Fréttablaðið - 31.10.2013, Síða 72
31. október 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING BÍÓ | 52
Ævintýramyndin Thor: The Dark World verður
heimsfrumsýnd á Íslandi í kvöld. Ástralinn Chris
Hemsworth bregður sér aftur í hlutverk þrumu-
guðsins Þórs, sem þarf að glíma við fornan
fjanda sem vill eyða veröld guðanna.
Til að brjóta hinn illa Malekith á bak aftur
þarf Þór að leita aðstoðar goðsins Loka, en á
milli þeirra ríkir lítið traust sem gæti verið
þrándur í götu friðar. Leikstjóri myndarinn-
ar er Alan Taylor og auk Hemsworth fara
Natalie Portman, Tom Hiddleston, Anthony
Hopkins, Stellan Skarsgård og Idris Elba
með helstu hlutverk.
● Tökulið var sent til Íslands til þess að taka
loftmyndir af Dettifossi frá ólíkum sjónar-
hornum. Myndefnið var notað sem grunnur
fyrir fossana í Ásgarði.
● Tökur fóru einnig fram í Dómadal, við
Skógafoss, Fjaðrárgljúfur og á Skeiðarársandi.
● Um 30 hamrar voru smíðaðir fyrir
kvikmyndina. Aðalhamarinn var smíðaður
úr áli en aðrir hamrar voru ýmist þyngri
eða léttari og voru þeir léttustu notaðir í
hvers kyns brellur.
● Myndin var að hluta til tekin upp hér á landi.
Hálendi Íslands þótti kjörið fyrir dimma veröld
Svartálfaheima.
● Myndin gekk undir heitinu Thursday Morning
á meðan á tökum stóð. Thursday, eða fimmtu-
dagur, er kenndur við þrumuguðinn Þór.
● Leikstjórinn Patty Jenkins átti upphaflega að
taka að sér að leikstýra myndinni. Hún hætti
við vegna listræns ágreinings og þótti Natalie
Portman, aðalleikkonu myndarinnar, það svo
miður að hún neitaði að taka að sér hlutverk
í myndinni. Hún varð þó að snúa aftur sem
Jane Foster vegna samningsins sem hún
hafði gert við framleiðslufyrirtækið.
Þrumuguð
til bjargar
Ævintýramyndin Thor: The Dark World er
frumsýnd í kvöld. Kvikmyndin skartar
Chris Hemsworth í hlutverki Þórs og
Tom Hiddleston í hlutverki Loka.
KOMINN AFTUR Chris Hemsworth fer með
hlutverk þrumuguðsins Þórs í kvikmyndinni
Thor: The Dark World.
Við erum bestar, sænskur
„feel gúddari“
Við erum bestar gerist árið 1982
í Stokkhólmi og segir frá þremur
þrettán ára stúlkum sem takast
í sameiningu á við öll vandamál
unglingsáranna. Kvikmyndin er í
leikstjórn Lukas Moodysson og hefur
hlotið einróma lof gagnrýnenda.
Furðufuglar, teiknimynd
Tveir ólíkir kalkúnar, Reggie og Jake,
taka höndum, eða vængjum, saman
og ætla að ferðast aftur í tímann og
breyta gangi sögunnar með þeim
afleiðingum að kalkúnar verði ekki
á boðstólum Bandaríkjamanna á
þakkargjörðardaginn. Stórleikararnir
Owen Wilson, Woody Harrelson og
Amy Poehler ljá raddir sínar.
Carrie, hrollvekja
Hrollvekjan um Carrie hefur verið
endurgerð og í þetta sinn er það
Chloë Moretz sem fer með aðalhlut-
verkið. Carrie verður fyrir stöðugu
einelti í skólanum og heima við þarf
hún að glíma við heittrúaða móður
sína. Handrit myndarinnar er byggt á
samnefndri skáldsögu Stephen King.
