Fréttablaðið - 26.10.2013, Page 24
26. október 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 24
Ég hef
ekki gert
neitt rangt
í þeim
viðskiptum
sem ég hef
stundað, ég
hef þvert á
móti reynt
að haga
hlutunum
þannig að
sem flest sé
uppi á
borðinu.
Af hverju geturðu ekki verið aðeins meira eins og Hannes Smárason?“Þessi spurning var síend-urtekin í Áramótaskaupinu 2006, og þótt hún þætti fyndin
var hún alls engin öfugmæli – fólk vildi
raunverulega vera eins og Hannes Smára-
son, farsælasti viðskiptajöfur landsins.
Svo hrundi íslenska bankakerfið og allt í
einu var ekki lengur jafn eftirsóknarvert
að vera eins og Hannes. Raunar voru fáir
verr þokkaðir í samfélaginu en hann.
Kemur Íslandi vonandi til góða
Síðan eru liðin fimm ár og á þeim tíma
hefur Hannes haft hægt um sig. Skyndi-
lega er hann hins vegar aftur kominn
fram á sjónarsviðið – nú er hann orðinn
forstjóri NextCode Health, dótturfélags
Amgen, sem í fyrra keypti Íslenska erfða-
greiningu fyrir 52 milljarða króna.
„Þetta er nýtt sprotafyrirtæki,“ segir
Hannes, sem fluttist búferlum til Boston
í haust til að sinna starfinu. Fyrirtækið
er í mjög tæknilegum rekstri og Hannes
afsakar enskusletturnar fyrir fram. Það
reynist óþarfi því að honum tekst ágæt-
lega að koma orðum að því um hvað verk-
efnið snýst: „Fyrirtækið sérhæfir sig í að
aðgerðagreina einstaklinga – það reynir
með öðrum orðum að komast að því hvaða
sjúkdóma viðkomandi eigi á hættu að
fá. Slík greiningarvinna er að breytast
umtalsvert, það er mun meira af gögnum
og upplýsingum sem hægt er að vinna úr
til að komast að betri niðurstöðu og við
ætlum að hjálpa stórum sjúkrahúsum og
öðrum sem veita læknisþjónustu að sinna
slíkri greiningarvinnu.“
Hann kveðst vonast til þess að starf-
semi fyrirtækisins geti komið Íslandi
til góða – það muni vinna með Íslenskri
erfðagreiningu og þegar fram í sækir
geti það vonandi stuðlað að áframhald-
andi uppbyggingu íslensks tækniiðnað-
ar. Þá nefnir hann einnig gagnahýsingu
sem viðskiptavinir félagsins muni hafa
mikla þörf fyrir.
Hannes vann í líftæknigeiranum á
sínum tíma og segist hafa haldið góðu
sambandi við þá fjárfesta sem standa að
baki NextCode Health. „Þetta er svið sem
ég hef verið að færa mig aftur inn á síð-
ustu tvö, þrjú ár. Ég kom aðeins nálægt
því í fyrra þegar Decode var selt og þetta
óx áfram í framhaldinu af því.“
Kom þinn gamli samstarfsmaður, Kári
Stefánsson, að því að því að útvega þér
þetta starf?
„Nei, hann kom ekki beint að því, alls
ekki. Við höfum átt mjög gott og farsælt
samstarf í mörg ár og hann kom að samn-
ingum sem við þurftum að gera til að fá
nauðsynleg leyfi – hans aðkoma var aðal-
lega á þeim grunni.“
Fyrst Hannes nefnir þátttöku sína í söl-
unni á Íslenskri erfðagreiningu í desem-
ber í fyrra er ekki úr vegi að spyrja hann
um fréttir þess efnis að hann hafi fengið
20 milljónir fyrir ráðgjöf við söluna.
„Ég vil í sjálfu sér ekkert tjá mig um
það – ég var að sinna þarna ákveðnu ráð-
gjafarhlutverki og hjálpaði til við tækni-
legar útfærslur og annað. Var það ekki
Mark Twain sem sagði að sögur af and-
láti hans hefðu verið stórlega ýktar? Ætli
það sé ekki eins með þetta – sögur af ein-
hverjum himinháum greiðslum til mín út
af þessu eru stórlega ýktar.“
Ekki með verri sögu en aðrir
Hannes hlær þegar hann er spurður
hvort viðskiptasaga hans gefi tilefni til
þess að honum sé treyst til að stýra fyrir-
tæki af þessu tagi.
