Fréttablaðið - 31.10.2013, Side 50
FÓLK|| FÓ K | TÍSKA8
Dermatude „Meta Therapy“ er eina 100 prósent náttúrulega meðferðarúrræðið við öldrun
húðar þar sem sprautur koma hvergi
nærri. Meðferðin dregur úr öldrun húð-
arinnar og dregur einnig úr sjáanlegum
ummerkjum öldrunar,“ segir Undína
Sigmundsdóttir, eigandi fyrirtækisins
FR Cosmetics, sem er umboðsaðili
Dermatude Meta Therapy á Íslandi.
Fyrstu merki um að húðin sé farin
að eldast koma fram við 25 ára aldur.
„Húðin þynnist, blóðflæði minnkar og
það hægir á náttúrulegri framleiðslu
kollagens og elastíns en húðin tapar þá
stinnleika og teygjanleika. Þá þornar
hún vegna fækkunar fitukirtla,“ lýsir
Undína. Fyrstu ummerki um öldrun
húðar eru broshrukkur sem sjást í
kringum augun. „Þetta náttúrulega
öldrunarferli kemur innan frá en ytri
aðstæður flýta fyrir ferlinu, eins og
óhóflega miklir útfjólubláir geislar
frá sól eða ljósalömpum, loftkæling,
streita, áhrif sindurefna og loftmeng-
unar, að ógleymdu tóbaki og áfengi,“
segir Undína.
„Meta Therapy felst í því að gerð-
ar eru örsmáar ástungur á húð án
minnsta sársauka. Náttúrulegar varnir
líkamans bregðast samstundis við og
hefja framleiðslu á kollageni og elast-
íni til að gera við „skaðann“. Þessar
sjálfvirku viðgerðir líkamans eru 100
prósent náttúrulegar og húðin endur-
nýjast innan frá. Við þetta verður hún
þéttari og fær aftur stinnleika sem var
farinn að minnka, og greinilega sést
að fínar línur og smáhrukkur sléttast,
húðholurnar grynnast, hringrásarferli
örvast og almennt ástand húðarinnar
batnar,“ segir Undína. Meðferðinni
fylgja einnig virk efni, þ.e. svokölluð
sérstök fyllingarefni, sem gera það
kleift að framkvæma mjög sérhæfðar
og sérmiðaðar meðferðir sem hæfa við-
komandi húðgerð.
„Fyrst eftir meðferðina getur borið
á dálitlum roða, en hann hverfur á ör-
fáum klukkustundum. Hægt er að snúa
sér strax aftur að daglegum störfum
og það má nota andlitsfarða sólarhring
eftir meðferð,“ upplýsir Undína. Hún
ráðleggur að taka átta skipta meðferð
en einnig sé hægt að taka stök skipti.
Árangurinn verði þó meiri með fullri
meðferð.
STOPPAÐU ÖLDRUN
HÚÐARINNAR
FR COSMETICS KYNNIR Dermatude er nýtt snyrtivörumerki í hæsta gæða-
flokki. Dermatude „Meta Therapy“ er byltingarkennd meðferð sem dregur úr
öldrun húðarinnar og dregur einnig úr sjáanlegum ummerkjum öldrunar.
FYRIR
EFTIR
KENNSLA Undína hélt námskeið í lok sumars til að kenna meðferðarleiðina.
Van Herpen vakti athygli dómara með hinni sérstöku fatalínu sinni Voltage, sem hún sýndi í janúar síðastliðnum á tískuvikunni í
París. Þar hannaði hún kjóla og föt með sérstakri
þrívíddar prenttækni. „Með Voltage gefur van Herpen
fólki innsýn inn í tísku framtíðarinnar,“ segir í dóms-
niðurstöðu.
Van Herpen er fædd 1984. Hún stundaði nám í
tískuhönnun við Artez Institute of the Arts í Arnhem
en þaðan hafa hönnuðir á borð við Viktor & Rolf út-
skrifast. Hún var lærlingur hjá Alexander McQueen
í London og Claudy Jongstra í Amsterdam. Árið
2007 stofnaði hún sitt eigið tískumerki og fyrir
tveimur árum var henni boðið í hinn virta félagsskap
Chambre Syndicale de la Haute Couture í París.
Van Herpen er þekkt fyrir afar óvenjulega notkun
á efni og ótrúlega flókna útfærslu á kjólum og flíkum
fyrir konur. Sumar flíkurnar minna meira á listaverk
og skúlptúra. Hún nýtir sér oft samstarf við aðra
listamenn við hönnun sína.
Föt van Herpen hafa notið vinsælda meðal
nokkurra stjarna, til dæmis Lady Gaga og Daphne
Guinness. Söngkonan Björk hefur klæðst nokkrum
kjólum eftir van Herpen, til dæmis á plötuumslagi
Biophilia-plötunnar. Sami kjóll, úr línunni Radiation
Invasion, sást í tónlistarmyndbandi við lagið Moon.
Björk var einnig í kjólum frá van Herpen á tónleikum
í fyrra á Hróarskeldu, í New York og á Íslandi.
TÍSKA FRAMTÍÐAR
VERÐLAUN Hollenski fatahönnuðurinn Iris van Herpen hlaut aðalverðlaun
hollensku hönnunarverðlaunanna á dögunum fyrir frumlega efnisnotkun.
HÖNNUÐURINN Iris van Herpen mun án efa vekja mikla
athygli í framtíðinni.
3D Flíkur búnar til með þvívíddarprenttækni. Úr línunni Voltage sem sýnd var á tískuvikunni í París í janúar. NORDICPHOTO/GETTY