Philomena, drama
Leikkonan Judi Dench fer með
hlutverk Philomena Lee sem varð
barnshafandi á unglingsárum sínum
á Írlandi árið 1952. Sonur hennar er
tekinn frá henni og ætt-
leiddur til Bandaríkj-
anna. Næstu fimmtíu
ár leitar Philomena
að honum án árang-
urs. Hún kynnist svo
Martin Sixsmith,
tortryggnum
blaðamanni, og
ferðast þau til
Bandaríkjanna
í von um að
finna son
Philomenu.
FRUMSÝNINGAR
Fjórar ólíkar kvikmyndir
eru sýndar um helgina
Endurgerð og
„feel gúddari“
Breski leikarinn Nigel Davenport
er látinn, 85 ára að aldri. Daven-
port var hvað þekktastur fyrir hlut-
verk sín í Óskarsverðlaunamynd-
inni Chariots Of Fire og Man
for all Seasons. Hann er faðir
leikarans Jacks Davenport.
Nigel Davenport stundaði
nám við Oxford áður en hann
gerðist sviðsleikari. Í upp-
hafi kvikmyndaferils síns tók
hann helst að sér minni hlutverk
í kvikmyndum á borð við Peeping
Tom og Look Back in Anger.
Hann lék einnig á móti Vanessu
Redgrave í stórmyndinni Mary,
Queen of Scots sem kom út
árið 1971 og fór með hlutverk
Abrahams Van Helsing í hrollvekj-
unni Bram Stoker‘s Dracula sem
frumsýnd var árið 1973.
Davenport fæddist í Englandi
árið 1928 og stundaði enskunám
við Sidney Sussex-háskólann.
Hann komst á samning hjá Royal
Court leikhúsinu árið 1960 og hóf
kvikmynda- og sjónvarpsferil sinn
skömmu síðar.
Davenport lætur eftir sig þrjú
börn: Lauru, Hugo og leikarann
Jack.
Nigel Daven-
port látinn
LÁTINN Breski leikarinn Nigel
Davenport átti langan og farsælan feril
að baki. NORDICPHOTOS/GETTY
Leikur í nýrri
kvikmynd
Neills
Blomkamp
Sigourney Weaver tekur að sér
hlutverk í myndinni Chappie sem
segir frá ungu vélmenni.
MEÐ BLOMKAMP Leikkonan Sigourney Weaver fer með
hlutverk í nýrri kvikmynd leikstjórans Neills Blomkamp. NOR-
DICPHOTOS/GETTY
Leikkonan Sigourney Weaver hefur
tekið að sér hlutverk í nýrri kvik-
mynd suðurafríska leikstjórans
Neills Blomkamp, Chappie. Hugh
Jackman, Dev Patel, Ninja, Yolandi
Visser úr hljómsveitinni Die Antwo-
ord, Jose Pablo Cantillo og Brand-
on Auret fara með helstu hlutverk
myndarinnar.
Myndin segir frá vélmenni sem
rænt er af tveimur glæpamönnum
og elst upp hjá stórfurðulegri fjöl-
skyldu, en vélmennið, sem er piltur,
er gætt einhvers konar náðargáfu.
Sharlto Copley, náinn samstarfs-
maður Blomkamp, mun ljá vél-
menninu rödd sína.
Blomkamp skrifaði handrit
myndarinnar ásamt Terri Tatchell
og fara tökur fram í Jóhann-
esarborg. Blomkamp á að baki
kvikmyndir á borð við District 9 og
Elysium.
Ekki er vitað hvaða hlutverk
Weaver mun fara með í Chappie, en
leikkonan er enginn nýgræðingur
þegar kemur að því að leika í mynd-
um sem eiga sér stað í framtíðinni.
Þekktust er Weaver fyrir hlutverk
Ripley í Alien-kvikmyndunum.
➜ Fyrsta kvikmyndahlutverk
Sigourney Weaver var í
kvikmyndinni Annie Hall frá
1977. Þar lék hún stúlku sem
fer á stefnumót með persónu
Woodys Allen.
BÍÓFRÉTTIR