Fréttablaðið - 19.10.2013, Síða 80
19. október 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 44
Það kom í raun til af nauð-syn að ég flutti í miðbæ-inn, því strætókerfið býður ekki upp á að búa svona langt frá skóla og vinnu. Ég var orðin eins
og „bag lady“ og farin að gista allt
of oft hjá vinum mínum með dót í
plastpoka,“ segir leikkonan Hildur
Berglind Arndal þegar hún sest
niður með blaðamanni á kaffihúsi
skammt frá heimili hennar í Þing-
holtunum. Hildur Berglind er upp-
alin í Hafnarfirði og flutti í bæinn
þegar hún var á öðru ári við leik-
listardeild Listaháskóla Íslands.
Þaðan útskrifaðist hún síðastliðið
vor og var í kjölfarið ráðin til eins
árs við Borgarleikhúsið. Frumsýn-
ing á fyrsta verkinu hennar í leik-
húsinu stóra, Hús Bernhörðu Alba,
var í gær og eftir áramót bíður
ekki smærri rulla en sjálf Ófelía í
Hamlet Shakespeares.
Það er því skammt stórra högga
á milli hjá leikkonunni ungu, sem
segist kunna vel við sig sem mið-
bæjarrotta. „Ég hugsa að ég sé
komin hingað til að vera, úr því
sem komið er. 101 Reykjavík er
dálítið eins og sjávarþorp sem
maður fer ekki mikið út fyrir.
Svo hittir maður líka mikið sama
fólkið á kaffihúsunum, sem þjóna
hlutverki róluvalla fyrir full-
orðna fólkið. En ég skrepp samt
mjög reglulega til foreldra minna í
Hafnarfirðinum. Það er svo þægi-
legt og svo eiga þau líka svo gott
baðkar. Þar fæ ég lúxusmeðferð,“
segir Hildur Berglind.
Harmonikka frekar en franska
Leiklistarfræjunum var sáð á
téðum æskuslóðum Hildar Berg-
lindar utan Reykjavíkur, nánar til-
tekið í Fjölbraut í Garðabæ (FG)
þar sem hún segist hafa manað
sjálfa sig upp í að fara í áheyrnar-
prufu fyrir söngleik sem var
settur upp í skólanum. „Ég vildi
sanna fyrir sjálfri mér að ég gæti
sungið fyrir framan fólk en mér
þótti tilhugsunin hræðileg og
þurfti að gera þetta skref fyrir
skref,“ rifjar leikkonan upp. Ég
var frekar feimin og get verið enn.
En í þessum þremur söngleikjum
sem ég tók þátt í í FG upplifði ég
frelsi til að skoða og skynja lífið,
hafa gaman, tengjast fólki á nýjan
hátt, vera asnaleg og bara að vera
alls konar. Þetta varð bara sífellt
skemmtilegra eftir því sem á leið.“
Eftir útskrift úr FGvar Hildur
Berglind þó ekki staðráðin í að
reyna sig við inngöngu í leiklistar-
deild Listaháskólans. Þess í stað
hóf hún nám í heimspeki og
kynjafræði við Háskóla Íslands,
enda segist hún lengi hafa haft
áhuga á heimspeki, sálfræði og
fleiri tengdum hlutum. Eftir ár í
Háskólanum hélt Hildur Berglind
svo á suðlægari slóðir, til Frakk-
lands þar sem ætlunin var að að
nema hið svokallaða tungumál
ástarinnar.
