Fréttablaðið - 31.10.2013, Side 48
KYNNING − AUGLÝSINGÚlpur & yfirhafnir FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 20138
Þegar við hugsum helst um komandi vetrarkulda eru
tískuhönnuðir að sýna sumartískuna 2014 jafnt fyrir börn
sem fullorðna. Í fyrradag fór fram tískusýning á barnafatnaði
fyrir næsta sumar í Peking í Kína en þar stendur yfir kínversk
tískuvika þessa dagana.
Ljósfjólublár litur var áberandi í sýningunni og má búast
við að hann verði vinsæll með hækkandi sól. Börnin voru
fallega klædd, í litríkum fötum en fyrir utan þann fjólubláa
mátti sjá appelsínugulan lit, bjartan grænan lit og milda
pastelliti. Alltaf gaman að ylja sér við sumarhugsun þegar
kólnar í veðri hér á norðurhveli jarðar.
Sumarið komið
á pallana
MACKINTOSH
REGNFRAKKINN
190 ÁRA
Mackintosh-regnfrakkinn er
nefndur eftir skoskum upp-
finningamanni sínum, Charles
Macintosh. Frakkann bjó hann til
úr efni sem húðað var gúmmíi.
Þótt Mackintosh-stíllinn sé orðinn
almennur í dag er upprunalegi
frakkinn enn búinn til úr gúmmíi
eða gúmmíhúðuðu efni.
Raunar var það skurðlæknirinn
James Syme sem fyrstur fann upp
þetta gúmmíhúðaða efni en það
var Charles Macintosh sem fékk
einkaleyfi á vatnsheldu fataefni
árið 1823 og fyrstu Mackintosh-
frakkarnir voru gerðir í vefnaðar-
verksmiðju fjölskyldunnar, Charles
Macintosh and Co. í Glasgow.
Með tíð og tíma breyttist nafn
merkisins í Mackintosh með k-i.
Árið 1930 sameinaðist fyrirtækið
öðru fatafyrirtæki í Manchester,
Thomas Hancock. Hancock hafði
einnig prófað sig áfram með
gúmmíklætt klæði frá 1819.
Framleiðsla á gúmmíklæddum
frökkum dreifðist nú um allt Bret-
land. Búnar voru til gúmmíklædd-
ar yfirhafnir af öllum tegundum,
til dæmis reiðfrakkar, frakkar fyrir
breska herinn, lestarstarfsmenn
og bresku lögregluna.
Fyrstu frakkarnir ollu nokkrum
vandræðum. Lyktin var vond, þeir
voru stífir og áttu til að bráðna
í miklum hita. Hancock þróaði
vatnsþétta efnið áfram og fékk
einkaleyfi á nýrri aðferð árið
1843 sem leysti mörg vandamál.
Fyrirtækið hélt áfram að framleiða
vatnsþéttar flíkur fram á tuttug-
ustu öld en árið 1925 tók Dunlop
Rubber fyrirtækið yfir.
Við aldamótin eignuðust starfs-
menn fyrirtækið og endurreistu
hinn klassíska Mackintosh sem
lúxusvöru. Fyrirtækið hóf sam-
vinnu við heimsfræg tískumerki
á borð við Gucci, Hermès, Louis
Vuitton og Liberty.
Frakkarnir urðu sérlega vinsælir
meðal japanskra kvenna. Árið
2003 var nafni fyrirtækisins form-
lega breytt í Mackintosh. 2007 var
það keypt af japanska fyrirtækinu
Yagi Tsusho. Í janúar 2011 opnaði
fyrirtækið sína fyrstu tískuvöru-
verslun í London.
Frábær dagskrá
á Stöð 3
Tryggðu þér áskrift á www.stod3.is
BARNAEFNI
ALLA DAGA
Vandað talsett barnaefni
og skemmtilegir þættir
fyrir yngstu
áhorfendurna
alla daga.
X Fa tc or USA
Arrow
Vampire
Diaries
Í eldhúsinu
hennar Evu
Super Fun
Night
The Mindy
Project
Nikita
Banshee
Pretty L ittle Liars
Grimm*
Dads*
Shameless
„Frábær sjónvarpsþáttur
sem grípur mann
frá fyrsta augnabliki.“
– The Hollywood Reporter
Verðlaunaleikarinn
William H. Macy
leikur aðalhlutverkið
í þessum mögnuðu
þáttum.
Sleepy
Hollow*
Einn vinsælasti
nýi þátturinn í
Bandaríkjunum.
Laugardagsþátturinn
með Frikka Dór*
Game T íví
Grac le and
*Hefst í nóvember
Carrie
Diaries
= 2.990 kr. á mánuði
SkjárEinn
4.990
kr. á mánuði