Fréttablaðið - 19.10.2013, Síða 62

Fréttablaðið - 19.10.2013, Síða 62
| ATVINNA | Jötunn Vélar er framsækið fyrirtæki sem sérhæfir sig í sölu á vélum og búnaði tengdum landbúnaði, grænum svæðum og jarðvinnuverktökum. Fyrirtækið hefur frá upphafi lagt mikla áherslu á að veita viðskiptavinum sínum góða og hraðvirka þjónustu. Meðal helstu vörumerkja sem fyrirtækið er innflytjandi að eru: Massey Ferguson, Valtra, Pöttinger, Schaffer og McHale. Auk þess er varahlutaþjónusta við önnur vörumerki ört vaxandi. Má þar nefna New Holland, Zetor, Case, Steyr, Fendt, Terex, JCB, Ford. Jötunn Vélar eru með starfssöðvar á Selfossi og Akureyri og mun Reykjavík bætast í hópinn innan skamms. Hjá fyrirtækinu starfa 27 manns. Hæfniskröfur: Þann 1. nóvember nk. munu Jötunn Vélar ehf. taka við sem umboðsaðili Toro á Íslandi. Í tilefni þess munu Jötunn Vélar opna starfsstöð á höfuðborgarsvæðinu á næstunni. Toro er leiðandi á heimsvísu í framleiðslu á tækjum og búnaði fyrir golfvelli og græn svæði. Fyrirtækið var stofnað árið 1914 og er stærsti framleiðandi á sínu sviði í heiminum. Aðalstöðvar Toro eru í Bandaríkjunum. Óskum eftir að ráða starfsmann í varahluta- og viðgerðarþjónustu með aðsetur í Reykjavík. Starfssvið: Umsóknarfrestur er til og með 25. október nk. Reykjavík LEIKSKÓLASTJÓRI Leikskólinn Tjarnarskógur á Egilsstöðum auglýsir eftir skólastjóra. Á Tjarnarskógi eru um 170 börn á 8 deildum og tveimur starfsstöðvum, Tjarnarlandi og Skógarlandi. Tjarnarskógur horfir til fjölgreindarkenninga Gardners í sínum starfsaðferðum. Gildi skólans eru Gleði, Virðing, Samvinna og Fagmennska. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem er tilbúinn til að taka þátt í að stjórna og leiða gott faglegt starf í lýðræðislegu skólaumhverfi. Frumkvæði, góðir skipulagshæfileikar og samstarfsvilji eru mikilvægir eiginleikar. Í Tjarnarskógi leggjum við áherslu á samvinnu, nýtingu mannauðs og skapandi lausnaleit. Jákvæðni og lipurð í samskiptum eru eiginleikar sem við metum mikils. Hæfniskröfur byggja á 10. gr. laga um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla nr. 87/2008. Reynsla af stjórnunarstörfum er mikilvægur kostur og fram- haldsmenntun á sviði stjórnunar er æskileg. Laun skv. kjarasamningi Félags stjórnenda í leikskólum og launanefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga. Upplýsingar veita Guðný Anna Þóreyjardóttir, leikskólastjóri, í símum 4700650/4700660 eða á netfanginu gudnyanna@egilsstadir.is eða Helga Guðmundsdóttir, fræðslufulltrúi, í síma 4700700 eða á netfanginu helga@egilsstadir.is. Umsóknir um stöðuna skulu berast til Fljótsdalshéraðs, Lyngási 12, 700 Egilsstaðir eða á netfangið helga@egilsstadir.is í síðasta lagi 28. október nk. Umsókninni skal fylgja greinargott yfirlit yfir störf umsækjanda og menntun, stjórnunarreynslu og hver þau verkefni sem hann hefur unnið við og varpað geta ljósi á færni hans til að sinna stjórnunarstarfi. Kerfisstjóri Grindavíkurbær auglýsir starf kerfisstjóra Grindavíkurbæjar laust til umsóknar. Helstu verkefni kerfisstjóra • Annast daglegan rekstur net-, síma- og tölvukerfis Grindavíkurbæjar. • Uppsetning á vél-, hug- og jaðarbúnaði. • Umsjón með tölvum og öðrum vélbúnaði. • Notendaumsýsla, stofnun og viðhald notenda. • Eftirlit með hugbúnaði. • Umsjón og eftirlit með fjárhagskerfum bæjarins. • Umsjón með afritun og geymslu rafrænna gagna. • Innkaup og ráðgjöf vegna vél- og hugbúnaðar fyrir stofnanir bæjarins. • Ábyrgð á að tölvudeild sé innan fjárheimilda hverju sinni. • Almenn ráðgjöf og aðstoð við starfsmenn bæjarins. Menntunar- og hæfniskröfur: • Menntun á sviði upplýsingatækni, svo sem kerfisfræði, kerfisstjórnun eða sambærilegt. • MCSA, MCSE eða MCITP vottun æskileg. Haldbær reynsla af sambærilegu starfi við rekstur tölvukerfa. • Góð net- og hugbúnaðarþekking og þekking á vélbúnaði. Góð þekking á helstu stýrikerfum. Þekking á SQL server, Exchange server, Windows o.fl Lögð er áhersla á frumkvæði í starfi, skipulagshæfni, sveigjan- leika sem og afbragðs þjónustulund, og færni í mannlegum samskiptum. Kerfisstjóri hefur starfsaðstöðu á bæjarskrifstofu Grindavíkurbæjar. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Suðurnesja og þarf umsækjandi helst að geta hafið störf 1. desember 2013. Grindavíkurbær er um 2.900 íbúa samfélag í næsta nágrenni höfuðborgarsvæðisins. Í Grindavík er lögð áhersla á fjölskylduvænt umhverfi, íþróttastarf og heilsueflingu í skóla og leikskóla. Starfsmenn Grindavíkurbæjar eru um 170, en bærinn býður upp á alla helstu opinbera þjónustu. Starfsmenn Grindavíkurbæjar hafa sett sér eftirfarandi gildi sem unnið er eftir í starfsemi bæjarins: jafnræði, jákvæðni, þekking, framsækni og traust. Umsóknarfrestur er til og með 25. október nk. Umsókn skal fylgja ferilskrá með upplýsingum um menntun og starfsferil. Umsóknum skal skila á bæjarskrifstofu Grindavíkurbæjar merkt „Kerfisstjóri“ eða í netfangið jont@grindavik.is. Nánari upplýsingar um starfið gefur kerfisstjóri Grindavíkurbæ- jar, í síma 660-7326 eða í tölvupósti: tolvudeildin@grindavik.is, Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs 19. október 2013 LAUGARDAGUR12
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.