Fréttablaðið - 26.10.2013, Side 11
LAUGARDAGUR 26. október 2013 | FRÉTTIR | 11
HEILBRIGÐISMÁL Tæplega 500 kvart-
anir og skyld erindi bárust land-
lækni frá 1. janúar 2011 til 8. októ-
ber síðastliðins. Á árunum 2011 og
2012 barst landlækni alls 351 erindi
vegna heilbrigðisþjónustu. Af þess-
um málum voru formlegar kvart-
anir samtals 74 og liggur niðurstaða
fyrir í 54 þeirra, að því er kemur
fram á vef embættisins.
Þar segir að það sé mat embættis-
ins að í 17 af þessum 54 formlegu
kvörtunum hafi orðið mistök, van-
ræksla og/eða að framkoma heil-
brigðisstarfsmanna hafi verið ótil-
hlýðileg.
Í kjölfarið hefst svokallað eftir-
litsmál, að sögn Önnu Bjargar Ara-
dóttur, sviðsstjóra eftirlits og gæða
hjá landlækni. „Það hefur ekki
verið tekin ákvörðun um birtingu
á tölfræði eftirlitsúrræða sem geta
verið tilmæli, áminning eða svipt-
ing,“ segir hún.
Auk formlegra kvartana vörðuðu
erindin samskipti við veitendur heil-
brigðisþjónustu, aðgang að sjúkra-
skrá og óvænt atvik auk þess sem
gerðar voru athugasemdir við heil-
brigðisþjónustu. Þar að auki voru
nokkur óskilgreind erindi.
Fyrirliggjandi gögn benda til að
helmingur formlegra kvartana sé
afgreiddur innan eins árs og 75 pró-
sent innan 15 mánaða. Þess er jafn-
framt getið að tekin hafi verið upp
önnur og ítarlegri flokkun erind-
anna sem berast en áður tíðkaðist.
„Ef skoðað er aftur til ársins 2008
virðast sveiflurnar vera eðlilegar
milli ára. Ekki er hægt að sjá fjölg-
un,“ segir Anna Björg. -ibs
Um fimm hundruð kvartanir og skyld erindi hafa borist landlækni frá því í ársbyrjun 2011:
Kvörtunum hefur ekki fjölgað frá hruni
LANDLÆKNISEMBÆTTIÐ Landlæknir
hefur tekið upp aðra og ítarlegri flokk-
un erinda sem berast. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
HEILBRIGÐISMÁL Læknaráð Land-
spítala skorar á Alþingi að endur-
skoða fjárlagafrumvarp næsta
árs með það að leiðarljósi að
setja Landspítalann í forgang og
tryggja þannig nauðsynlega fjár-
veitingu til að hefja þá uppbygg-
ingu sem er svo nauðsynleg starf-
seminni.
Læknaráðið segir enn fremur
að það telji að þjóðarsátt sé um að
styrkja þessa grunnstoð íslensks
heilbrigðiskerfis sem Landspítal-
inn er. Það verði ekki gert nema
með verulega auknu fjármagni til
rekstrar spítalans. -jme
Læknaráð Landspítalans:
Læknar biðla til
alþingismanna
LANDSPÍTALINN Læknar skora á þing-
menn að endurskoða fjárlagafrumvarpið
og tryggja spítalanum nægt rekstrarfé.
STJÓRNSÝSLA Fyrirhugað er að
sameina Námsmats- og náms-
gagnastofnun í eina stofnun á sviði
menntamála. Ekki hefur verið
ákveðið hvenær hin nýja stofnun
verður formlega sett á laggirnar.
Faglegur ávinningur af sam-
einingu stofnananna mun vera
umtalsverður samkvæmt fýsi-
leikakönnun sem gerð var og felst
hann einkum í að styrkja tengslin
milli námsskráa, námsefnis,
námsmats og gæðamats fyrir
skólana og framkvæmd. - ebg
Faglegur ávinningur:
Sameining á
menntasviði
RÁÐUNEYTI Mennta- og menningar-
málaráðuneyti gerði könnun sem sýndi
fram á faglegan ávinning af sameining-
unni. FRÉTTABLAÐIÐ / GVA
SVEITARSTJÓRNARMÁL
Sækist eftir fjórða sæti
Ólafur Kr. Guð-
mundsson,
varaformaður FÍB
og tæknistjóri
EuroRAP á Íslandi,
hefur ákveðið að
gefa kost á sér í
prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins fyrir
komandi borgarstjórnarkosningar.
Hann sækist eftir fjórða sætinu. Ólafur
byggir framboð sitt á langri reynslu í
umferðaröryggismálum en hann segir
þann málaflokk hingað til ekki hafa
fengið þann sess sem honum ber.
BÚLGARÍA, AP Yfirvöld í Búlgaríu
segja DNA-rannsóknir hafa stað-
fest að Sasha Ruseva og Atanas,
eiginmaður hennar, eru kynfor-
eldrar stúlkunnar Maríu, sem
tekin var af Rómafjölskyldu á
Grikklandi í síðustu viku.
Enn er þó ekki vitað hvað verð-
ur um Maríu, hvort hún fari aftur
til uppeldisfjölskyldu sinnar, eða
hvort hún verði send til foreldra
sinna í Búlgaríu, eða komið fyrir
í fóstri annars staðar.
- gb
Niðurstaða DNA-rannsókna:
Ruseva er
móðir Maríu