„Sú dvöl fór þó öðruvísi en
ætlað var því ég slysaðist í teboð í
Cannes, þar sem ég hitti harm-
onikkusnilling, 25 ára stelpu
sem hafði spilað á harmonikku
í 20 ár, sem bauðst til að kenna
mér á hljóðfærið,“ segir Hildur
Berglind. „Það hafði alltaf verið
draumur hjá mér að læra á harm-
onikku og ég og vinkona mín
vorum vanar að labba um með
skólatöskurnar á maganum þegar
við vorum litlar og þykjast spila
Síldarvalsinn á harmonikku. Svo
fékk ég eina slíka í stúdentsgjöf
frá foreldrum mínum og hafði
með til Frakklands og allt end-
aði þetta með því að ég hætti í
frönskunáminu og einbeitti mér
að hljóðfærinu í staðinn. Ég lærði
þó frönsku með því að vinna á
skrifstofu tungumálaskólans fyrir
gistingu, sem var jafnvel betri
aðferð.“
Tengdi leiklistina við rokkið
Spurð um helstu áhugamál sín
fyrir utan leiklistina nefnir Hildur
Berglind fyrst fjallgöngur. Hún
segist útivistarsinnuð, finnst gott
að slaka á og hlaða batteríin með
slíkum göngum og er Helgafell í
nágrenni Hafnarfjarðar í sérstöku
uppáhaldi hjá leikkonunni ungu.
Tónlistin skipar einnig stóran
sess í lífi Hildar Berglindar, enda
hóf hún píanónám níu ára gömul
og hætti því ekki fyrr en hún byrj-
aði í LHÍ haustið 2010, þá komin
á framhaldsstig. Í sumar sem leið
starfaði hún við rokksumarbúðirn-
ar Stelpur rokka sem Tónlistarþró-
unarmiðstöð hefur staðið fyrir
síðustu ár. Þar var hún eins konar
hljómsveitarstýra fyrir stelpur
á aldrinum tólf til sextán ára og
segir starfið með því skemmti-
legra sem á daga hennar hefur
drifið.„Þetta var alveg magnað
og ég vonast til að geta unnið við
rokksumarbúðirnar aftur næsta
sumar. Ég fann fljótlega að ég gat
tengt leiklistina inn í rokkið, miðl-
að ýmsum hlutum og verið stelp-
unum innan handar sem var mjög
ánægjulegt. Á þessum aldri eru
stelpur stundum of hikandi og því
er mikilvægt að þær læri að berj-
ast fyrir sínu. Þær þurfa að vera
óhræddar við að gera mistök og
það er frábært fyrir þær að geta
átt í svona tónlistarlegu samtali.“
Gekk illa í inntökuprófinu
Inntökuprófið í leiklistardeild LHÍ
vorið 2010 gekk fremur brösug-
lega hjá Hildi Berglindi að eigin
sögn. „Ég átti að fara með tvær
einræður en eftir fyrstu fjórar
línurnar datt ég hreinlega út og
steingleymdi afganginum af text-
anum. Ég stoppaði og útskýrði
fyrir dómurunum að ég ætlaði að
byrja upp á nýtt, en þá hvarf allur
textinn úr höfðinu á mér. Það var
eins og einhver álög væru á mér
en ég hélt samt ró minni, flutti
hina einræðuna, kláraði inntöku-
prófið og komst að lokum inn í
skólann. Þarna lærði ég að mistök
geta hæglega verið af hinu góða
og reyndar var okkur líka kennt
það í skólanum. Að nýta mistökin
en fara ekki á taugum og láta þau
stöðva sig,“ rifjar hún upp.
