Fréttablaðið - 31.10.2013, Blaðsíða 60
31. október 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 40
Í dag opnar hin pólska Alicja Kwade
sýninguna Fastastjörnur og önnur
skilyrði í gallerí i8 í Tryggvagötu.
Sýningin samanstendur af skúlp-
túrum og innsetningum, en Alicja
hefur hlotið fjölda viðurkenninga á
undanförnum árum fyrir verk sín.
Alicja spilar saman fundnum hlut-
um, úr nánasta umhverfi eða keypt-
ir á Ebay, og hinum ýmsu iðnaðar-
efnum.
Verkin búa yfir formrænum eig-
inleikum höggmyndalistarinnar og
eiga sér rætur í naumhyggju. Hún
hefur áhuga á vísindalegum fyrir-
bærum og vangaveltum. „Ég er ekki
vísindamaður, heldur listamaður –
en ég hef gríðarlega mikinn áhuga á
sumum þeim spurningum sem eðlis-
fræðin spyr og hvernig er reynt að
svara þeim. Ætli ég hafi ekki mest-
an áhuga á því sem enginn, ekki
einu sinni eðlisfræðilögmál, geta
úskýrt,“ segir Alicja.
En verk hennar leitast við að með-
höndla hluti, ferla og hugmyndir
með aðferðum sem gjarnan ganga
á hólm við lögmál eðlisfræðinnar.
Hún leitar þannig einfaldra leiða
til að komast að skilningi á veru-
leikanum þar sem viðteknum venj-
um og efniviði er raðað upp á nýtt.
„Ég leyfi mér líka að draga í efa
menningarleg stigveldi og gildi með
því að gefa hlutunum óhefðbundin
hlutverk og með því að rýna í eðlis-
læga eiginleika efniviðar þeirra,“
segir Alicja jafnframt.
„Hefðbundin menningarhlutverk
og nytjahlutverk eru eitthvað sem
mannkynið bjó til einfaldlega því
það hentaði,“ útskýrir hún.
Alicja Kwade hlaut Robert Jacob-
sen Prize árið 2010 og Piepenbrock
Prize fyrir skúlptúra árið 2008. Hún
er fædd árið 1979 í Katowice í Pól-
landi en býr nú og starfar í Berlín.
Eitt verkanna sem verða til sýnis
heitir Þungavigt ljóssins. Í verkinu
er ílöngum hlutum úr ýmsum iðnað-
arefnum – svo sem bronsi, kopar og
viði - vandlega stillt upp við hliðina
á plötum úr stáli og spegilgleri. Þar
sem hver eining innsetningarinnar
er beygð í níutíu gráður niður eftir
vegg og fram á gólf umbreytast
venjubundnir eiginleikar efnivið-
arins; efni sem alla jafna eru hörð
verða mjúk eða fljótandi og virðast
renna á þokkafullt niður vegginn og
út á gólfið.
Sýningin stendur yfir til 14. des-
ember. olof@frettabladid.is
Tríó Kalinka kemur fram á hádegistónleikunum í Háteigskirkju á
morgun. Tríóið skipa við það tækifæri Gerður Bolladóttir sópran, Mar-
ina Shulmina sem leikur á rússneska hljóðfærið domra og einnig Jónas
Ásgeir Ásgeirsson sem leysir Helgu Kristbjörgu Guðmundsdóttur af á
harmonikunni.
„Domra er mjög sérstakt þriggja strengja rússneskt hljóðfæri sem er
sjaldgæft hér á Íslandi. Það og harmonikan mynda ótrúlega flottan tón
saman og gera það að verkum að allur flutningur okkar verður með rúss-
nesku ívafi, jafnvel á íslenskum sönglögum eftir Þórarin Guðmundsson
og Karl O. Runólfsson,“ segir söngkonan Gerður. Á dagskránni verða
líka rússnesk þjóðlög og fjörugir dansar og rómansar bæði frá Íslandi og
Rússlandi að hennar sögn. - gun
Dansar og rómansar
Rússneskt yfi rbragð verður á hádegistónleikum
í Háteigskirkju á morgun, föstudag.
