Fréttablaðið - 26.10.2013, Blaðsíða 74
26. október 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 46
Brandarar
VICTORÍA RÁN
BERGMANN
sem býr á Akranesi
sendi okkur þessa
mynd sem hún
teiknaði hjá ömmu
Eygló.
Er gaman að búa í Smálönd-
unum? Já, það er besta land í
heimi. Í Smálöndunum getur
maður gert allt sem mann lang-
ar til.
Ertu strákskratti eins og pabbi
þinn kallar þig stundum? Ég
er stundum strákskratti en alls
ekki alltaf. Stundum er ég voða-
lega góður.
Áttu besta vin? Ég á marga
góða vini en besti vinur minn
er nú samt Ída litla systir mín.
Hún er svo góð og skemmtileg
og hjálpar mér við skammar-
strikin mín. Hún leyfði mér til
dæmis að hífa sig upp í fána-
stöngina. Það er ekkert gaman
að gera skammarstrikin aleinn.
Þá eru það eiginlega engin
skammarstrik.
Hver er uppáhaldsmaturinn
þinn? Mér finnst flestur matur
góður, en súpan sem ég var að
lepja þegar skálin festist á höfð-
inu á mér er sú besta sem ég
hef smakkað. Þess vegna var ég
svona æstur í að klára hana.
Hvað finnst þér skemmtileg-
ast að gera? Þú mátt engum
segja, en mér finnst skemmti-
legast að gera skammarstrik.
Ég geri samt aldrei neitt ljótt
viljandi og skil stundum ekki að
það eru skammarstrik fyrr en
eftir á.
En hvað finnst þér leiðinleg-
ast að gera? Mér finnst stund-
um leiðinlegt að sitja í smíða-
kofanum, en bara í smástund
því ég finn mér alltaf eitthvað
skemmtilegt að gera eins og að
tálga nýja spýtukarla. Mér leiðist
eiginlega aldrei.
Hvað langar þig að verða þegar
þú verður stór? Mig langar til
að vera bóndi og eiga stóra jörð
eins og Kattholt. Mér finnst
dýrin skemmtileg og gríslingur-
inn minn er bestur.
Finnst þér gaman að læra? Ég
er ekki byrjaður í skóla en þegar
ég fer í skóla ætla ég að verða
bestur af öllum.
Hvað er það sem sekkur í
sæ en blotnar ekki?
– Sólin.
„Ég ætla að fá fuglafræ.“
„Hvað áttu marga fugla?“
„Enga enn, en ég ætla að sá
fyrir nokkrum.“
Einu sinni voru tveir vitlaus-
ir karlar að hjálpast að við
að þvo bíl.
– Annar hélt á tuskunni og
hinn keyrði bílinn fram og
til baka.
Tvær slöngur voru eitt sinn
saman úti að skríða þegar
önnur þeirra spurði: „Erum
við eiturslöngur?“ „Já, hvers
vegna spyrðu?“
„Ég beit í tung-
una á mér!“
Bragi Halldórsson
67
neinn annar?
A
E
H
K
N
B
F
I
L
O
D
G
J
M
P
SVAR: O Ég er
stundum
voðalega
góður
Emil í Kattholti fi nnst skemmtilegast að
gera skammarstrik, en áttar sig stundum
ekki á að hann er að gera eitthvað ljótt
fyrr en hann er búinn að gera það.
EMIL Í KATTHOLTI Emil
langar til að verða bóndi
þegar hann verður stór.