Fréttablaðið - 26.10.2013, Blaðsíða 42
FÓLK|HELGIN
Úlfar Finsen segir að Módern sé sjö ára gamalt fjölskyldufyrir-tæki og hafi ætíð lagt áherslu á
vörumerki sem eru þekkt fyrir gæði.
Sýningarsalur verslunarinnar er
glæsilegur og aðkoman þægileg. „Við
erum með gríðarlegt úrval hjá okkur.
Verslum við 85 birgja þannig að sjón er
sögu ríkari. Fyrir utan fallegar gjafavör-
ur erum við með húsgögn, gólfmottur
og alls kyns glæsileg ljós og lampa,“
greinir hann frá.
„Við höfum verið að taka upp nýjar
gjafavörur undanfarna daga og margt
mjög spennandi fyrir heimilið,“ segir
Úlfar. „Ég get nefnt hreindýrshöfuð á
vegg sem margir hafa fallið fyrir,“ segir
hann enn fremur. Einnig höfum við
verið að taka upp mikið úrval af fal-
legum ilmkertum frá Jonathan Adler en
nú er einmitt tími fyrir kertaljós og að
gera kósí heima. Hægt er að fá ilmkert-
in í fallegum gjafaumbúðum, hlý og góð
gjöf.“
Þeir sem vilja koma vel undirbúnir
í verslunina geta skoðað heimasíðuna
modern.is en þar má sjá allar vörur
með verði. „Það eru margir þakklátir
fyrir að sjá verðið á síðunni,“ segir Úlf-
ar. Hægt er að panta á netinu vilji fólk
það og fá sent heim. Einnig er hægt
að panta á netinu, fá gjafainnpökkun
og sækja vöruna tilbúna í afmæli eða
annan viðburð í verslunina. „Það er
mjög þægilegt fyrir þá sem eru í kappi
við tímann,“ segir Úlfar.
VANDAÐAR VÖRUR
FYRIR FAGURKERA
MÓDERN KYNNIR Húsgagna- og gjafavöruverslunin Módern sérhæfir sig í
vörum fyrir fagurkera og þá sem hafa yndi af vandaðri hönnun.
GLÆSILEIKI Úlfar
Finsen segir að lögð
sé áhersla á vandaða
gæðavöru hjá Módern.
MYNDIR/GVA
HREINDÝR
Margt fallegra muna er
í Módern, falleg hönnun
og þekkt merki.
Við Baldvin hættum að vinna í vor og hugsuðum þá með okkur hvort ekki væri gaman
að gifta sig úr því við værum bara
orðin tvö og allt svo miklu rólegra.
Fólki er hætt við að loka sig af við þau
viðbrigði að hætta að vinna og mikil-
vægt að hafa eitthvað fyrir stafni og
að stefna að,“ segir brúðurin Elna Þór-
arinsdóttir, sem fékk óvænt bónorð í
sjötugsafmæli sínu í september.
„Þá fór Baldvin á hnén fyrir framan
veislugesti og bað um hönd mína,
öllum að óvörum. Ég játaðist honum
auðvitað strax því okkur hafði alltaf
langað að gera þetta og nú var rétti
tíminn.“
Fyrstu kynni Elnu og Baldvins var
á fermingarárinu í sameiginlegum
vinahópi. Síðan fóru þau hvort í sína
áttina.
„Við Baldvin hittumst svo í Þórs-
café árið sem við urðum fertug, þá
bæði fráskilin og komin með börn,
en fundum strax hvað við áttum vel
saman og urðum fljótt ástfangin.
Núna, eftir að við hættum að vinna,
finnst mér eins og við höfum kynnst
upp á nýtt; við eigum dagana saman í
gleði og ró, sem áður fóru í vinnu og
daglegt streð,“ segir Elna og er ham-
ingjusöm með ráðahaginn.
