Fréttablaðið - 31.10.2013, Side 32
31. október 2013 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 32TÍMAMÓT
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
„Ég hef verið rosalega heppin með það
að ég hef fengið að njóta mín í starfi öll
þessi ár og hefði líklega ekkert grætt
á því að skipta um vinnu,“ segir Ragn-
heiður Kristjánsdóttir sem hefur starf-
að hjá Sjóvá í hálfa öld. Af því tilefni
var fyrir skemmstu haldið samsæti til
heiðurs Ragnheiði í höfuðstöðvum Sjó-
vár í Kringlunni þar sem boðið var upp
á veglegar tertur og snittur og starfs-
manninum til fimmtíu ára færð blóm
og peningagjöf. „Svo varð félagið 96
ára og haldin árshátíð í Hörpu daginn
eftir, þannig að þetta var afskaplega
fín helgi,“ segir Ragnheiður.
Ragnheiður var aðeins sextán ára
gömul þegar hún hóf störf hjá Sjóvá í
október árið 1963. „Ég kom til starfa
beint úr verslunardeild Laugarnes-
skólans, en sú deild var einungis
starfsrækt til prufu í tvö ár. Þá var
Bíladeild Sjóvár til húsa á Lauga-
vegi 176 og þremur árum síðar hóf-
ust útsendingar Ríkissjónvarpsins
úr sama húsi,“ rifjar Ragnheiður upp
og segist heldur betur hafa rekist á
sjónvarpsstjörnur þess tíma á hverj-
um einasta vinnudegi. „Ég man til
dæmis vel eftir öllum aprílgöbbunum
sem voru tekin upp fyrir sjónvarpið á
Laugaveginum. Aprílgöbbin voru ný á
þessum tíma og afskaplega skemmti-
leg.“
Fljótlega var Ragnheiður send á
námskeið hjá IBM á Íslandi til að læra
að starfa með gataspjöld, en þeim
undanfara tölvunnar fylgdu stórar og
miklar vélar. Í kjölfarið færði Ragn-
heiður sig um set milli vistarvera
fyrir tækisins, meðal annars í Ingólfs-
stræti, Suðurlandsbraut og Kringlunni,
þegar fyrirtækið sameinaðist Almenn-
um tryggingum árið 1989, og einnig
milli deilda innan Sjóvár en hún hefur
starfað í öllum deildum fyrirtækisins
nema innheimtudeild á þessum fimm-
tíu árum. „Innheimta er ekki mín
sterka hlið. Ég myndi örugglega gef-
ast strax upp því mér finnst svo erfitt
að rukka fólk,“ segir Ragnheiður, sem
hefur verið fulltrúi í tjónadeild frá
árinu 2008.
Ragnheiður segir árin hjá Sjóvá
hafa verið einkar ánægjuleg. „Ég hef
verið mjög heppin með samstarfs-
fólk og á marga góða vini eftir þenn-
an tíma. Mér hefur gefist kostur á að
prófa eitthvað nýtt reglulega og vinna
mig upp, sem er ómetanlegt,“ segir
Ragnheiður að lokum.
kjartan@frettabladid.is
Hefur starfað hjá Sjóvá
í heil fi mmtíu ár
Ragnheiður Kristjánsdóttir hefur starfað í hálfa öld hjá Sjóvá og var haldið upp á tíma-
mótin með pomp og prakt fyrir skemmstu. Hún segist hafa fengið að njóta sín í starfi .
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
MARÍA JÓHANNSDÓTTIR
Meðalholti 14,
lést sunnudaginn 27. október.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík
mánudaginn 4. nóvember kl. 13.00.
Halldór Þórisson
Jóhanna Magnea Þórisdóttir
Þórir Þórisson Halldóra Kr. Valgarðsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
FJÓLA STEINDÓRA HILDIÞÓRSDÓTTIR
Austurmýri 13, Selfossi,
lést á Sjúkrahúsi Suðurlands á Selfossi
27. október. Útförin fer fram frá Selfosskirkju
laugardaginn 2. nóvember kl. 15.00.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Fossheima
og Sjúkrahúss Suðurlands fyrir hlýtt viðmót og góða umönnun.
Sigurður Kristinn Sighvatsson
Guðbjörg Sigurðardóttir Kristinn Ólafsson
Hilmar Sigurðsson Hulda Guðmundsdóttir
Hjalti Sigurðsson Ragnheiður Jóna Högnadóttir
Helgi Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
JÓHANNA MAGNÚSDÓTTIR
Hvanneyrarbraut 44, Siglufirði,
lést á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar
sunnudaginn 27. október.
Magnús B. Jónasson Margrét Maronsdóttir
Ævar B. Jónasson Guðlaug Friðriksdóttir
Sigrún J. Jónasdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum innilega samúð og vinarhug
vegna fráfalls ástkærrar eiginkonu, móður
okkar, stjúpmóður, tengdamóður, ömmu,
langömmu og langalangömmu,
REGÍNU FJÓLU SVAVARSDÓTTUR,
Aflagranda 40, Reykjavík.
Hans R. Berndsen
Kristjana Albertsdóttir
Ragnhildur Albertsdóttir Rúnar Benjamínsson
Hrönn Albertsdóttir
Lilja Albertsdóttir
Ásgeir Albertsson Jarþrúður Jónsdóttir
Regína Berndsen
og ömmubörnin.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu, systur og mágkonu,
GUÐRÍÐAR GUÐMUNDSDÓTTUR
Laufvangi 18, Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir færum við öllum þeim sem
komu að umönnun í veikindum hennar.
Alf H. Pedersen
Helene H. Pedersen Einar Hjaltason
Guðmundur Þórir Pedersen Berglind Einarsdóttir
Anita Sigurveig Pedersen Sigurður Einar Marelsson
Hafdís, Þórhallur Ísak, Hugrún, Sylvía Rós, Sóley Katrín,
Óttar Freyr, Sindri Marel og Örvar Hrafn
Þuríður Guðmundsdóttir Kristján B. Kristjánsson
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
SIGURÐUR INGÓLFSSON
frá Eyri við Ingólfsfjörð,
Háeyrarvöllum 34, Eyrarbakka,
sem lést föstudaginn 25. október verður
jarðsunginn frá Eyrarbakkakirkju 2. nóvember kl. 14.00.
Ingunn Hinriksdóttir Sævar Sigurðsson
Halldór Björnsson Hafdís Edda Sigfúsdóttir
Sigríður Guðlaug Björnsdóttir Jón Birgir Kristjánsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi,
GUÐMUNDUR SIGURÐSSON
Vallarbraut 6, Reykjanesbæ,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
mánudaginn 21. október. Útför hans
fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju
föstudaginn 1. nóvember kl. 14.00.
Sesselja (Stella) Ingimundardóttir
Inga Benný Azzan Kanan
Sigurður J. Guðmundsson Svanborg K. Magnúsdóttir
Sigrún Guðmundsdóttir Valdimar Sigurjónsson
Einar M. Guðmundsson Guðbjörg F. Guðmundsdóttir
barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
SIGURÐUR HÓLM ÞORSTEINSSON
Hjallabraut 33, Hafnarfirði,
lést á Sólvangi í Hafnarfirði, sunnudaginn
27. október. Sálumessa verður sungin í
Dómkirkju Krists konungs í Landakoti, mánudaginn 4. nóvember,
klukkan 11.00. Þeim sem vilja minnast hins látna er bent á
Sagnfræðisjóð Björns Þorsteinssonar við Háskóla Íslands:
reikn. 0111-26-5712 – kt. 571292-3199 eða í síma 525-4000.
Torfhildur Steingrímsdóttir
Guðrún Unnur Martyny Donald Martyny
Ólafur Sigurðsson Anna Bergsteinsdóttir
Pétur Már Sigurðsson Stefanía Úlfarsdóttir
María Sigurðardóttir Örn Gíslason
barnabörn og barnabarnabörn.
Útför móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
AÐALHEIÐAR SVAVARSDÓTTUR
Gullsmára 7, Reykjavík,
sem lést föstudaginn 25. október, verður frá
Kópavogskirkju föstudaginn 1. nóvember
kl. 13.00.
Ólafur Tryggvason Halla Stefánsdóttir
Svavar Tryggvason Aðalbjörg Jóhannesdóttir
Sigrún Tryggvadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Bróðir minn,
GUNNAR SIGURÐSSON
bifreiðarstjóri
Tjarnarbrú 16, Höfn í Hornafirði,
lést á hjúkrunarheimilinu HSSA sunnudaginn
27. október. Útförin fer fram frá Hafnarkirkju
laugardaginn 2. nóvember kl. 13.00, jarðsett verður í
Stafafellskirkjugarði í Lóni. Blóm og kransar vinsamlegast
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á
hjúkrunarheimilið HSSA.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Sigurþór Sigurðsson
LANGUR FERILL
Ragnheiður
Kristjánsdóttir var
aðeins sextán ára
gömul þegar hún
hóf störf hjá Sjóvá
haustið 1963.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI