyrir skref,“ rifjar leikkonan upp. Ég var frekar feimin og get verið enn. En í þessum þremur söngleikjum sem ég tók þátt í í FG upplifði ég frelsi til að skoða og skynja lífið, hafa gaman, tengjast fólki á nýjan hátt, vera asnaleg og bara að vera alls konar. Þetta varð bara sífellt skemmtilegra eftir því sem á leið.“ Eftir útskrift úr FGvar Hildur Berglind þó ekki staðráðin í að reyna sig við inngöngu í leiklistar- deild Listaháskólans. Þess í stað hóf hún nám í heimspeki og kynjafræði við Háskóla Íslands, enda segist hún lengi hafa haft áhuga á heimspeki, sálfræði og fleiri tengdum hlutum. Eftir ár í Háskólanum hélt Hildur Berglind svo á suðlægari slóðir, til Frakk- lands þar sem ætlunin var að að nema hið svokallaða tungumál ástarinnar. „Sú dvöl fór þó öðruvísi en ætlað var því ég slysaðist í teboð í Cannes, þar sem ég hitti harm- onikkusnilling, 25 ára stelpu sem hafði spilað á harmonikku í 20 ár, sem bauðst til að kenna mér á hljóðfærið,“ segir Hildur Berglind. „Það hafði alltaf verið draumur hjá mér að læra á harm- onikku og ég og vinkona mín vorum vanar að labba um með skólatöskurnar á maganum þegar við vorum litlar og þykjast spila Síldarvalsinn á harmonikku. Svo fékk ég eina slíka í stúdentsgjöf frá foreldrum mínum og hafði með til Frakklands og allt end- aði þetta með því að ég hætti í frönskunáminu og einbeitti mér að hljóðfærinu í staðinn. Ég lærði þó frönsku með því að vinna á skrifstofu tungumálaskólans fyrir gistingu, sem var jafnvel betri aðferð.“ Tengdi leiklistina við rokkið Spurð um helstu áhugamál sín fyrir utan leiklistina nefnir Hildur Berglind fyrst fjallgöngur. Hún segist útivistarsinnuð, finnst gott að slaka á og hlaða batteríin með slíkum göngum og er Helgafell í nágrenni Hafnarfjarðar í sérstöku uppáhaldi hjá leikkonunni ungu. Tónlistin skipar einnig stóran sess í lífi Hildar Berglindar, enda hóf hún píanónám níu ára gömul og hætti því ekki fyrr en hún byrj- aði í LHÍ haustið 2010, þá komin á framhaldsstig. Í sumar sem leið starfaði hún við rokksumarbúðirn- ar Stelpur rokka sem Tónlistarþró- unarmiðstöð hefur staðið fyrir síðustu ár. Þar var hún eins konar hljómsveitarstýra fyrir stelpur á aldrinum tólf til sextán ára og segir starfið með því skemmti- legra sem á daga hennar hefur drifið.„Þetta var alveg magnað og ég vonast til að geta unnið við rokksumarbúðirnar aftur næsta sumar. Ég fann fljótlega að ég gat tengt leiklistina inn í rokkið, miðl- að ýmsum hlutum og verið stelp- unum innan handar sem var mjög ánægjulegt. Á þessum aldri eru stelpur stundum of hikandi og því er mikilvægt að þær læri að berj- ast fyrir sínu. Þær þurfa að vera óhræddar við að gera mistök og það er frábært fyrir þær að geta átt í svona tónlistarlegu samtali.“ Gekk illa í inntökuprófinu Inntökuprófið í leiklistardeild LHÍ vorið 2010 gekk fremur brösug- lega hjá Hildi Berglindi að eigin sögn. „Ég átti að fara með tvær einræður en eftir fyrstu fjórar línurnar datt ég hreinlega út og steingleymdi afganginum af text- anum. Ég stoppaði og útskýrði fyrir dómurunum að ég ætlaði að byrja upp á nýtt, en þá hvarf allur textinn úr höfðinu á mér. Það var eins og einhver álög væru á mér en ég hélt samt ró minni, flutti hina einræðuna, kláraði inntöku- prófið og komst að lokum inn í skólann. Þarna lærði ég að mistök geta hæglega verið af hinu góða og reyndar var okkur líka kennt það í skólanum. Að nýta mistökin en fara ekki á taugum og láta þau stöðva sig,“ rifjar hún upp. Ári áður en hún þreytti inntöku- prófið í LHÍ hafði Hildur Berglind sótt um hlutverk í kvikmyndinni Gauragangur í leikstjórn Gunnars B, Guðmundssonar. Skömmu eftir prófið frétti