Fréttablaðið - 19.10.2013, Síða 100

Fréttablaðið - 19.10.2013, Síða 100
19. október 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 64 LEIKLIST ★★ ★★★ Óvitar eftir Guðrúnu Helga- dóttur í Þjóðleikhúsinu LEIKSTJÓRN: GUNNAR HELGASON. LEIKMYND: ILMUR STEFÁNSDÓTTIR. BÚNINGAR: ÞÓRUNN MARÍA JÓNS- DÓTTIR. TÓNLIST: MOSES HIGHTOWER. HLJÓÐMYND: ANDRI ÓLAFSSON, KRISTINN GAUTI EINARSSON, KRISTJÁN SIGMUNDUR EINARSSON. LÝSING: HALLDÓR ÖRN ÓSKARSSON. Hin nýja sýning Þjóðleikhússins á barnaleikriti Guðrúnar Helgadótt- ur, Óvitum, er fyrir margra hluta sakir furðulegt verk. Leikstjórinn, Gunnar Helgason, hefur kosið að sviðsetja leikinn sem hreinan grínleik. Honum finnst auðsæi- lega sem verkið standi eða falli með því hversu mikið sé hægt að hlæja að því. Leikmynd, búningar og jafnvel leikgervi eru meira og minna einhvers konar fígúruverk sem ég læt öðrum eftir að lýsa eða ættfæra. En Óvitar er ekkert grínleik- rit. Þar er brotið upp á mjög alvar- legum spurningum um samskipti barna og uppalenda, virðingar- leysi fullorðna fólksins fyrir unga fólkinu sem er enn ofurselt valdi þess, valdi sem hinir fullorðnu kunna svo skelfilega oft ekki að fara með og taka ábyrgð á. Þar er fjallað um brotnar fjölskyldur, einmanaleik, örvæntingu, heimil- isofbeldi, afneitun og þöggun. Hið einfalda snilldarbragð Guðrúnar, að snúa við hlutverkum, láta börn leika fullorðnar persónur, full- orðna leikara börn, framandger- ir svo margt í hegðun okkar sem við höfum annaðhvort afneitað eða orðið vanablind á; henni tekst þannig með meðulum leikhússins að afhjúpa óvitaskap hinna full- orðnu í sínum fjölmörgu fárán- legu myndum, jafnframt því sem hún dregur fram visku barnanna, skilning þeirra á því sem máli skiptir: vináttu, trúnaði, hollustu, samhjálp. Þau hafa ekki enn náð að týna sér í eftirsókn eftir vindi, deyðandi kapphlaupi um lífsgæði sem eru í reynd engin gæði, aðeins veraldlegt hjóm og hismi. En þó að Guðrúnu liggi mikið á hjarta er hún enginn siðaprédik- ari. Hún er húmanisti sem kann að nota húmorinn í þágu alvör- unnar. Hún kann að skapa hið rétta jafnvægi milli harmleiks- ins og háðleiksins, að láta fyndn- ina og gleðina kallast á við treg- ann og sorgina. Hún kann að milda ádeiluna með elskulegu brosi. Þetta fer allt saman að langmestu leyti forgörðum í þeim leikstjórnaráherslum sem Gunn- ar kýs að leggja, endalausum til- raunum hans til að fitja upp á alls kyns sprelli og sniðugheitum. Það er helst ef leikendur fá að vera í friði fyrir honum og bara leika af einlægni að þeir nái tangarhaldi á angistinni sem að baki býr; það gerir hún til dæmis, hún Ágústa Eva Erlendsdóttir þegar hún í hlut- verki Dagnýjar reynir að hreyfa við foreldrum sínum og hrópar til þeirra ein mikilvægustu orð leiks- ins: „Okkur vantar ykkur!“ Það er ekki nóg að hafa til hnífs og skeið- ar, fín föt að klæðast í og fínt hús að búa í. Maðurinn lifir ekki af einu saman brauði, var eitt sinn sagt; Óvitar Guðrúnar eru á sinn hátt tilbrigði við það stef, tilbrigði sem leiðir beint inn í samtíma sem er svo oft ráðvilltur og vegalaus. Slík andartök eru því miður sjaldséð í sýningunni. Púðrinu er eytt í annað, hringsviðið snýst og snýst, líkt og það sé orðið að hring- ekju; svo er alltaf verið að syngja og dansa. En rokkuð og ólagræn tónlist Moses Hightower virðist samin fyrir unglinga og dansatrið- in eru hvorki fugl né fiskur, enda dans í söngleikjastíl ekkert barna meðfæri. Ég náði ekki að greina nema lítið eitt af söngtextunum, en það sem ég heyrði benti ekki til að ég væri að missa af miklu. Verk Guðrúnar þarf ekki á svona tertuskreytingum að halda. Gunnar Helgason kann sann- arlega að setja kraft í „showið“, þrusukraft meira að segja; það hefur hann sýnt og sannað oft áður. Börnin voru enda ófeimin