Fréttablaðið - 31.10.2013, Qupperneq 76
31. október 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 56
TÓNLIST ★★★★★
Komdu til mín svarta systir
Mammút
RECORD RECORDS
Þessarar þriðju plötu indírokksveitarinnar Mamm-
út hefur verið beðið með töluverðri eftirvæntingu
enda eru fimm ár liðin síðan Karkari kom út við
góðar undirtektir. Níu lög eru á gripnum, þar á
meðal Salt og Blóðberg sem hafa verið spiluð tölu-
vert í útvarpi.
Það verður að segjast eins og er að Mammút hefur
nýtt þessi fimm ár vel því Komdu til mín svarta
systir er virkilega vel heppnuð plata. Í umslaginu
segir að hún sé tileinkuð fyrrverandi og núverandi
elskhugum hljómsveitarmeðlima og skín það í gegn
í vel sömdum textum Katrínu Mogensen, þar sem
undirtónninn er kynferðislegur og söngur hennar
að sama skapi bæði tælandi og fagur. „Bleyttu upp
í tungunni minni, áður en hún þornar,“ syngur hún í
hinu kraftmikla lokalagi Tungan og lagið Blóðberg
hefst á setningunni: „Villi þér sýn, ég klæði mig úr
kjólnum á meðan sólin gyllir hrygginn minn“.
Bestu lög plötunnar eru fyrrnefnd Tungan og
Salt, sem er eitt af lögum ársins. Blóðberg og
Ströndin hljóma einnig einkar vel. Platan er ann-
ars passlega löng og heildarsvipurinn er töff. Tví-
mælalaust ein af plötum ársins.
Freyr Bjarnason
NIÐURSTAÐA: Eftir fimm ára bið sendir Mammút frá sér
eina af plötum ársins.
Töff heildarsvipur og tælandi söngur
MAMMÚT
„Okkur langar að láta gott af okkur
leiða með fatamarkaðnum,“ segir
Þórunn Ívarsdóttir tískubloggari
sem stendur fyrir fatamarkaði til
styrktar Rauða krossinum, ásamt
vinkonum sínum, þeim Alexöndru
Bernharð, Steinunni Eddu Stein-
grímsdóttur og Margréti R. Jón-
asar. Þær ætla að selja fötin úr
fataskápnum sínum eins og á hefð-
bundnum fatasölum en ætla að gefa
150 krónur af hverri seldri flík til
Rauða krossins.
Á staðnum verður gámur frá
Rauða krossinum þar sem öllum er
frjálst að koma með flíkur, skó og
ýmislegt annað til að gefa í gám-
inn. „Hver sá sem gefur í gáminn
fær í hendurnar happadrættismiða
en með honum er hægt að vinna
vegleg verðlaun frá hinum ýmsu
fyrirtækjum sem styrkja málefnið
eins og Make Up Store, Vero Moda
og fleiri fyrirtæki,“ bætir Þórunn
við.
Fatamarkaðurinn verður hald-
inn á skemmtistaðnum Austur,
laugardaginn 2. nóvember og hefst
klukkan tólf. - glp
Tískuföt seld til styrktar
Rauða krossinum
Tískubloggarar selja fl íkur til styrktar góðu málefni.
STYRKTARSALA Þórunn Ívarsdóttir
tískubloggari stendur fyrir fatasölu ásamt
vinkonum sínum til styrktar Rauða kross-
inum. MYND/ JÓNAS SIGURBJÖRNSSON
For a Minor Reflection er að gefa
út tvöfalda plötu sem ber nafnið
Live at Iceland Airwaves. Útgáf-
an inniheldur hljóð- og myndupp-
töku af tónleikum sveitarinnar
á Iceland Airwaves árið 2012 í
Norðurljósum, Hörpu.
Kjartan Holm, gítarleikari
sveitarinnar, hefur verið á tón-
leikaferðalagi síðustu miss-
eri með Sigur Rós og hefur For
a Minor Reflection þess vegna
haldið sig til hlés á meðan.
Hljómsveitin mun þó stíga á svið
á Iceland Airwaves og frumflytja
nýtt efni í bland við eldra. Alls
kemur hljómsveitin fram á sex
tónleikum í vikunni, þ.e. á aðal-
tónleikum í Norðurljósum Hörpu
á föstudagskvöld, og á fimm
öðrum tónleikum utan dagskrár.
FOR A MINOR REFLECTION Hljóm-
sveitin gefur út tvöfalda tólneikaplötu.
Með tvöfalda
tónleikaplötu
Bandaríski tónlistarmaðurinn
Stevie Wonder staðfesti í samtali
við The Independent að tvær plöt-
ur væru væntanlegar frá honum á
næsta ári. Wonder, sem er orðinn
63 ára, hefur ekki gefið út plötu
í átta ár en nýju plöturnar munu
heita When the World Began og
Ten Billion Hearts.
Wonder sagðist ætla að breyta
mikið til á næstu plötum og jafn-
vel syngja gospel á arabísku
eða hebresku. Þá sagðist hann
hafa hlustað mikið á rapptónlist
undanfarið en fyrr á árinu hafði
hann tjáð sig um að nýja efnið
yrði flutt af sinfóníuhljómsveit.
Wonder með
nýjar plötur
NÝTT EFNI Stevie Wonder segist ætla
að gefa út tvær plötur á næsta ári. NOR-
DICPHOTOS/GETTY