hún svo að hún hefði hreppt hlutverk Lindu, kærustu aðalpersónunnar Orms, eina viða- mestu rulluna í myndinni. „Það var mikil lukka að næla í þetta hlutverk, að ég tali nú ekki um á þessum aldri, því það eru ekki svo margar kvikmyndir framleiddar á Íslandi,“ segir Hildur Berglind, en í Gauragangi brá henni meðal annars fyrir í nektarsenu. „Sú sena var reyndar ekki beint á dag- skránni, eða öllu heldur hafði verið ákveðið að vinna með atriðið þann- ig að engin nekt sæist beinlínis í myndinni. En svo rétt glitti í túttur sem breytir svo sem engu til eða frá. Nekt er ekki tabú fyrir mér en það fer eftir samhenginu hvort birting hennar eigi við. Hún ætti ekki að vera notuð sem söluvara, eins og alltof oft er gert, til dæmis í tónlistarmyndböndum.“ Fyrst minnst er á nekt stenst blaðamaður ekki mátið að spyrja leikkonuna út í aldna flökkusögu varðandi leiklistarnámið, hvort tíðkist að þar fari nemendur af báðum kynjum saman í sturtu „Lengi vel var það þannig að allir fóru saman í sturtu vegna þess að það var enginn veggur milli sturtuklefanna en núna er sá vegg- ur kominn. Líklega eru stund- irnar í sturtunni með stelpunum það sem ég sakna mest úr skól- anum. Við fórum saman í sturtu á hverjum degi og hlógum, grétum og grínuðumst. Þetta var yndisleg- ur tími,“ segir Hildur Berglind og bætir við að á meðal nemendanna hafi myndast sterk bönd. „Það var komin innistæða í einkahúmors- bankann þegar náminu lauk. Einn brandari, sem Arnmundur Ernst bekkjarbróðir minn átti upphafið að, var sérlega lífsseigur en hann gekk út á að hníga niður örmagna þegar maður prumpaði. Oft þarf ekki meira til en að segja eitthvað eitt orð og þá liggja allir í kasti.“ Gömul og úrsérgengin gildi Í gærkvöldi var frumsýning á verkinu Hús Bernhörðu Alba eftir García Lorca í Gamla Bíói, en Hildur Berglind skrifaði undir eins árs ráðningarsamning við Borgarleikhúsið strax í kjölfar útskriftarinnar úr LHÍ og er þetta fyrsta verk hennar í leikhúsinu. Í verkinu leikur Hildur Berg- lind yngstu dóttur ekkjunnar Bernhörðu Alba, persónu sem leikkonan lýsir sem sterkri og áræðinni en þó viðkvæmri sem berst af öllum lífs og sálar kröft- um fyrir frelsinu. Alls koma um sjötíu konur að sýningunni en í hlutverki Bernhörðu Öldu, heimilisharðstjórans sem heldur dætrum sínum fimm föngnum í húsi sínu, er Þröstur Leó Gunn- arsson. „Leikstjórinn Kristín Jóhannesdóttir vildi sýna fram á að feðraveldinu er ekki eingöngu stjórnað af körlum, að gömlum og úrsérgengnum gildum er við- haldið jafnt af konum sem körlum. Kristín tekur súrrealíska nálgun á verkið og því átti þetta hlutverka- val líka vel við. Ég myndi lýsa þessari sýningu sem mjög ögr- andi, enda fór hún illa í Franco- stjórnina á Spáni og Lorca var skotinn í hausinn nokkrum vikum eftir frumsýningu hennar,“ segir Hildur Berglind sem verður 24 ára gömul á mánudag og hyggst þá fagna með meðleikurum sínum. Nekt er ekki tabú fyrir mér en það fer eftir samhenginu hvort birting hennar eigi við. Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is Mistökin eru af hinu góða Hildur Berglind Arndal útskrifaðist úr leiklistardeild Listaháskólans í vor og þreytir frumraun sína í verkinu Hús Bernhörðu Alba í Borgarleikhúsinu. Þegar leikkonan steig fyrst á svið segist hún hafa upplifað frelsi til að fá að vera asnaleg. FRUMRAUN Hildur Berglind Arndal seg- ist sakna stundanna í sturtu með stelpun– um í bekknum í leik- listardeild LHÍ einna mest úr skólanum. „Við fórum saman í sturtu á hverjum degi, stundum tvisvar á dag, og hlógum, grét– um og grínuðumst. Þetta var yndislegur tími,“ rifjar hún upp. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.