Fréttablaðið - 26.10.2013, Síða 2
26. október 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 2
MENNING Náttúruminjasafn Íslands
efnir til sérstakrar rannsóknar til
að varpa ljósi á endurtekna fundi
rostungs- og hvalabeina í fjörunni
í Staðarsveit á Snæfellsnesi. Undir-
liggjandi er kenning um að frægir
taflmenn, skornir úr rostungstönn-
um, eigi sér íslenskan uppruna.
Hilmar J. Malmquist, forstöðu-
maður Náttúruminjasafnsins,
vísar til þess hversu sérstakt það
er að þrjár hauskúpur rostunga
fundust með skömmu millibili í
fjörunni í landi Barðastaða í Stað-
arsveit. Um einstakan fund sé í
raun að ræða, en Náttúruminja-
safnið fékk í gær eina af hauskúp-
unum þremur að gjöf.
Hilmar segir að gjöfin gefi inn-
sýn í það sem kemur til greina á
sýningu safnsins í framtíðinni. Í
gagnagrunni eru upplýsingar um
rúmlega 50 beinafundi rostunga,
og er elsta sýnið frá 1884. „Það
stendur til að fara í aldursgrein-
ingu á stórum hluta þessara beina.
Það mun bregða nýju ljósi á þessa
fundi og komur þessara stóru og
áhugaverðu dýra í gegnum aldirn-
ar,“ segir Hilmar.
Fréttablaðið sagði frá beina-
fundinum í mars, en það var Örn
Erlendsson, forstjóri Triton, sem
fann hausana þrjá og stakar rost-
ungstennur í fjörunni við sumar-
hús sitt í apríl 2008. Í viðtali við
Fréttablaðið sagði Örn frá því að
hann hefði sóst eftir því að grip-
irnir væru rannsakaðir sem ekki
skilaði árangri á þeim tíma.
„Þetta er mjög athyglisvert, þ.e.
margir fundir af þessum toga á
sama stað,“ segir Hilmar og bætir
við að þetta vilji safnið láta kanna
betur. „Því verður efnt til rann-
sóknar undir forystu Náttúru-
minjasafnsins með það fyrir
augum að reyna að varpa ljósi á til-
urð þessara sjávarspendýrabeina
og forsögu. Aldur beinanna verður
m.a. ákvarðaður með C-14 aldurs-
greiningu, jarðfræði fundarstaðar-
ins rannsökuð, spáð í strandgrunn
og hafstrauma og kafað í sögulegar
heimildir.“
Ráðgert er að rannsóknarverk-
efnið verði að hluta til á könnu
meistaranema við Jarðvísindadeild
Háskóla Íslands en auk HÍ koma að
verkefninu Náttúrufræðistofnun
Íslands og Fornleifafræðistofan.
svavar@frettabladid.is
Lesa í bein rostunga
í leit að skýringum
Náttúruminjasafn Íslands stendur fyrir rannsókn á beinum rostunga sem fundist
hafa á Íslandi. Aldursgreining mun skýra komur þeirra í gegnum aldirnar. Safninu
hafa borist að gjöf bein úr einstökum fundi í Staðarsveit á Snæfellsnesi.
DÝRGRIPUR Guðmundur G. Þórarinsson, verkfræðingur og fyrrverandi alþingismað-
ur, færði NÍ hauskúpuna að gjöf í gær. Örn Erlendsson, sem fann gripinn, er hér með
Guðmundi og Hilmari J. Malmquist, forstöðumanni NÍ, þegar hún var afhent.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Á spýtunni hangir einnig kenning Guðmundar G.
Þórarinssonar um að elstu taflmenn heims með
nútímaútlit, Lewis-taflmennirnir, séu íslenskir
að uppruna. Taflmennirnir fundust árið 1831 á
skosku eyjunni Lewis. Þeir eru flestir skornir úr
rostungstönn og taldir gerðir á árabilinu 1150 til
1200. Taflmennirnir eru taldir meðal merkustu forn-
gripa í eigu Breska þjóðminjasafnsins.
