Fréttablaðið - 26.10.2013, Side 12
26. október 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 12
VIÐSKIPTI Hagnaður Marels á
þriðja ársfjórðungi þessa árs nam
996 milljónum íslenskra króna en
var 1,4 milljarðar króna á sama
tímabili árið 2012.
Tekjur fyrirtækisins á fjórð-
ungnum námu 26 milljörðum
íslenskra króna og lækkuðu um
4,5 prósentustig miðað við sama
tímabil á síðasta ári.
Í tilkynningu frá Marel segir
að afkoma fyrirtækisins á fyrstu
níu mánuðum ársins endurspegli
hægari bata en áður hafi verið
gert ráð fyrir. - hg
Tekjur lækkuðu um 4,5%:
Marel skilar
minni hagnaði
EVRÓPA Í lok annars ársfjórðungs
námu ríkisskuldir ríkja á evr-
usvæðinu alls 93,4 prósentum af
vergri landsframleiðslu (VLF),
sem er rúmu prósenti hærra
en var eftir fyrsta ársfjórðung.
Þetta kemur fram í tölum Euro-
stat.
Þegar litið er á ESB í heild er
hlutfall skulda gegn landsfram-
leiðslu 86,8 prósent og hækk-
aði um tæpt prósent frá lokum
fyrsta fjórðungs. Frá öðrum árs-
fjórðungi 2012 hefur hlutfallið
hjá evruríkjunum hækkað um
3,5 prósentustig og rúm tvö pró-
sentustig í ESB í heild. - þj
Efnahagur í Evrópu:
Skuldir hækka
á evrusvæðinu
Í BRÚNNI Theo Hoen, forstjóri Marels,
sagði í tilkynningu í gær að afkoma
fyrirtækisins væri viðunandi í ljósi
markaðsaðstæðna. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
JAFNRÉTTISMÁL „Mikil áhersla var lögð á stjórnunar-
reynslu,“ segir Eyjólfur Sæmundsson, formaður
fræðsluráðs Hafnarfjarðar, um það er kona var ráðin
leikskólastjóri á Hörðuvöllum í júní. Af þeim sem sóttu
um starfið voru tveir með meiri menntun, annar þeirra
var karlmaður. Fræðsluráð samþykkti ráðninguna.
Maðurinn sem sótti um starfið hefur verið aðstoðar-
skólastjóri sama skóla í sex ár. Hann segir í samtali við
Fréttablaðið að hann hafi kannað réttarstöðu sína vegna
málsins, ekki síst í ljósi jafnréttis-
stefnu bæjarins, en þar segir orðrétt:
„Jafnréttissjónarmið skulu metin
til jafns við önnur sjónarmið þegar
ráðið er í stöður hjá Hafnarfjarð-
arbæ. Umsækjandi af því kyni sem er
í minnihluta í viðkomandi starfsgrein
skal að öðru jöfnu ganga fyrir við
ráðningu þegar hann er jafn hæfur
eða hæfari.“
Aðspurður segir Eyjólfur þetta
sjónarmið hafa verið rætt. „En það var mat sviðsstjóra
að stjórnandaþekking væri lykilatriði,“ segir Eyjólfur.
„Og það er ljóst að leikskólastjórinn sem var ráðinn
hefur gífurlega mikla reynslu af stjórnun leikskóla. Auk
þess leysti hún fyrrverandi leikskólastjóra af á meðan
hann var í veikindaleyfi.“
Aðeins þrír karlar hafa starfað sem leikskólastjórar
eftir því sem Fréttablaðið kemst næst. Því voru aðeins
þrír karlar hæfir í starfið samkvæmt auglýsingunni.
Spurður, í ljósi þess að karlinn var meira menntað-
ur en konan og hvort það hefði því ekki verið í anda
jafnréttisstefnu Hafnarfjarðar að ráða hann, svarar
Eyjólfur: „Þetta togast alltaf á, það að meta einstak-
ling að verðleikum og kyni og hvernig skal meta það.
Það er alveg klárt mál að ef þau hefðu verið jafn hæf
hefði karlinn verið ráðinn. Konan var aftur á móti metin
hæfust.“
Sviðsstjóri fræðslusviðs Hafnarfjarðar lét meta sér-
staklega hæfni efstu umsækjenda og eftir það ferli
komst hann að þeirri niðurstöðu að konan væri hæfust.
Karlinn sem sótti um starfið, og fékk ekki, var fram-
haldsmenntaður í stjórnun. Hann segist hafa kannað
stöðu sína hjá lögfræðingi vegna málsins og íhugað að
kæra. Hann segist svo hafa fengið þau svör að í ljósi
þess að sérstaklega var auglýst eftir reynslu í stjórnun
hafi hann ekki átt mikla möguleika á að vinna málið.
valur@frettabladid.is
Ekki ráðinn þrátt
fyrir betri menntun
Karlmaður var ekki ráðinn leikskólastjóri þrátt fyrir að vera betur menntaður en
konan sem var ráðin. Sérstök áhersla var lögð á stjórnunarreynslu umsækjenda.
Aðeins þrír karlmenn hafa verið leikskólastjórar og uppfylltu því skilyrði bæjarins.
LEIKSKÓLABÖRN Fáir karlar starfa á leikskólum og aðeins
einn starfar sem leikskólastjóri. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM.
EYJÓLFUR
SÆMUNDSSON