Ári áður en hún þreytti inntöku-
prófið í LHÍ hafði Hildur Berglind
sótt um hlutverk í kvikmyndinni
Gauragangur í leikstjórn Gunnars
B, Guðmundssonar. Skömmu eftir
prófið frétti hún svo að hún hefði
hreppt hlutverk Lindu, kærustu
aðalpersónunnar Orms, eina viða-
mestu rulluna í myndinni. „Það
var mikil lukka að næla í þetta
hlutverk, að ég tali nú ekki um á
þessum aldri, því það eru ekki svo
margar kvikmyndir framleiddar
á Íslandi,“ segir Hildur Berglind,
en í Gauragangi brá henni meðal
annars fyrir í nektarsenu. „Sú
sena var reyndar ekki beint á dag-
skránni, eða öllu heldur hafði verið
ákveðið að vinna með atriðið þann-
ig að engin nekt sæist beinlínis í
myndinni. En svo rétt glitti í túttur
sem breytir svo sem engu til eða
frá. Nekt er ekki tabú fyrir mér
en það fer eftir samhenginu hvort
birting hennar eigi við. Hún ætti
ekki að vera notuð sem söluvara,
eins og alltof oft er gert, til dæmis
í tónlistarmyndböndum.“
Fyrst minnst er á nekt stenst
blaðamaður ekki mátið að spyrja
leikkonuna út í aldna flökkusögu
varðandi leiklistarnámið, hvort
tíðkist að þar fari nemendur af
báðum kynjum saman í sturtu
„Lengi vel var það þannig að allir
fóru saman í sturtu vegna þess
að það var enginn veggur milli
sturtuklefanna en núna er sá vegg-
ur kominn. Líklega eru stund-
irnar í sturtunni með stelpunum
það sem ég sakna mest úr skól-
anum. Við fórum saman í sturtu á
hverjum degi og hlógum, grétum
og grínuðumst. Þetta var yndisleg-
ur tími,“ segir Hildur Berglind og
bætir við að á meðal nemendanna
hafi myndast sterk bönd. „Það var
komin innistæða í einkahúmors-
bankann þegar náminu lauk. Einn
brandari, sem Arnmundur Ernst
bekkjarbróðir minn átti upphafið
að, var sérlega lífsseigur en hann
gekk út á að hníga niður örmagna
þegar maður prumpaði. Oft þarf
ekki meira til en að segja eitthvað
eitt orð og þá liggja allir í kasti.“
Gömul og úrsérgengin gildi
Í gærkvöldi var frumsýning á
verkinu Hús Bernhörðu Alba eftir
García Lorca í Gamla Bíói, en
Hildur Berglind skrifaði undir
eins árs ráðningarsamning við
Borgarleikhúsið strax í kjölfar
útskriftarinnar úr LHÍ og er þetta
fyrsta verk hennar í leikhúsinu.
Í verkinu leikur Hildur Berg-
lind yngstu dóttur ekkjunnar
Bernhörðu Alba, persónu sem
leikkonan lýsir sem sterkri og
áræðinni en þó viðkvæmri sem
berst af öllum lífs og sálar kröft-
um fyrir frelsinu. Alls koma
um sjötíu konur að sýningunni
en í hlutverki Bernhörðu Öldu,
heimilisharðstjórans sem heldur
dætrum sínum fimm föngnum í
húsi sínu, er Þröstur Leó Gunn-
arsson. „Leikstjórinn Kristín
Jóhannesdóttir vildi sýna fram á
að feðraveldinu er ekki eingöngu
stjórnað af körlum, að gömlum
og úrsérgengnum gildum er við-
haldið jafnt af konum sem körlum.
Kristín tekur súrrealíska nálgun á
verkið og því átti þetta hlutverka-
val líka vel við. Ég myndi lýsa
þessari sýningu sem mjög ögr-
andi, enda fór hún illa í Franco-
stjórnina á Spáni og Lorca var
skotinn í hausinn nokkrum vikum
eftir frumsýningu hennar,“ segir
Hildur Berglind sem verður 24
ára gömul á mánudag og hyggst þá
fagna með meðleikurum sínum.
Nekt er ekki tabú
fyrir mér en það fer eftir
samhenginu hvort birting
hennar eigi við.
Kjartan
Guðmundsson
kjartan@frettabladid.is
Mistökin eru af hinu góða
Hildur Berglind Arndal útskrifaðist úr leiklistardeild Listaháskólans í vor og þreytir frumraun sína í verkinu Hús Bernhörðu
Alba í Borgarleikhúsinu. Þegar leikkonan steig fyrst á svið segist hún hafa upplifað frelsi til að fá að vera asnaleg.
FRUMRAUN Hildur
Berglind Arndal seg-
ist sakna stundanna í
sturtu með stelpun–
um í bekknum í leik-
listardeild LHÍ einna
mest úr skólanum.
„Við fórum saman í
sturtu á hverjum degi,
stundum tvisvar á
dag, og hlógum, grét–
um og grínuðumst.
Þetta var yndislegur
tími,“ rifjar hún upp.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR