Fréttablaðið - 31.10.2013, Blaðsíða 10
31. október 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 10
FRÉTTASKÝRING
Er hægt að vinna af sér dómsektir
með samfélagsþjónustu?
Um það bil 1.700 manns eiga von
á því að verða færðir til afplánun-
ar án fyrirvara þar sem fyrir þeim
liggur afplánun vararefsingar þar
sem þeir hafa ekki greitt sektir eða
sakarkostnað, eins og fjallað var
um í Fréttablaðinu nýverið. Fyrir
þeim liggja aðeins tveir kostir; að
greiða sektina eða afplána í fang-
elsi, þar sem þeir hafa fyrirgert
þeim möguleika að fullnusta refs-
inguna með samfélagsþjónustu.
Nú liggur fyrir ákvörðun um
afplánun vararefsingar fyrir 3.162
einstaklinga alls og 1.975 manns
hefur þegar verið birt boðun.
Af þeim fjölda hafa 520 sótt um
afplánun með samfélagsþjónustu
og 283 hafa fengið umsókn sína
samþykkta.
Samkvæmt reglum um sam-
félagsþjónustu í stað þess að sitja
af sér fésekt eru ýmis skilyrði sem
viðkomandi þarf að uppfylla. Í
fyrsta lagi skulu almannahagsmun-
ir ekki mæla gegn því, en annars
skal fésektin vera 60.000 krónur
eða hærri og vinnan vera allt frá 40
klukkustundum upp í 480 stundir.
Viðkomandi verður að óska
skriflega eftir því að fá samfélags-
þjónustu innan sjö daga frá því að
honum berst tilkynning um afplán-
un. Þá má ekki vera mál gegn
honum til meðferðar hjá lögreglu
eða dómstólum og hann má ekki
þegar vera í fangelsi eða gæslu-
varðhaldi.
Síðustu ár hafa á bilinu 115 til
160 manns fengið að fullnusta
vararefsingar með samfélagsþjón-
ustu ár hvert, samkvæmt tölum frá
Fangelsismálastofnun. Þó er fjöld-
Yfir 100 á ári vinna af sér
sekt með samfélagsþjónustu
Síðustu tíu ár hafa hundruð fengið að fullnusta refsingar vegna sekta eða sakarkostnaðar með samfélagsþjón-
ustu. Fjöldinn er misjafn eftir árum. Ríkisendurskoðun vill hámark á upphæðir sem hægt er að vinna af sér.
HEGNINGARHÚSIÐ Á hverju ári fær á annað hundrað einstaklinga að vinna af sér
sektir í samfélagsþjónustu í stað þess að afplána í fangelsi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Útreikningur tíma í afplánun með samfélagsþjónustu er með eft irfarandi hætti:
HVERNIG ER ÞJÓNUSTAN REIKNUÐ ÚT?
Páll Winkel
fangelsismála-
stjóri segir
aðspurður
að vissulega
sé æskilegt
að fleiri geti
unnið af sér
refsingu með
samfélagsþjónustu.
„Jú, við lögðum til fyrir tveim-
ur árum að hægt væri að afplána
allt að níu mánaða fangelsi með
samfélagsþjónustu, sem Alþingi
samþykkti. Nú höfum við lagt til
að það verði hækkað upp í tólf
mánuði og það bíður afgreiðslu
þingsins.“
Páll bætir því við að Fangelsis-
málastofnun leggi áherslu á að
beita öðrum fullnustuúrræðum
en að loka menn inni í fangelsi,
en í sumum tilvikum sé ekki
annað hægt.
➜ Áhersla á önnur
úrræði en fangelsi
Íslamisti
handtekinn
1EGYPTALAND Essam el-Erian, næstæðsti
leiðtogi Frelsis- og réttlætis-
flokksins, hefur verið hand-
tekinn í Egyptalandi. Hann
hefur verið á flótta frá því
her landsins steypti stjórn
Múhameds Morsí, leiðtoga
flokksins, af stóli í byrjun
júlí. Flokkurinn er pólitískur
armur Bræðralags múslima,
öflugustu samtaka íslamista
í Egyptalandi. Morsi hefur
sjálfur verið í stofufangelsi
frá því honum var steypt
af stóli.
Mótmælir
sultureglum
2BRETLAND Tessa Munt, þingkona í Bretlandi,
hefur brugðist ókvæða við
nýjum reglum um sultugerð
þar í landi. Samkvæmt nýju
reglunum hefur lágmarks-
magn sykurs í sultu verið
minnkað úr 60 prósentum
niður í 50 prósent. Þetta
er gert í þeim tilgangi að
auðvelda sultuframleið-
endum aðgang að erlendum
mörkuðum. Munt segir
þetta mikla óhæfu og telur
að sultuframleiðendur muni
nú setja óttalegt sull á
markaðinn.
