Fréttablaðið - 31.10.2013, Blaðsíða 86
31. október 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 66
DY
NA
M
O
RE
YK
JA
VÍ
K
Ragnar
Jónasson
með nýjanog spennandikrimma!
Fiskikóngurinn
Sogavegi 3
fiskikongurinn.is
s. 587 7755
Roðlausir og beinlausir
Framhald á hasarmyndinni Olympus Has Fallen
sem á að gerast í London er í undirbúningi.
Sem fyrr verða handritshöfundar hin íslenska
Katrín Benedikt, sem flutti til Bandaríkjanna þegar
hún var sex ára, og eiginmaður hennar Creighton
Rothenberger.
Samkvæmt Screen Daily mun framhaldið heita
London Has Fallen og fjallar um hryðjuverka-
menn sem gera árás á ensku höfuðborgina á
meðan jarðarför forsætisráðherra Bretlands
stendur yfir.
Gerard Butler, Aaron Eckhart og Mor-
gan Freeman munu allir endurtaka hlut-
verk sín úr fyrri myndinni, sem var
frumsýnd í mars síðastliðnum. Hún
fjallaði um fyrrverandi lífvörð Banda-
ríkjaforseta sem lokast inni í Hvíta húsinu í miðri
hryðjuverkaárás og var gerð eftir fyrsta kvik-
myndahandriti Katrínar og Rothenbergers.
Myndin hlaut mjög góðar viðtökur og halaði inn
160 milljónir Bandaríkjadala um allan heim, eða
um nítján milljarða króna. Framleiðslukostn-
aður nam um 80 milljónum dala, eða rúmum
níu milljörðum króna.
Butler verður aftur einn af framleið-
endum og eiga tökur að hefjast 5. maí
á næsta ári í London. Enn á eftir að
ráða leikstjóra en Antoine Fuqua
leikstýrði fyrri myndinni. -fb
Katrín skrifar framhald Olympus
Handritshöfundurinn Katrín Benedikt skrifar framhald Olympus Has Fallen.
KATRÍN OG BUTLER Katrín Benedikt ásamt
leikaranum Gerard Butler.
➜ Katrín og Rothenberger skrifa
einnig handritið að Expendables
3 ásamt Sylvester Stallone.
Eiði Arnarssyni hefur verið sagt
upp sem útgáfustjóra stærstu
plötuútgáfu landsins, Senu. „Það
eru mjög miklar breytingar á tón-
listarmörkuðum sem valda þessu.
Þetta er gert í eins góðu og hægt
er að gera og ég útiloka alls ekki að
við eigum eftir að vinna með Eiði
í framtíðinni,“ segir Björn Sig-
urðsson, framkvæmdastjóri Senu.
„Þetta er eitthvað sem menn í hans
stöðu í löndunum í kringum okkur
hafa verið að ganga í gegnum síð-
ustu fimm til tíu árin. Sena er
síður en svo hætt að gefa út músík
og við munum kynna nýtt skipulag
á næstunni.“
Eiður lætur af störfum um
áramótin eftir sextán ára starf.
Aðspurður segir hann tímann
hjá Senu hafa verið svakalega
skemmtilegan og starfið einstak-
lega líflegt. „Annars vegar eru
endalaus forréttindi að vinna við
tónlist og hins vegar að vinna
við hjartans afkvæmi listamann-
anna, sem plöturnar gjarnan eru.
Að vera treyst fyrir þessu starfi er
búið að vera frábært.“
Eiður segist ætla að vinna „gjör-
samlega á fullu“ til áramóta. „Auð-
vitað er fullt af hlutum sem maður
á eftir að sakna. En að vera í sext-
án ár í þessu starfi er mjög langur
tími. Ef markaðurinn væri stærri
væri ég sennilega löngu hættur, ef
það væri eðlileg „rótering“ í þess-
um bransa eins og gengur og gerist
erlendis.“ -fb
Hættir hjá Senu eft ir 16 ára starf
Eiður Arnarsson hættir um áramótin sem útgáfustjóri Senu eft ir 16 ára starf.
➜ Eiður segir ekkert ákveð-
ið með framhaldið hjá sér en
hann hefur ekki í hyggju að
hætta í tónlistarbransanum.
HÆTTIR Eiður Arnarsson segir tímann
hjá Senu hafa verið svakalega skemmti-
legan. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Við systurnar erum gríðarlega
skotnar í K-bar. Mæli með kjúklinga-
vængjunum sem eru svo djúsí að
helst þyrfti að fara í sturtu eftir að
hafa borðað þá, já og kimchiepla-
og beikonsalatinu.“
Margrét Erla Maack, fjölmiðlakona.
BESTI BITINN
„Ég hef alltaf haft tröllatrú á
honum pabba sem teiknara,“ segir
Davíð Guðjón Karlsson, betur
þekktur sem Gói, um föður sinn,
en þeir feðgar voru að gefa út bók
sem nefnist Jólaandinn. Davíð
Guðjón skrifar en Karl Sigur-
björnsson, fyrrverandi biskup
Íslands og faðir Davíðs, mynd-
skreytti.
„Málið er að þegar við systk-
inin vorum ung þá sá hann alltaf
um að búa til afmælisdúka fyrir
okkur þegar við áttum afmæli,
hann teiknar líka og föndrar
afmælis- og jólakort í fjölskyld-
unni og er bara ofboðslega list-
rænn í sér,“ segir Gói og bætir
við: „Þannig að ég bað hann um
að myndskreyta þessa sögu og er
bara virkilega ánægður með það
að hann skyldi taka það að sér.“
Gói kveðst hafa gengið með sög-
una í maganum í einhvern tíma.
Hún fjallar um fjölskyldu sem er
á fullu að undirbúa jólin. „Þetta er
dæmigerð íslensk fjölskylda. Það
eru að koma jól og allir stressaðir.
Mamman er í prófum og pabbinn
og allir uppteknir og enda-
laust verið að tala um
jólaanda. Þannig að son-
urinn fer að velta fyrir
sér hvað þetta fyrirbæri
sé: jólaandinn. Eina nótt-
ina fer besti vinur hans,
bangsinn Bjössi, á stúfana
og reynir að finna þennan
jólaanda.“
Gói lýsir bókinni sem
hugljúfri sögu um
jólaandann. „Þetta
er saga sem skipt-
ir máli. Enginn
æsingur eða fífla-
gangur, það er nóg
af því, þetta er
bara svona hug-
ljúf saga um jóla-
andann,“ segir
hann að lokum.
olof@frettabladid.is
Fyrrverandi biskup
myndskreytir bók
Feðgarnir Davíð Guðjón Karlsson og Karl Sigurbjörnsson, fyrrverandi biskup
Íslands, gefa út jólabók. Davíð Guðjón segir föður sinn einstaklega listrænan.
LISTRÆNN
Karl Sigur-
björnsson
hefur haft það
fyrir sið að
föndra jóla- og
afmæliskort
fjölskyldunnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VILHELM
GEKK LENGI
MEÐ SÖGUNA
Í MAGANUM
Jólaandinn
fjallar um
dæmigerða
íslenska fjöl-
skyldu. Gói
segir hana
hugljúfa söga
sem fangar
hinn sanna
anda jólanna.
ÚR JÓLAANDANUM Þessi teikning er
eftir Karl og er úr nýrri bók þeirra feðga,
Jólaandanum.