TRÍÓ
KALINKA
Jónas
Ásgeir,
Gerður
Bolladóttir
og Marina
Shulmina
koma fram
saman í
Háteigs-
kirkju.
Lokaviðburður Lestrarhátíðar í ár fer fram í ljóðarútu sem keyrir um í
borgarmyrkrinu í kvöld. Ljóðin lögðu af stað í ferðalag um borgina þann
1. október þegar Lestrarhátíð hófst og því vel við hæfi að ljúka mán-
uðinum á ljóðrænum rúnti með einvalaliði skálda.
Ljóðarútan fer frá Hörpu klukkan 20 og tekur ferðin um eina og hálfa
klukkustund. Sigurlín Bjarney Gísladóttir, skáld og leiðsögukona, fer með
gesti um upplýsta borgina í kvöldmyrkrinu og skáldin stíga um borð um
stund þar til þau hverfa aftur út í næturmyrkrið. Meðal skáldanna eru
Bjarki Karlsson, Bragi Ólafsson, Gerður Kristný, Heiða Eiríks, Kári Tul-
inius, Sindri Freysson, Valgerður Þóroddsdóttir og Þórdís Gísladóttir.
Ferðinni lýkur við Hörpu klukkan 21.30 þar sem ljóðskáld frá fyrri tíð
stígur um borð og biður gesti um að nefna sig.
Sætafjöldi er takmarkaður og er áhugasömum bent á að nauðsynlegt
er að bóka far með rútunni með því að senda póst á netfangið bokmennta-
borgin@reykjavik.is.
Leynigestur frá fyrri
tíð í ljóðarútunni
Lestrarhátíð í Reykjavík lýkur í kvöld með því að
ljóðarúta ekur um borgina. Um borð verða ýmis
valinkunn skáld sem lesa úr verkum sínum.
LEIÐSÖGUKONAN Sigurlín Bjarney Gísladóttir skáld verður allsráðandi í ljóðarút-
unni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Í tilefni af endurútgáfu bókar Þórar-
ins Eldjárn Grannmeti og átvextir mun
Ljótikór í kvöld endurflytja dagskrá
sína Grannmetis- og átvaxtaveisla
Ljótakórs en hún var frumflutt vorið
2012. Öll tónlist í dagskránni er eftir
Hauk Tómasson tónskáld og textinn
eftir Þórarin úr fyrrnefndri bók, en
Ljótikór leggur sig fram um að fara
nýstárlegar leiðir í tónlistarflutningi.
Tónleikarnir fara fram í Tjarnar-
bíói og hefjast klukkan 20. Aðeins
verða þessir einu tónleikar.
Grannmeti
og átvextir
LEIKRÆNT Ljótikór fer nýstárlegar leiðir í tónlistarflutningi.
Mestan áhuga á því sem
enginn getur útskýrt
Sýning Alicja Kwade samanstendur af skúlptúrum og innsetningum. Sýningin
verður opnuð í Galleríi i8 í dag. Alicja segist leita einfaldra leiða til að komast
nær skilningi á veruleikanum.
LISTAMAÐUR
Alicja hefur mikinn
áhuga á spurnin-
gum eðlisfræð-
innar.
MYND/STEFÁN
Ljóðabók Bjarka Karlssonar, Árleysi alda, trón-
ir á toppi metsölulista Eymundsson aðra vikuna
í röð. Bjarki hlaut sem kunnugt er Bókmennta-
verðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir hand-
ritið og lesendur virðast sammála dómnefnd
verðlaunanna um að hér sé eðalbók á ferð.
Maður sem heitir Ove er komin í annað
sæti eftir að hafa einokað toppsætið
vikum saman, en skammt undan eru
jólaskáldsögurnar, Mánasteinn Sjóns
í þriðja sæti og Glæpurinn eftir Árna
Þórarinsson í því fjórða. Í fimmta
sæti situr bókin Iceland Small World
eftir Sigurgeir Sigurjónsson. - fsb
Bjarki enn á toppnum
➜ Verkin
búa yfir
formrænum
eiginleikum
höggmynda-
listarinnar
og eiga sér
rætur í naum-
hyggju. Alicja
hefur áhuga á
vísindalegum
fyrirbærum og
vangaveltum.
MENNING