„Mér líður mjög vel með þetta. Ég
hef sungið með kirkjukórum í árafjöld
og þykir brúðkaupsathöfnin yndisleg
og gott að innsigla ástina, jafnvel þótt
við séum orðin svona fullorðin. Það er
falleg lexía að vera trú hvort öðru til
dauðadags, bera virðingu hvort fyrir
öðru og góð tilfinning að vera fyrir-
mynd fyrir börn okkar og barnabörn
sem samgleðjast af heilu hjarta.“
ÁSTFANGIN SEM ALDREI FYRR
Elna og Baldvin verða gefin saman í
Lágafellskirkju af séra Vigfúsi Árna-
syni. Brúðkaupsferðin verður róman-
tísk sigling í Karíbahafinu.
„Ég vil giftast Baldvin því ég elska
hann og er alltaf jafn ástfangin. Við
hefðum alveg mátt hittast fyrr á lífs-
leiðinni en höfum þó átt þennan tíma
saman. Baldvin er heillandi maður;
hann er ákveðinn, duglegur, traustur
og skemmtilegur. Við höfum sama
húmor, hann er góður dansari og það
er gaman að vera í návist hans. Vita-
skuld skiptast á skin og skúrir eins
og hjá öllum en Baldvin er úrræða-
góður og reddar öllu þegar ég gefst
upp. Hann er tillitssamur en hreinn
og beinn í samskiptum, hefur yndi af
ferðalögum og tónlist eins og ég, og
er óskaplega barngóður,“ segir Elna
um sinn heittelskaða og sannfærð um
mikilvægasta veganestið í sambúð og
hjónabandi.
„Mikilvægast er að taka tillit og
bera virðingu hvort fyrir skoðunum
annars en einnig að vera hlýlegur og
sýna ástúð og umhyggju. Við Baldvin
erum af þeirri kynslóð þegar börn
voru ekki jafn ausin ástarorðum og í
dag enda var lífsbaráttan þá erfiðari
og fólk vann myrkranna á milli. Við
erum eflaust mörkuð af því og ekki
eins tamt að nota ástarjátningar í
orði, en við sýnum ástina í verki.“
Þegar kvölda tekur verða Elna og
Baldvin loks hjón. Samanlagt eiga
þau sex börn og fjórtán barnabörn.
Sonur Elnu mun verða svaramaður
og leiða móður sína upp að altarinu
og sonur Baldvins svaramaður föður
síns. Yngstu barnabörnin færa þeim
hringana og Elna klæðist brúðarkjól
sem Baldvin fær ekki að sjá fyrr en
upp við altarið.
„Eftir því sem tíminn hefur liðið
hef ég orðið æ ástfangnari af Elnu,”
segir Baldvin. „Hún er einstaklega
blíð, fögur og góð kona sem gott er
að hafa við hlið sér í lífinu. Því fylgir
líka góð tilfinning að giftast. Þá er
maður loks í öruggri höfn.“
■ thordis@365.is
FÉKK BÓNORÐ Á AFMÆLISDAGINN
BRÚÐKAUP Elna Þórarinsdóttir og Baldvin Albertsson ganga í heilagt hjónaband í dag. Þau urðu bæði sjötug á árinu og hafa verið
saman í þrjátíu ár. Leiðir þeirra lágu fyrst saman á fermingarárinu en hjörtun slógu ekki í takt fyrr en á fertugasta aldursári lífsins.
SAMRÝND
Elna og Baldvin stofnuðu
Heildsölu B.E. Albertson
og keyrðu áður
sumarlangt um landið
með fullan bíl af vörum.
„Þá höfðum við nesti,
gistum á sveitabæjum
og kynntumst fólki
sem enn eru tryggir
vinir,“ segir Elna um
skemmtilegt tímabil í lífi
þeirra Baldvins.
MYND/VALLI
VERSLUNIN
MÓDERN
er í Hlíðasmára 1
í Kópavogi, sími
534-7777. Verslunin
er með heimasíðuna
modern.is og er á
Facebook.
Heim send ingar-
þjón usta er á öllum
vörum um allt land.
Save the Children á Íslandi