Umdeild kenning um
íslenskan uppruna
BJÓÐA UPP Á VALKOST 20
Ólafur og Stefán Ingi Stefánssynir bjóða gestum og gangandi upp á sojakjötsúpu á
Kjötsúpudeginum á Skólavörðustíg.
GOTT AÐ HORFA Á GULLNU SKÝIN 28
Helena Eyjólfsdóttir heldur tónleika norðan og sunnan heiða í tilefni af útgáfu
bókarinnar Gullin ský sem snýst um ævi hennar, ást og söng en líka erfi ðleika vegna
veikinda eiginmannsins.
ÞAR SEM MJÁ ER
AÐALMÁLIÐ 32
Í Kattholti við Stangarhyl er athvarf fyrir
kisulórur sem hafa lent á vergangi en líka
hótel sem ábyrgir kattaeigendur koma
sínum kisum á, meðan þeir skreppa í frí.
EITT SÍMTAL OG ÚR VARÐ
STJARNA 34
Frjálsíþróttakonan Hafdís Sigurðardóttir
hefur þurft að hafa mikið fyrir afrekum
sínum.
BLÁSKJÁR ENN Á FERÐ 40
Illugi Jökulsson var sjö ára þegar hann sá
vagnalest Rómafólks á ferð í Grikklandi og
það hafði djúp áhrif á hann. Nýlegar fréttir
af bláeygu barni rifj uðu líka upp minningu
um gamla barnabók.
Ingibjörg Benediktsdóttir hæstaréttardómari
hefur þrisvar á árinu verið ósammála því að
snúa kynferðisbrotadómi í sýknu í Hæstarétti,
nú síðast í máli þar sem maður var sýknaður af
kynferðisbroti gegn 14 til 15 ára dreng. Ingibjörg
sagði í séráliti í Hæstarétti að það mætti ekki
meta brotaþolanum það í óhag að hafa ekki kært
brotin fyrr en löngu eftir að þau áttu sér stað.
➜ Hildur Sverrisdóttir lögfræðingur hefur ákveðið að blanda sér í
oddvitaslaginn hjá sjálfstæðismönnum í Reykjavíkurborg. Hún er sú fjórða
sem sækist eftir fyrsta sætinu hjá flokknum. Hildur segir aðkallandi að
bjóða upp á nýja nálgun fyrir Sjálfstæðisflokkinn í borginni. Hildur hefur
verið á varamannabekknum lengst af á kjörtímabilinu en tók sæti Gísla
Marteins Baldurssonar þegar hann hvarf til annarra starfa fyrr í haust.
Nýr formaður Öryrkjabandalagsins
ætlar að breyta ímynd þess. Ellen
J. Calmon ætlar að þétta hóp að-
ildarfélaga bandalagsins og breyta
baráttuaðferðum. Hún segist standa
fyrir samræðu og samvinnu og telur að
formaður ÖBÍ eigi að stuðla að sam-
vinnu aðildarfélaganna.
Ástandið á Landspítalanum hefur ekki
verið jafn alvarlegt í fjóra áratugi og
það er nú segir Tómas Guðbjartsson
prófessor í skurðlækningum. Hann
sagði að ástandið á krabbameinsdeild-
inni væri sérlega slæmt, einungis fjórir
læknar við störf og löng bið eftir fyrsta
viðtali við lækni.
„Stálfrúin“ Guðrún Helga Lárusdóttir tapaði
máli gegn íslenska ríkinu í Héraðsdómi Reykja-
víkur. Guðrún krafði íslenska ríkið um endur-
greiðslu á 36 milljónum króna sem hún greiddi
í auðlegðarskatt á árunum 2010 til 2012. Hún
byggði kröfu sína á því að auðlegðarskatturinn
bryti í bága við eignarréttar- og jafnræðisákvæði
stjórnarskrárinnar og væri auk þess í andstöðu
við mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
VARKÁR Í NJÓSNAMÁLI 10
Leiðtogar Evrópusambandsríkja vilja
ekki spilla samskiptunum við Bandaríkin,
þrátt fyrir víðtækar njósnir bandarísku
leyniþjónustunnar um þá sjálfa.