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
KAFFI & TE
Í NESPRESSOVÉLAR
Gíslar komnir heim
3FRAKKLAND Fjórir Frakkar eru komnir aftur heim til Frakklands eftir að hafa verið haldið í gíslingu
herskárra íslamista, liðsmanna al-Kaída, í Norður-
Afríku í þrjú ár. Mennirnir fjórir voru teknir í gíslingu
í Níger, þar sem þeir störfuðu í úrannámu á vegum
franska kjarnorkufyrirtækisins Avea. Þeir voru látnir
lausir í Malí á þriðjudag.
283
hafa fengið samþykkta
umsókn sína um að afplána
vararefsingu með samfélags-
þjónustu.
Vararefsing (dagar í fangelsi) x 40
150 x 40
Dæmi: 150 daga vararefsing í fangelsi
30
30
Tímar í samfélags-
þjónustu
200 Tímar í samfélagsþjónustu
(Heimild: Ríkisendurskoðun)
inn misjafn milli ára, en flestir
fengu slíkt í gegn árið 2003 þegar
206 fóru þessa leið en fæstir voru
þeir árið 2011, eða 52.
Í ársgamalli skýrslu Ríkisend-
urskoðunar kemur meðal annars
fram það álit að óeðlilegt sé að
vararefsing fésekta sé fullnust-
uð með samfélagsþjónustu í eins
ríkum mæli og raun ber vitni.
Þetta gæti átt þátt í því hve lítill
hluti dómssekta innheimtist.
Þá sé óeðlilegt að sektardómar
upp á tugi milljóna króna séu að
öllu leyti fullnustaðir með þessu
fyrirkomulagi.
Var því mælst til þess að tak-
marka slíkar heimildir, til dæmis
með því að miða einnig við hámark
sektarfjárhæðar, en ekki bara lág-
mark. thorgils@frettabladid.is
NEYTENDUR Auglýsing Tæknivara
sem bar yfirskriftina „Sími sem
skilur þig“ hefur verið bönnuð.
Neytendastofu barst kvörtun frá
Skakkaturninum, sem flytur inn
vörur frá vörumerkinu Apple, fyrr
á árinu. Í auglýsingunni umdeildu
var auglýstur Samsung Galaxy S4
farsími.
Auglýsingin varð gríðarlega vin-
sæl á Youtube, meðal annars hefur
yfir ein milljón horft á hana.
Skakkiturninn kvartaði einnig
undan því að kind í auglýsingunni
væri niðrandi tilvísun í Apple-
vörur, en Neytendastofa féllst
ekki á það. Aftur á móti var fallist
á það að setningin „fáðu þér síma
sem skilur þig“ væri sett þannig
fram að skilja mætti að símar frá
vörumerkinu Apple skildu ekki
íslensku.
Hvergi kom fram í auglýsing-
unni að verið væri sérstaklega að
auglýsa nýja máltækni Samsung
Galaxy S4 farsíma sem skildu
talað íslenskt mál eins og haldið
var fram í málsvörn Tæknivara.
Neytendastofa taldi auglýsinguna
því vera villandi og ósanngjarna
gagnvart keppinaut Tæknivara. - vg
Yfir milljón hefur horft á auglýsingu sem Neytendastofa hefur nú bannað:
Banna vinsæla símaauglýsingu
UMDEILD AUGLÝSING Vel yfir milljón manns hafa horft á auglýsinguna á Youtube
sem hefur verið bönnuð.
SÁDI-ARABÍA, AP Sádiarabískur rit-
höfundur, Tariq al-Mubarak, hefur
verið handtekinn og yfirheyrður
um meinta aðild sína að herferð
sádiarabískra kvenna, sem á laug-
ardag hvöttu hver aðra til að setj-
ast undir stýri á bifreið.
Al-Mubarak hefur opinberlega
stutt þessa réttindabaráttu kvenna
og skrifaði meðal annars pistil um
það í dagblaðið Ashark al-Avsat á
laugardag.
Þar sagði hann öfgamenn ógna
fólki í von um að það þori ekki að
nýta sér lögskipuð réttindi sín. - gb
Kvennabarátta í Sádi-Arabíu:
Handtekinn
fyrir stuðning
KONA UNDIR STÝRI Langt frá því
algeng sjón í Sádi-Arabíu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SJÁVARÚTVEGUR HB Grandi
kaupir allt hlutafé í fyrirtækinu
Vignir G. Jónsson, sem er rúm-
lega 40 ára gamalt fyrirtæki á
Akranesi sem sérhæfir sig í full-
vinnslu á hrognum. Árið 2012
nam velta félagsins 2,4 milljörð-
um króna.
Með kaupunum er HB Grandi
að styrkja rekstur félagsins og
taka frekari þátt í að fullvinna
fiskafurðir.
Eigendur Vignis G. Jónsson-
ar munu stýra félaginu áfram
og reka það í óbreyttri mynd en
möguleikar á samlegð, eins og
til dæmis við sölu afurða, verða
nýttir í framhaldi af kaupunum.
- shá
HB Grandi kaupir á Akranesi:
Styrkja full-
vinnslu afurða
HEIMURINN
1
23