og óþvinguð, léku bæði af einbeit- ingu og ósvikinni leikgleði og víst hittu þau stundum á skemmtilega tóna. Samleikur þeirra Jóhann- esar Hauks Jóhannessonar og nýliðans Odds Júlíussonar í burð- arhlutverkunum virtist á nokk- uð góðri leið og gæti átt eftir að batna, einkum þegar Oddur nær að slaka betur á og finna sig í sínu hlutverki. Af öðrum í eldri hópn- um vakti Friðrik Friðriksson eftir- tekt fyrir fínleg vinnubrögð, getu til að sýna hið barnslega án þess að grípa til yfirborðslegra takta; það var vel gert hjá leikara sem hefur vaxið og mætti fara að sjást í stærri hlutverkum. Að lokum: vanmetum ekki börn sem áhorfendur. Rétt eins og við fara þau ekki í leikhús til þess eins að sækja sér stundarafþreyingu, af henni fá þau meira en nóg ann- ars staðar. Þau koma þangað til að láta segja sér góðar sögur, kynn- ast fólki sem býr að óvenjulegri og á einhvern hátt merkilegri lífs- reynslu, læra meira um veröld- ina sem bíður þeirra handan við hornið. Þau eru að leita að húmor, mannlegri hlýju, lífsvisku – sem nóg er af í verki Guðrúnar Helga- dóttur. Það sýndi hin snjalla upp- færsla Brynju Benediktsdóttur á því fyrir þrjátíu árum. Við verðum að vona að næsta uppfærsla Þjóð- leikhússins, hvenær sem hún nú verður, sýni það jafn vel. Jón Viðar Jónsson NIÐURSTAÐA: Kraftmikil og lit- skrúðug sýning sem líður mjög fyrir grunnfærna nálgun leikstjórans að verki Guðrúnar Helgadóttur. Óvitar er EKKI skrípó ÓVITAR „Leikmynd, búningar og jafnvel leikgervi eru meira og minna ein- hvers konar fígúruverk sem ég læt öðrum eftir að lýsa eða ættfæra,“ segir Jón Viðar. Sýning á vatnslitamyndum verður opnuð í dag í sal Íslenskrar grafíkur að Tryggvagötu 17. Þar sýnir Bergljót Svanhildur Sveinsdóttir list sína. Hún málar einkum abstrakt og kveðst hafa sótt í þá tegund myndlistar með tímanum. „Ég hef lengi stundað nám við Myndlistarskóla Kópavogs mér til ánægju, er eilífðarstúdent þar og finnst frábært að upplifa fram- farir þótt aldurinn færist yfir, enda hef ég góða kennara. Eftir að ég hætti að vinna gefst mér líka meira tóm til að sinna listinni,“ segir hún glaðlega. Sýningin verður opin fimmtudaga til sunnudaga til 3. nóvember milli klukkan 14 og 18. Inngangur er hafnarmegin. Málar einkum abstrakt Bergljót Svanhildur Sveinsdóttir opnar sýningu í dag í sal Íslenskrar grafíkur að Tryggvagötu 17. Ljósmyndasýningin Dreggjar sum- arsins verður opnuð í dag í List- húsi Ófeigs að Skólavörðustíg 5. Þar sýnir Leifur Þorsteinsson myndir sínar sem sýna kyrrð og ró. „Ég geng um borgina, gróin hverfi, þar sem dreggj- ar sum- arsins koma í ljós, laufið fellur, stólarnir eru auðir og reiðhjólin eru heima við. Enginn á ferli nema ljósmyndar- inn,“ segir hann. Listhús Ófeigs er opið virka daga frá 10 til 18 og 11 til 16 á laugardögum. Dreggjar sumarsins MENNING Tónleikaröð með ungum söngvurum Eflum ungar raddir Kaldalón — Veturinn 2013–2014 Einu sinni í mánuði í vetur verða tónleikar með ungum söngvurum sem eru í framhaldsnámi og að stíga fyrstu skrefin sem atvinnumenn á tónlistar brautinni. Dagskrá þeirra verður því mjög fjölbreytt, allt frá ljóðasöng og óperuaríum yfir í jazz og söngleikjatónlist. Samfélagssjóður eflu verkfræðistofu styrkir tón- leikana sem haldnir eru í samstarfi við Hörpu. Tónleikarnir hefjast kl. 16:00 Ókeypis aðgangur Sjá nánar á www.harpa.is Kristín Sveinsdóttir mezzo 20. október Aðalsteinn Már Ólafsson baritón 26. janúar Unnur Helga Möller sópran 23. mars Rúnar Kristinn Rúnarsson söngleikjatónlist 24. nóvember Ingibjörg Fríða Helgadóttir jazz 23. febrúar Kristján Jóhannesson baritón 13. apríl www.tjarnarbio.is Miðasalan er opin frá kl. 15:00-18:00 þri-fös midasala@tjarnarbio.is / 527-2100 / midi.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.