„Já, já, ég held að hún gefi alveg til-
efni til þess. Ég veit ekki til þess að ég
eigi verri sögu en margir aðrir. Auðvitað
var ég virkur þátttakandi í íslensku við-
skiptalífi í mörg ár og áberandi sem slík-
ur. Klárlega var margt af því sem þar við-
gekkst eitthvað sem menn myndu ekki
endilega endurtaka, en engu að síður
voru menn ósköp einfaldlega að vinna
eftir þeim lögum og reglum sem giltu á
þeim tíma og ég tel mig hafa haldið mig
algjörlega innan þeirra marka, þannig að
það er svo sem ekkert í því sem ætti að
vera því til fyrirstöðu.“
Þótt Hannes segist ekki eiga verri sögu
en aðrir er vert að geta þess að FL Group
setti Íslandsmet í tapi árið 2007 undir
stjórn Hannesar – tapaði 67,3 milljörðum.
„Það sem byrjaði að gerast árið 2007
var gríðarlega hröð lækkun á eignum og
vissulega skilaði það sér í tapi, en þetta
er eðli viðskipta, þegar verð sveiflast þá
hækkar virði eigna og lækkar. Það áttu
sér stað gríðarlegar lækkanir og leiðrétt-
ingar á öllum eignum í heiminum og aug-
ljóslega tapast þá miklir fjármunir,“ segir
Hannes og bætir við að persónulega hafi
hann líklega tapað jafnmiklu eða meiru
en flestir, bæði sem einstaklingur og í
gegnum fyrirtæki sem hann tengdist.
Hannes viðurkennir að menn hafi
gengið of hratt um gleðinnar dyr í góð-
ærinu og hefðu átt að vanda sig betur,
hins vegar hafi Ísland bara lent á vegg á
undan öðrum. „Ef við horfum á þá fjár-
muni sem þurfti að dæla inn í bankakerfi
heimsins getum við séð að nánast hvert
einasta bankakerfi var byrjað að riða til
falls á þessum tíma,“ segir hann. Ísland
hafi hins vegar verið eitt og afskipt í að
takast á við vandann.
Gerði ekkert rangt
Braustu lög í viðskiptum þínum?
„Það tel ég mig ekki hafa gert. Ég
fylgdi öllum þeim lögum og reglum sem
voru ríkjandi á þeim tíma sem ég átti í
þessum viðskiptum. Hins vegar er þetta
alltaf þannig að menn geta gert mistök,
en mistök og lögbrot eru ekki sami hlut-
urinn og það er lykilatriði.“
Engu að síður eru yfirvöld með mál
tengd Hannesi til rannsóknar, til dæmis
skattamál FL Group og grunsemdir
um að FL Group hafi í raun greitt þrjá
af þeim fjórum milljörðum sem Fons
Pálma Haraldssonar greiddi fyrir flug-
félagið Sterling árið 2005. Millifærsla út
úr FL Group í tengslum við það leiddi til
þess að nokkrir stjórnarmenn félagsins
og forstjórinn Ragnhildur Geirsdóttir
hættu. Hannes segist ekki búast við því
að nokkuð verði úr þessum málum.
„Ég hef engar forsendur til að ætla það.
Skulda þjóðinni afsökunarbeiðni
Hannes Smárason er orðinn forstjóri systurfélags Íslenskrar erfðagreiningar og vonast til að geta gert íslensku samfélagi gagn. Hann
segir viðskiptasögu sína ekki verri en margra annarra og að hún ætti ekki að koma í veg fyrir að hann stýri fyrirtæki af þessu tagi.
Ég veit ekki til þess að ég hafi brotið nein
lög á einum eða neinum stað – þess vegna
kæmi það mér á óvart. Ég hef ekki gert
neitt rangt í þeim viðskiptum sem ég hef
stundað, ég hef þvert á móti reynt að haga
hlutunum þannig að sem flest sé uppi á
borðinu.“
Hannes segist sýna því skilning að
verkefnin sem sérstakur saksóknari og
aðrir sem rannsaka bankahrunið standa
frammi fyrir séu stór og tímafrek, og
það er ekki að heyra á honum að hann
sé reiður yfir því að sæta slíkri skoðun,
ólíkt mörgum í hans sporum.
„Það þjónar afskaplega litlum tilgangi
að vera reiður yfir hlutum sem maður
hefur ekkert um að segja. Ég get örugg-
lega verið mjög reiður og sár á slæmum
degi, en það hefur bara ekkert upp á sig.
