Fréttablaðið - 26.10.2013, Blaðsíða 104
„Hún er mjög góð fyrirmynd fyrir
nútímakonur. Hún hefur alveg frá
því hún lauk lögfræðináminu unnið
hörðum höndum og komist áfram á
eigin verðleikum í karlaheimi. Ég man
eftir því þegar hún var nýbyrjuð sem
sakadómari. Hún sagði mér stundum
frá því að harðsvíraðir glæpamenn
hefðu hlegið þegar ung, ljóshærð
kona átti að fara að dæma þá. En þeir
hættu því fljótt þegar þeir áttuðu
sig á því við hvern þeir áttu. Hún er
frábær vinur og félagi. Við
höfum alla tíð átt mjög
náið samband og aldrei
borið skugga á.“
Páll Benediktsson,
upplýsingafulltrúi
og bróðir.
Mest lesið
1 Bjóða útlendar IP tölur sem nota má
til að hala niður frá efnisveitum
2 Ljóshærðu börnin á Írlandi fengu
aft ur að fara heim
3 Elgsveiðar fóru úr böndunum: Skaut
ellilífeyrisþega á klósettinu
4 Hæg efnaskipti sögð stuðla að ofþyngd
NÆRMYND
Ingibjörg
Benediktsdóttir
hæstaréttardómari
ALDUR 65 ára.
MAKI Friðrik Daníelsson
efnaverkfræðingur.
BÖRN Dýrleif, Kristrún og Benedikt.
Ingibjörg hefur þrisvar á árinu verið
ósammála því að snúa kynferðisbrota-
dómum í sýknu.
„Ingibjörg er afar heilsteypt mann-
eskja, afar skýr og vandvirk. Hún
gefur lítið fyrir moðreyk og undanslátt
og segir sína skoðun umbúðalaust.
Þrátt fyrir þetta er hún vinsæl meðal
flestra enda létt í skapi og
hefur gaman af manna-
fundum.“
Páll Arnór Pálsson,
hæstaréttarlögmaður
og gamall skólafélagi.
„Hún er alveg yndisleg manneskja og
heiðarleg í gegn. Hún gerir sko ekki
greinarmun á Jóni og séra Jóni. Það
eiga allir sama rétt fyrir lögunum. Hún
er uppfull af réttlætiskennd og hefur
verið alveg frá því við byrj-
uðum í lagadeildinni.“
Þuríður Jónsdóttir,
héraðsdómslögmaður
og skólasystir úr
lagadeild HÍ.
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VÍSIR
RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja
Glæsileg hekluppskriftabók
eftir Marín Þórsdóttur
Stútfull a
f
hugmynd
um
f l id i l ö
Kætum krílin!