Fréttablaðið - 26.10.2013, Blaðsíða 86
26. október 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 58
LAUGARDAGUR
SUNNUDAGUR
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
Félagsvist
14.00 Spiluð verður félagsvist í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14. Allir
velkomnir.
Síðustu forvöð
11.00 Sýningunni Net á þurru landi í Víkinni, Sjóminjasafninu í
Reykjavík, lýkur í dag.
12.00 Haustsýningu Hafnarborgar, Vísar, húsin í húsinu, lýkur í dag.
Á sýningunni eru ný verk eftir myndlistarmennina og arkitektana
Elínu Hansdóttur, Ilmi Stefánsdóttur, Marcos Zotes og Theresu
Himmer. Allir velkomnir.
13.00 Síðasti dagur sýngarinnar Áframhald eftir Gunnhildi Þórðar-
dóttur í Listasafni Reykjanesbæjar, Duushúsum. Ókeypis aðgangur.
Kvikmyndir
15.00 Pólska kvikmyndin Kanal frá 1956 er sýnd í MÍR, Hverfisgötu
105. Myndin fjallar um baráttu liðsveita pólsku andspyrnuhreyf-
ingarinnar haustið 1944. Aðgangur ókeypis.
Tónlist
16.00 Tónleikar fara fram í Neskirkju til stuðnings baráttu Hrauna-
vina fyrir verndun Gálgahrauns og til heiðurs þeim sem handteknir
voru í vikunni. Nánari upplýsingar má finna á Facebook.
20.00 Fimm ungir söngvarar syngja í Langholtskirkju. Þau sem
fram koma á sunnudagskvöld eru Davíð Ólafsson, Guðrún Matt-
hildur Sigurbergsdóttir, Jóna G. Kolbrúnardóttir, Kristín Einarsdóttir
Mantyla og Kristín Sveinsdóttir. Almennt miðaverð er 2.000 kr. en
þeir sem eru meðlimir í Listafélagi Langholtskirkju eða eru náms-
menn greiða 1.000 kr.
20.00 Fyrsta Tómasarmessan í Breiðholtskirkju í Mjódd á þessu
hausti fer fram í kvöld. Þema messunnar er Hversu dýrlegt er nafn
Drottins!
Leiðsögn
13.00 Leiðsögn um húsmuni, hönnun og handverk á Gljúfra-
steini. Guðný Dóra Gestsdóttir, forstöðumaður safnsins, Gréta
Sigríður Einarsdóttir, Jóhannes Ólafsson og Marta Guðrún
Jóhannesdóttir munu ganga með gestum um safnið. Leiðsögnin
tekur um 30 mínútur og verður á eftirfarandi tímum: 13, 14, 15
og 16. Allir velkomnir.
14.00 Leiðsögn verður í fylgd Margrétar Áskelsdóttur, sýningar-
stjóra sýningarinnar Ups and downs, Kees Visser sem nú
stendur yfir í Listasafni Íslands við Fríkirkjuveg. Þetta er síðasta
sýningarhelgin.
Samkoma
19.00 Spilað verður bridge í Breiðfirðingabúð Faxafeni 14. Allir
velkomnir.
19.00 Spilað verður bridge í Breiðfirðingabúð Faxafeni 14. Allir
velkomnir.
Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is
Opnanir
16.00 Hrefna Harðardóttir tekur á móti
gestum og gangandi á Café Loka. Hún
setur upp sýninguna Dísir. Tilvalið að
rölta við eftir viðkomu á Kjötsúpudeg-
inum á Skólavörðustíg. Allir velkomnir.
16.00 Davíð Örn Halldórsson opnar
sýninguna Elsku Pappi í Galleríi Þoku
á Laugavegi 25 milli klukkan 16 og 18.
Hann fer aðrar leiðir en venjulega í
þessari sýningu en öll verkin eru unnin
á pappír.
20.00 Uppheimar bjóða til ljóðakvölds
í húsakynnum sínum við Stórhöfða í
Reykjavík. Upplestur og bókakynning.
Allir velkomnir, aðgangur ókeypis, léttar
veitingar.
Fræðsla
13.15 Fyrsti fræðslufundur Nafnfræði-
félagsins á þessum vetri verður í stofu
106 í Odda, húsi Háskóla Íslands. Þórdís
Birna Lúthersdóttir segir frá örnefna-
skráningu í Forsæludal.
14.00 Fyrsta degi vetrar er fagnað
á Minjasafninu á Akureyri. Stoðvinir
Minjasafnsins standa fyrir forvitnilegri
og fræðandi dagskrá fyrir alla fjöl-
skylduna um ljós og lýsingu frá kolum
til rafmagnslýsingar.
