Fréttablaðið - 19.10.2013, Blaðsíða 76
KYNNING − AUGLÝSINGFyrirtækjagjafir LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 20136
Ýmsar rannsóknir hafa sýnt að hagnaður fyrirtækja þar sem vinnugleði er ríkjandi er
nær tvöfalt meiri en samanburðar-
fyrirtækjanna og að vinnugleði geti
dregið úr fjarveru starfsfólks sem
og minnkað starfsmannaveltu. Því
liggur mikil ábyrgð hjá stjórnendum
að skapa umhverfi sem ýtir undir
starfsánægju. Tækifæri til slíks veit-
ist í desember. Hér eru hugmyndir
að ýmsu sem fyrirtæki
og starfsmannafélög
geta gert til að létta
fólki lundina í að-
draganda jóla.
Skrautið bætir
Jólin væru lít il-
fjörleg án örlítils
jólaglingurs. Jóla-
stemningin verður síst
lakari með því að hengja
upp jólaseríur, setja upp
jólatré eða aðrar fallegar
skreytingar í glugga og
víðar.
Hressingin kætir
Leiðin að hjarta mannsins er í
gegnum magann. Að bjóða öðru
hvoru upp á hressingu af ýmsu tagi
hressir andann og geðið og eykur
vinnugleðina. Veitingarnar geta
verið af ýmsum toga, bæði sætar
og hollar.
Jólagleði
Hefð er fyrir því að fyrirtæki bjóði
starfsmönnum sínum á jólahlað-
borð á aðventunni. Slíkt er alltaf vel
þegið enda gaman að borða góðan
mat og lyfta sér upp. Vitanlega er
slík uppákoma kostnaðarsöm fyrir
fyrirtæki eða starfsmannafélög.
Því væri möguleiki að skipta þeim
út fyrir aðrar uppákomur á borð við
jóladiskótek, jólaglögg eða jafnvel
jólakarókí.
Litlu jólin
Litlu jólin eru algeng í grunnskól-
um en hafa einnig breiðst út víðar í
samfélaginu, bæði í vinahóp-
um og á vinnustöðum.
Þau fara þannig fram
að allir koma með
eina litla innpakk-
aða gjöf sem má
ekki kosta meira en
ákveðin upphæð,
til dæmis 500 eða
1.000 krónur. Síðan
eru pakkarnir merkt-
ir með númeri og dregið
um hver fær hvaða pakka.
Eftir á er gaman að giska á
hver gefandinn er.
Nuddið eykur vellíðan
Vöðvabólga og önnur stoð-
kerfisvandamál eru algengustu
heilsufarsvandamálin á vinnustöð-
um, þar sem kyrrseta, streita, röng
líkamsbeiting og álag eru helstu
orsakaþættirnir. Því væri ekki úr
vegi að fá nuddara á vinnustaðinn til
dæmis vikurnar fyrir jól. Hægt væri
að bjóða upp á herðanudd eða eitt-
hvað meira í tuttugu mínútur eða
svo. Með þessu mætti auka vellíðan
starfsmanna.
Góðar vinnustundir á
aðventunni
Fyrirtæki og starfsmannafélög geta gert ýmislegt til
að létta starfsmönnum lundina í jólavertíðinni.
Það er fátt ljúffengara en gómsætir ostar með góðu meðlæti. Hjá MS er framleitt mikið úrval af myglu-
ostum og föstum bragðmeiri ostum
og hefur bæst talsvert við af ostum á
síðustu misserum. Ljótur og Auður
eru ostar sem búnir eru til í Búðar dal
og hafa á frekar skömmum tíma náð
miklum vinsældum meðal neytenda
að sögn Aðalsteins H. Magnússonar,
sölustjóra hjá MS. „Við bjóðum upp
á sjö stærðir af fyrirfram pökkuðum
ljúffengum ostakörfum. Í öllum körf-
unum eru mygluostar úr Dölunum
í aðalhlutverki en þeim fylgja einn-
ig ostakex og sultur. Ódýrasta osta-
karfan kostar 3.000 kr. en einnig
er hægt að velja
stærri og veglegri
körfur sem inni-
halda fjölbreytt
úrval mygluosta
og annarra osta. Í öllum körfunum er
hugað vel að því að úrval af ostum og
meðlæti sé fjölbreytt og að ostarnir
passi vel saman á ostabakka.“
MS býður einnig upp á t vær
óvenju veglegar ostakörfur sem inni-
halda kjötmeti og sælgæti. „Önnur
þeirra inniheldur hamborgarhrygg
og kryddpylsu en hin úrval af góðu
sælgæti. Þær eru dýrari en verðbil-
ið á ostakörfum okkar er frá 3.000
til 12.000 kr. þannig að allir ættu
að finna eitthvað við sitt hæfi.“
Þótt ostakörfurnar séu fyrirfram
tilbúnar geta viðskiptavinir alltaf
tekið út ákveðna osta og bætt öðru
inn, til dæmis bók, geisladiski eða
vínflösku. „Þá er
þeim viðbót-
um skilað til
okkar að Bitru-
hálsi og
við bætum í körfurnar. Við þjónust-
um fyrst og fremst fyrirtæki hér á
Bitruhálsi en einstaklingar geta keypt
ostakörfur okkar í flestum matvöru-
verslunum landsins enda pökkum
við í mörg þúsund ostakörfur fyrir
jólin.“
Aðrir ostar eins og Gullostur og
Camembert eru ostaunnendum að
góðu kunnir og þykja ómissandi á
ostabakkann. Á undanförnum árum
hefur færst í aukana áhugi neytenda á
föstum bragðmeiri ostum á borð við
sterkan Gouda-ost og Óðals-Tind en
sá síðarnefndi er nýjasti osturinn í
Óðalsostalínunni að sögn Aðalsteins.
„Hann er með góðu karamellubragði
og líkist svolítið Primadonna-ostin-
um fyrir þá sem þekkja hann.“
Nánari upplýsingar má finna á
www.ms.is.
Ljúffengar ostakörfur í öllum stærðum
Fallegar og gómsætar ostakörfur frá MS hafa lengi verið vinsælar gjafir til starfsmanna. Fyrirtækið býður upp á sjö stærðir af
körfum sem innihalda osta og meðlæti sem hentar öllum. Hægt er að bæta í körfurnar persónulegum gjöfum.
„Í öllum körfunum er hugað
vel að því að úrval af ostum
og meðlæti sé fjölbreytt,“ segir
Aðalsteinn H. Magnússon,
sölustjóri hjá MS. MYND/GVA
GJAFAKORT
Gjafakort Kringlunnar er gjöf af öllu hjarta.
Þú færð kortið á þjónustuborðinu á 1. hæð
við Hagkaup eða á gjafakort.kringlan.is