Fréttablaðið - 24.10.2013, Page 12
24. október 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 12
FLÓÐ Í MEXÍKÓ
Kona í bæjarfélag-
inu Papa Gallo de
Tierra Caolorada,
nálægt borginni
Acapulco, skoðar
ástand heimilis
síns sem eyðilagð-
ist þegar fellibyl-
urinn Manuel reið
þar yfir nýlega
og fór svo aftur
undir flóð í gær,
þegar fellibylurinn
Raymond mætti
til leiks.
DREPINN Á VEST-
URBAKKANUM
Ísraelskir hermenn
bera á milli sín lík
af Palestínumanni,
sem sakaður er
um að hafa borið
ábyrgð á sprengju-
árás í Tel Avív árið
2012.
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Elica háfar
ÁSTAND
HEIMSINS
1
1
4
4
2
2
5
5
3
3
BEÐIÐ EFTIR
MÖMMU Í PAKISTAN
Sannam Othman er sex
ára og vinnur í múr-
steinsverksmiðju í einu
úthverfa Islamabad.
Hún er þarna með
hálfs annars árs göml-
um bróður sínum, sem
heitir Zardar, en þau
eru þarna að loknum
vinnudegi að bíða eftir
mömmu sinni, sem
einnig vinnur í sömu
verksmiðju.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
NORNAVAL Á ENGLANDI Anna Dixon frá Glastonbury hreppti hnossið eftir prufur
fyrir nornastarf á ferðamannastaðnum Wooky Hole Caves í Somerset.
Save the Children á Íslandi
MYNTBREYTING Á KÚBU Mynd af byltingarmanninum Ernesto „Che“ Guevara á hillum í matarverslun á Kúbu. Stjórnin þar
ætlar að hætta að vera með tvöfaldan gjaldmiðil og sameina hann smám saman í eina mynt.