PLATAÐUR Í FJÁRKÚGUN 4
Annar mannanna sem ákærðir eru fyrir
að reyna að kúga fé út úr Nóa Síríusi með
súkkulaði sem innihélt bremsuvökva segir
hinn manninn hafa platað sig upp úr
skónum.
SKIPULÖGÐ ÚT 8
Bæjarstjórn Kópavogs leggur niður stöðu sviðsstjóra sérstakra verkefna sem
Guðrún Pálsdóttir, fyrrverandi bæjarstjóri, hefur gegnt.
FRÉTTIR 2➜12
SKOÐUN 16➜18
HELGIN 20➜42
SPORT 66
MENNING 56➜74
FIMM Í FRÉTTUM FRAMBOÐ OG AUÐLEGÐARSKATTUR
LOKS HEILL HEILSU
Arnór Atlason er búinn að jafna sig á
hásinarslitum og puttabroti. Honum líkar
vel í Frakklandi.
EL CLASICO
Eft ir átta mánaða bið mætast Messi og
Ronaldo á vellinum.
FJÖRUGUR EGILL 62
Egill Ólafsson varð sextugur á árinu.
Fréttablaðið leit yfi r fj örutíu ára feril hans.
SÝNA DAUÐADANS Í MEXÍKÓ 74
Listamennirnir Snorri Ásmundsson og Auður
Ómarsdóttir sýna gjörninginn á degi hinna
dauðu í Mexíkó.
www.fronkex.is kemur við sögu á hverjum degi
NÆST ER AÐ ÉTA
ÚTSÆÐIÐ 16
Þorsteinn Pálsson um efnahagsmál.
ERU SKAPANDI GREINAR
RÉTTLAUSAR? 18
Ari Edwald um þjófnað á hugverkum.
UM VÍSINDARANNSÓKNIR
OG FJÁRFESTINGAR 18
Kristján Leósson um stuðning við rann-
sóknastörf.
FÆRUM VINÁTTU KÍNA OG
ÍSLANDS Í HÆRRI HÆÐIR 18
Ma Jisheng um samskipti Kína og Íslands.
SAMGÖNGUR Fulltrúar ríkis-
stjórnar, Reykjavíkurborgar og
Icelandair Group skrifuðu í gær
undir samkomulag þess efnis að
Reykjavíkurflugvöllur yrði starf-
ræktur í Vatnsmýrinni í núver-
andi mynd til ársins 2022. Einn-
ig var samið um að hefja vinnu
við að fullkanna aðra kosti fyrir
framtíðarstaðsetningu flugvall-
ar á höfuðborgarsvæðinu. Stofn-
aður verður stýrihópur undir
formennsku Rögnu Árnadóttur
en hún er sameiginlegur fulltrúi
þeirra þriggja aðila sem að sam-
komulaginu standa. Til þeirrar
vinnu verða boðnir hagsmunaað-
ilar á svæðinu auk fulltrúa þeirra
sem hafa beitt sér fyrir því að
flugvöllurinn í Vatnsmýri verði
áfram eða ekki.
Jón Gnarr borgarstjóri Reykja-
víkurborgar var vant við látinn
þegar blaðamaður hafði sam-
band en aðstoðarmaður hans,
Sigurður Björn Blöndal, vísaði
á Dag B. Eggertsson, formann
borgarráðs. „Ég held að þetta sé
góð lausn. Með þessu erum við
að færa málið úr þeim skotgröf-
um sem það hefur verið í undan-
farið í lausnarmiðaðri farveg.“
-ka
Samkomulag um innanlandsflugið var undirritað í Hörpu í gær:
Völlurinn í Vatnsmýri til 2022