Það þarf að nálgast þessa hluti af æðru-
leysi og reyna að breyta þeim hlutum
sem maður getur breytt og sætta sig við
þá sem maður getur ekki breytt.“
Hann segist ekki hafa leitt hugann að
því hvort mögulegar ákærur í málum
hans kunni að hafa áhrif á störf hans
fyrir NextCode Health.
„Það hefur ekkert verið rætt. Þetta er
bara einkafyrirtæki í eigu erlendra aðila
með starfsemi fyrir utan Ísland þannig
að ég veit ekki hversu mikið menn eru
að fókusera á það sem er að gerast uppi
á Íslandi.“
Allir brugðust trausti
Þá er það klassíska spurningin: Skuld-
arðu íslensku þjóðinni afsökunarbeiðni?
„Eflaust geri ég það. Það fylgir því
mikil ábyrgð að vera framarlega í við-
skiptalífinu og það getur enginn verið
ánægður með það hvernig fór fyrir
Íslandi, alveg sama hvernig þú snýrð
hlutunum. Í því samhengi skulda ég
þjóðinni auðvitað afsökunarbeiðni – sem
og bara allir sem voru í viðskiptalífinu,
stjórnmálum og reglugerðabatteríinu.
Það fólk brást því trausti sem því hafði
verið sýnt í sínum stöðum.
Ef þú horfir hins vegar á mína sér-
stöku stöðu þá var ég farinn út úr við-
skiptum töluvert áður en þessir atburðir
áttu sér stað þannig að ég var ekki á þeim
tíma í lykilstöðu til að hafa nein áhrif á
gang mála, sem er miður.“
Hannes segir nefnilega að það hefði vel
verið hægt að draga úr tjóninu á árinu
2008. Hann hafi í viðtali við Morgunblað-
ið í árslok 2007 sagt að fram undan væru
miklir endurskipulagningartímar fyrir
skuldsett íslensk félög, en menn hafi
hins vegar vonað að dýfan mundi jafna
sig eins og árið 2006. „En svo gerðist það
ekki. Þetta var kolvitlaus nálgun, í stað
þess að reyna að hanga á eignum hefðu
menn einfaldlega þurft að fara í skipu-
lega eignasölu og ná efnahagsreikningn-
um niður. Þetta eru stóru mistökin sem
áttu sér stað á Íslandi að mínu viti.“
Er enginn eignamaður í dag
Hvað hefurðu verið að gera undanfarin
fimm, sex ár?
„Það er ekkert sérstakt sem hægt er
að tiltaka. Ég hef sinnt hinum ýmsu ráð-
gjafarverkefnum og átt aðkomu að fjöl-
mörgum viðskiptum úti um allan heim.
Ég er svo heppinn að vera með mjög gott
tengslanet utan Íslands, ég bjó í Banda-
ríkjunum í tíu ár og er búinn að stunda
alþjóðaviðskipti frá því að ég var mjög
ungur. Þannig að það hefur ekki verið
neinn skortur á verkefnum.“
Hannes sagðist áðan hafa tapað meiru
en flestir á hruninu. Er hann á flæðiskeri
staddur?
„Ég var með vinnu – það er fyrsta
skrefið. Ég er enginn eignamaður í dag,
ef þú ert að spyrja um það. Ég sé fyrir
mér með þeim verkefnum sem ég tek að
mér og er mjög sáttur við það. Og þetta er
svo sem engin keppni um það hver tapar
mestu – það tapa bara allir miklu. Þegar
fór að halla undan fæti lagði ég hins
vegar mikið á mig til að koma með verð-
mæti inn í þá banka sem ég átti mest við-
skipti við, og á sama tíma og kerfið rið-
aði til falls þá var ég að borga peninga
inn í bankana en ekki taka þá út. Það eru
kannski ekki margir sem vita það.“
Sérðu fyrir þér að koma aftur til
Íslands?
„Það er svo sem ekki í spilunum
akkúrat núna. Það verður bara að koma í
ljós. Ég horfi ekki mikið lengra en á þetta
verkefni sem er komið upp núna. Ef það
er eitthvað sem maður er búinn að læra
þá er það að reyna ekki að spá langt fram
í tímann.“
Stígur
Helgason
stigur@frettabladid.is
TAPAÐI MIKLU Hannes segist ekki vera eignamaður í dag, hann hafi enda tapað miklu í hruninu. „Og þetta er svo sem engin keppni um það hver tapar mestu– það
tapa bara allir miklu.“ MYND/RICHARD PASLEY