Félagsvist
20.00 Félagsvist og dans verður í
Vinabæ, Skipholti 33. Spilakvöldin verða
haldin hálfsmánaðarlega á laugardags-
kvöldum og hefst félagsvistin stundvís-
lega klukkan 20.
Síðustu Forvöð
13.00 Síðasta sýningarhelgi á sýning-
unni September, Elska ég mig samt? Í
Ketilhúsinu á Akureyri. Opið alla daga
nema mánudaga og þriðjudag kl. 13-17.
Aðgangur ókeypis.
Umræður
14.00 Sveinn Einarsson ræðir um
Guðmund Kamban og skáldskap hans
á Kornhlöðuloftinu við Bankastræti.
Síðan verða almennar umræður.
Tónlist
14.00 Borg tónleikaröðin er tilraun til
að kynna íslenska raftónlist á nýjan og
skapandi hátt fyrir fólki í Breiðholti. Fer
fram á milli klukkan 14 til 16 í Menn-
ingarmiðstöðinni Gerðubergi.
19.30 Bein útsending frá Bar 11 þegar
útvarpsþátturinn Luftgítar verður
sendur út frá Tuborg-kjallaranum.
Gestir Luftgítars að þessu sinni verða
hljómsveitarmeðlimir Brain Police.
Verður farið yfir sögu sveitarinnar með
meðlimum hennar og klukkan 21 hefj-
ast svo tónleikar með sveitinni.
22.00 The Activators frá Lincoln og Kill
Pretty frá Salford koma fram á Gaukn-
um í kvöld auk Dýrðarinnar, Fivebellies
og Caterpillarmen. The Activators er 10
manna sveit sem hét áður The Valid-
ators. Aðgangseyrir er 1.500 krónur.
22.00 KK og Maggi syngja og leika á
Café Rosenberg. Aðgangseyrir krónur
2.000.
23.00 Ingvar Grétarsson og Tómas
Tómasson skemmta á Obladío-
blada,Frakkastíg 8.
Útivist
10.00 Hjólreiðaferð frá Hlemmi. Hjólað
er í 1 til 2 tíma um borgina í rólegri
ferð. Allir velkomnir og þátttaka er
ókeypis. Upplýsingar á vef LHM.is.
EKKI
MISSA
AF
Street-danseinvígi
Íþróttahús Seljaskóla
Einvígi í street-dansi fer fram
í íþróttahúsi Seljaskóla í dag.
Í keppninni mætast street-
dansarar, bæði einstaklingar
og hópar, og heyja danseinvígi
í hiphop, dancehall, waacking,
breikdansi og popping.
Gestadómari í keppninni er
dansarinn Emilio Austin Jr., öðru
nafni Buddha Stretch, en hann
hefur samið dansa fyrir popp-
stjörnur á borð við Michael Jack-
son, Will Smith og Mariuh Carey.
Alls keppa fi mmtíu dansarar
á aldrinum þrettán til 26 ára.
Keppnin hefst klukkan 14.
Reykjavík
Grunartangi
Akranes
Borgarnes
Ferðaþjónustufæri
við Akraneshöfn !
Faxabraut 1 til sölu – tilboð óskast
Faxaflóahafnir sf. óska eftir kauptilboðum í fasteignina Faxabraut 1,
hafnarhúsið við Akraneshöfn, og munu horfa sérstaklega til bjóðenda
sem ráðgera að reka þarna veitingastað eða aðra þjónustustarfsemi.
Faxaflóahafnir og Akraneskaupstaður vilja stuðla að fjölbreyttri starf-
semi við Akraneshöfn, einkum í tengslum við haftengda ferðaþjónustu.
Húsið sjálft er vel fallið til að hýsa veitingarekstur eða ýmsa þjón-
ustustarfsemi og staðsetningin er einstök, frábært útsýni yfir höfnina í
grennd við vitana á Breiðinni og Langasandi.
Húsið er tvær hæðir, samtals 210,6 fermetrar að gólffleti.
Verönd á efri hæð snýr í suður.
Leigulóð fylgir húsinu samkvæmt drögum að deiliskipulagi.
Húsið var byggt úr steinsteypu á árinu 1982.
Starfsemi Akraneshafnar hefur síðan þá verið þarna,
nú síðast í nafni Faxaflóahafna sf.
Nánari upplýsingar og gögn um eignina má nálgast á skrifstofu
Faxaflóahafna sf., Tryggvagötu 17 í Reykjavík, sími 525 8900.
Húseignin verður til sýnis í samráði við Faxaflóahafnir sf.
Hver bjóðandi getur aðeins skilað inn einu tilboði og áskilja
Faxaflóahafnir sf. sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem
er eða hafna öllum.
Tilboð skulu berast skrifstofu Faxaflóahafna sf., Tryggvgötu 17,
fyrir kl. 14:00 föstudaginn 29. nóvember 2013.