Fréttablaðið - 24.10.2013, Síða 53
FIMMTUDAGUR 24. október 2013 | MENNING | 41
➜ Pablo Francisco
er þekktur fyrir frá-
bærar eftirhermur
af mönnum eins
og til dæmis Arnold
Schwarzenegger og
Jackie Chan. Einnig
af Don LaFontaine,
sem er þekktastur
sem rödd kvik-
myndatreileranna,
svo dæmi séu
tekin.
Hljómsveitin Ultra-Mega Techno-
bandið Stefán stendur fyrir
sérstöku forhlustunarpartíi á
skemmtistaðnum Harlem í kvöld.
Nýjasta plata sveitarinnar sem
heitir !, verður spiluð klukkan
21.00 í hátalarakerfi hússins og
er frítt inn í partíið.
„Á ! notumst við nær eingöngu
við lifandi hljóðfæraupptökur
en fyrsta platan okkar var nær
eingöngu gerð úr forritavinnslu
úr lúppum, töktum og elektrón-
ískum, stafrænum verkfærum,“
segir Vignir Rafn Hilmarsson,
meðlimur sveitarinnar.
Þá eru gestir hvattir til þess
að koma með ananas eða í gulum
klæðum sem minna á ananas en
frítt Thule-léttöl verður í boði á
meðan birgðir endast.
! er önnur plata sveitarinnar
sem fylgir eftir plötunni Circus
sem kom út fyrir fimm árum. - glp
UMTBS með
hlustunarpartí
FORHLUSTUN Í KVÖLD Ultra-Mega
Technobandið Stefán stendur fyrir
hlustunarpartíi á Harlem í kvöld.
MYND/HÖRÐUR SVEINSSON
„Hann er að koma hingað til
lands í fjórða sinn en hann er með
glænýja sýningu,“ segir Kristinn
Bjarnason, framkvæmdastjóri
Skapandi viðburða, sem stend-
ur á bak við uppistandssýningu
Pablos Francisco í Hörpu í kvöld.
Með Francisco í för er uppi-
standarinn Sean Savoy, en sá
kom einnig með honum hingað
til lands árið 2010. „Sean Savoy
kom heldur betur á óvart og stal
senunni,“ bætir Kristinn við. Þeir
félagar ætla koma fram með nýtt
efni í kvöld.
Pablo Francisco hefur í mörg
ár verið einn þekktasti og virt-
asti uppistandari heimsins og
hefur, eins og fyrr segir, fjórum
sinnum komið fram hér á landi.
Spurður út í kröfulista uppi-
standarans segir Kristinn: „Hann
er nú ekki með neinn svakalegan
kröfulista, síðast vildi hann bara
fá sterkan ítalskan Subway, kók,
kaffi og aðra eðlilega hluti en
engin bleik handklæði.“
Francisco ætlar að stoppa á
Íslandi í nokkra daga, en hann
er mjög hrifinn af landi og þjóð.
„Hann stoppar lengur núna en
síðast, fer í Bláa lónið og svo eru
miklar líkur á því að hann kíki í
bæinn um helgina,“ bætir Krist-
inn við.
Francisco á aðdáendahóp í
Færeyjum og kemur sá hópur
sérstaklega til landsins til að sjá
uppistandarann.
Kristinn segir það vera mjög
gaman að standa í þessum inn-
flutningi og telur að uppistand-
ið ætti að geta gefið fólki ágætis
skammt af gleðiefni fyrir vetur-
inn.
- glp
Einn þekktasti uppistandari heims skemmtir í Hörpu
Uppistandarinn Pablo Francisco skemmtir í Hörpu í kvöld en hann mun dvelja hér á landi í nokkra daga. Er einn sá vinsælasti í dag.
FLYTUR INN PABLO Kristinn Bjarnason, framkvæmdastjóri Skapandi viðburða, lofar mikilli
skemmtun í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Tæplega níu þúsund manns höfðu
í gær séð nýtt textamyndband
sem popparinn Steinar sendi frá
sér síðastliðinn föstudag við lagið
Up. Það verður að finna á fyrstu
sólóplötu hans sem kemur út í
nóvember hjá Senu.
Textamyndbönd sem þessi hafa
verið vinsæl að undanförnu. Til
að mynda er stutt síðan Sir Paul
McCartney, Bítillinn fyrrver-
andi, gaf út textamyndband við
lagið New. Steinar er átján ára og
stundar nám við Verzlunarskóla
Íslands.
Up hefur verið spilað á öllum
helstu útvarpsstöðvum landsins
upp á síðkastið. Lagið, rétt eins
og platan, var unnið í samstarfi
við upptökuteymið Redd Lights.
Níu þúsund
séð myndband
STEINAR Fyrsta plata popparans kemur
út í nóvember. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR