Fréttablaðið - 31.10.2013, Síða 40
FÓLK|| FÓ K | TÍSKA6
Timeout er ekki aðeins þægilegur og endingar-góður hægindastóll.
Hann er tímalaus hönnun sem
stenst tímans tönn,“ segir
Hrund Kristjánsdóttir, kaup-
maður í Línunni.
Línan hefur umboð fyrir
Timeout-hægindastólana sem
eru norsk gæðahönnun og fást
í mörgum spennandi og fal-
legum útfærslum.
„Norski innanhússarkitekt-
inn og iðnhönnuðurinn Jahn
Aamodt á heiðurinn af hönnun
Timeout-stólsins sem nýtur
mikilla vinsælda á Norður-
löndunum og í Evrópu,“ segir
Hrund um hægindastólinn
sem er framleiddur af sænska
húsgagnaframleiðandanum
Conform sem sérhæfir sig í
hægindastólum í ýmsum út-
færslum.
„Conform leggur áherslu
á skandinavíska hönnun og
handverk þar sem gæði og
fágun eru höfð að leiðarljósi.
Markmið Conform er að skapa
tímalaust samtímaumhverfi
með stólum sínum hvort
sem það er á heimilum eða
opinberum stöðum,“ útskýrir
Hrund.
Timeout-hægindastóllinn
er einstaklega þægilegur, með
stillanlegu baki og hnakka-
púða sem hægt er að hækka og
þrýsta fram eftir þörfum.
„Timeout höfðar til við-
skiptavina sem bera skynbragð
á góða hönnun og vandaða
framleiðslu. Stóllinn er fáan-
legur í mismunandi útfærslum
og hægt að velja á milli hnotu,
eikar eða svartbæsaðrar viðar-
klæðningar. Fótur stólsins er fá-
anlegur í krómi, eik eða hnotu
og framleiðandinn býður upp
á gríðarlegt úrval áklæða og
margar gerðir leðurs í fjölmörg-
um litum,“ útskýrir Hrund.
Timeout-hægindastóllinn
er fáanlegur með eða án fóta-
skemils en Hrund segir skemil-
inn eiga stóran þátt í þægind-
unum.
„Fótaskemillinn er hannaður
með það fyrir augum að vera
alltaf þægilegur, hvort sem
stóllinn er í uppréttri stöðu
eða lagður aftur. Þá er stóll-
inn útbúinn snúningsfæti sem
getur snúist í 360 gráður, en
þegar staðið er upp úr stólnum
fer hann ávallt í upprunalega
stöðu,“ segir Hrund.
Í Línunni fást fleiri stólar
frá Conform sem einnig njóta
mikilla vinsælda. Þar má nefna
stólana Gyro, Joy, Easy og Life.
Hægt er að skoða úrvalið á
heimasíðu fyrirtækisins www.
linan.is og heimasíðu framleið-
andans: www.conformcollce-
tion.se
Línan er í Bæjarlind 16 í
Kópavogi. Sjá linan.is
TÍMALAUS HÖNNUN
LÍNAN KYNNIR Timeout-hægindastóllinn er norsk gæðahönnun og einstak-
lega þægilegur. Hann nýtur mikilla vinsælda á Norðurlöndum og í Evrópu og
höfðar til allra sem bera skynbragð á góða hönnun og vandaða framleiðslu.
TIMEOUT Verð á Timeout-hægindastólum er breytilegt eftir útfærslum en algengt verð á stólum með skemli úr góðu leðri er um 379
þúsund krónur. MYND/VILHELM
JOY Línan býður upp á fjölbreyttar tegundir hægindastóla frá sænska húsgagnafram-
leiðandanum Conform. Þessi er úr Joy-línunni. MYND/VILHELM
LÍNAN Hrund Kristjánsdóttir, kaupmaður í Línunni. MYND/VILHELM
LÍNAN Í 37 ÁR
Línan er rótgróin húsgagnaverslun sem hefur verið
starfrækt frá árinu 1976 og hefur fyrirtækið verið í eigu
sömu fjölskyldu frá upphafi. Verslunin hefur alla tíð lagt
megináherslu á að bjóða góð húsgögn á samkeppnis-
hæfu verði og bjóða viðskiptavinum sínum upp á faglega
þjónustu.
Línan er til húsa í Bæjarlind 16 í Kópavogi.
Línan er á Facebook og vöruúrvalið á www.linan.is
BÆJARLIND 16 KÓPAVOGUR SÍMI 553 7100LINAN.IS
DDDD
AAAA
PPPPP
HHHHHHH
NNNNNN
YYYYYYY
DDDD
AAAAA
PPPPPPPPPPP
HHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHH
NNNNNNNNNNNNNNNNNNNNNNNNNNNNNNNNNNNNNNNNNNNNNNNNNNNNNNNNNNNNNNNNNNN
YYYYYYYYYYYYYYYY
kr. 252.200
kr. 306.800
kr. 182.200
kr. 152.000
kr. 123.500 kr. 106.200
kr. 99.400