Fréttablaðið - 16.11.2013, Blaðsíða 6
16. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 6
HÖNNUN „Guðjón Samúelsson
hefði aldrei útfært þetta svona
og aldrei gefið leyfi fyrir þessu
svona,“ segir Bolli Kristinsson
kaupmaður um verðlaunatillögu
í samkeppni um viðbyggingu við
Sundhöll Reykjavíkur.
Á r ið 2 0 01
fékk Bolli Ívar
Örn Guðmunds-
son arkitekt til
að gera teikn-
ingu að stækkun
Sundhallarinn-
ar sem hönnuð
var af Guðjóni
Samúelssyni
húsameistara á
sínum tíma.
„Tillagan
var um það bil
þannig að það
var eins og það
hefðu fundist
gamlar tillögur
að útisundlaug
og að þetta væri
ein heild í þeim
fallega art deco-stíl sem einkenn-
ir Sundhöllina,“ segir Bolli. Ívar
þróaði síðan tillögu sína áfram
fyrir Aflavaka nokkrum árum
síðar. Hann sendi inn tillögu í
samkeppnina nú en hún var ekki
tekin til dóms.
Skiptar skoðanir eru um ágæti
verðlaunatillögunar frá VA arki-
tektum. Dómnefndin segir aðlög-
unina að Sundhöllinni einstaklega
vel heppnaða. Sumir segja stílinn
hins vegar ekki passa.
„Sigurtillagan er að mínu mati
látlaus og stílhrein,“ segir Dagur
B. Eggertsson, formaður borgar-
ráðs. „Hún reynir ekki að keppa
við arkitektúr Guðjóns Samúels-
sonar heldur er aðlögunin mjög
vel heppnuð, eins og segir í dóm-
nefndarálitinu. Gler er ekki notað
til að vera með stæla heldur til að
gamla byggingin njóti sín áfram.“
Best segir Dagur þó að sér þyki
að myndað sé skjólgott útisvæði
með vaðlaug fyrir börn, lítilli
rennibraut og pottum sem allt snúi
mót suðri. „Þetta er einfaldlega
útilaug með þeim lífsgæðum sem
þeim fylgja – sem er nákvæmlega
það sem stefnt var að,“ segir hann.
Borgarráð samþykkti á
fimmtudag að hefja endanlega
hönnun á viðbyggingunni. Dagur
segir framkvæmdir eiga að geta
hafist undir lok næsta árs og að
opnun verði um tveimur árum
síðar.
Endanleg kostnaðaráætlun
liggur ekki fyrir en Dagur segir
að miðað við fyrri reynslu megi
áætla að grunnkostnaður verði
um einn milljarður króna.
„Rekstrarkostnaður ætti hins
vegar ekki að aukast mikið því
Sundhöllin er þegar í fullum
rekstri. Hins vegar vonumst við
til að laugin verði vinsæl og skapi
borginni góðar tekjur þótt laug-
arnar okkar séu auðvitað fyrst
og fremst lífsgæða- og lýðheilsu-
mál,“ segir formaður borgarráðs.
„Mér finnst æðislegt að það sé
verið að búa til þessa sundlaug.
Það er hið besta mál að þessu
hverfi sé þjónað betur. En það er
oft sem fólki finnst byggt glanna-
lega við gömul meistaraverk. Í
fæstum tilfellum heppnast það
vel,“ segir Bolli Kristinsson.
gar@frettabladid.is
Sundhöll byggð eftir
umdeildri hugmynd
Gagnrýnendur verðlaunatillögu í samkeppni um viðbyggingu Sundhallar Reykja-
víkur telja að arkitekt hallarinnar hefði ekki samþykkt tillöguna. Stílhrein, segir
formaður borgarráðs en ákveðið var á fimmtudag að byrja á verkefninu.
VERÐLAUNATILLAGAN Heilsteypt og aðlaðandi tillaga, segir í umsögn dómnefndar
um framlag Hebu Hertervig, Karls Magnúsar Karlssonar og Ólafs Óskars Axelssonar
hjá VA arkitektum. MYND/VA ARKITEKTAR
TILLAGA FYRIR AFLAVAKA Sumir nefna tillögu Ívars Arnar Guðmundssonar sem
þá leið sem velja hefði átt fyrir viðbyggingu við Sundhöllina. MYND/NEXUS ARKITEKTAR
BOLLI
KRISTINSSON
DAGUR B.
EGGERTSSON
Skátahreyfingin hefur um árabil selt sígræn
eðaltré í hæsta gæðaflokki og prýða þau
þúsundir heimila og fyrirtækja.
Sígrænu jólatrén eru seld í Skátamiðstöðinni
Hraunbæ 123 í Reykjavík, s: 550 9800 og á
skátavefnum: www.skatar.is
Frábærir eiginleikar:
-eðaltré ár eftir ár!
Sígræna jólatréð
10 ára ábyrgð
12 stærðir (90-500 cm)
Stálfótur fylgir
Ekkert barr að ryksuga
Veldur ekki ofnæmi
Eldtraust
Þarf ekki að vökva
Íslenskar leiðbeiningar
Kosningaskrifstofa Ármúla 7 » thorbjorghelga.is » thorbjorghelga
Þorbjörg
Helga
1. sæti Reykjavík
FILIPPSEYJAR, AP Erfiðlega hefur
gengið að koma aðstoð til allra
sem á þurfa að halda og hefur fólk
nú sums staðar þurft að bíða í viku
við kröpp kjör, jafnvel húsnæðis-
laust, án matvæla, drykkjarvatns
og án læknishjálpar.
Athygli hjálparstofnana hefur
beinst mjög að borginni Tacloban,
sem varð verst úti í hamförunum,
en afskekktari staðir hafa orðið út
undan. Þannig bíða íbúar í þorpinu
Marabut enn eftir aðstoð. Bærinn
er rústir einar og íbúar horfa til
himins í hvert sinn sem þyrlur sjást
sveima yfir, en enn hefur engum
pakka verið varpað niður þar.
„Okkur finnst við vera algerlega
gleymd,“ segir Mildred Labado,
bæjarstjórnarmaður þar í þorpinu.
Öll hús í þorpinu, nærri 16
þúsund, eyðilögðust með öllu,
meira en tvö þúsund manns hlutu
meiðsli, en enn er aðeins vitað til
þess að 20 manns hafi látið lífið.
Átta að auki er þó saknað.
Í gær var búið að staðfesta að
fellibylurinn Haiyan hefði kostað
3.621 lífið, en 1.140 er enn saknað
og 12.166 eru særðir. - gb
Örvæntingar gætir víða á Filippseyjum meðal fórnarlamba hamfaranna:
Erfið bið eftir að aðstoð berist
Á FLUGVELLINUM Í TACLOBAN Fjöldi
fólks hefur beðið sólarhringum saman á
flugvellinum eftir að komast burt.
FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
TORONTO Lögreglan í Toronto í
Kanada tilkynnti í fyrradag niður-
stöður þriggja ára alþjóðlegrar
rannsóknar á barnaníðshring. Alls
voru 348 handteknir og var 386
börnum bjargað úr klóm níðínga.
Barnaníði var dreift til 94 landa og
þar á meðal Íslands.
Í október 2010 komust óein-
kennisklæddir lögreglumenn í
samband við mann sem heitir
Brian Way og er 42 ára gamall.
Hann var grunaður um að dreifa
barnaníði á netinu. Frekari rann-
sókn leiddi þó í ljós að hann fram-
leiddi og seldi barnaníð. Í maí
árið 2011 var framkvæmd húsleit
í fyrirtæki og á heimili manns-
ins. Hann rak heimasíðu þar sem
barnaníði var dreift og það selt.
Hann greiddi fólki fyrir að
kvikmynda börn svo hægt væri
að nota myndböndin í kvikmyndir
sem seldar voru á síðunni. Tekjur
fyrirtækisins voru meira en fjórar
milljónir dollara, eða tæplega 500
milljónir króna. Lögregla lagði
hald á yfir 45 terabæti af gögnum
við rannsókn málsins.
- skó
Barnaníðshringur sem var upprættur í Kanada teygði anga sína til Íslands:
Barnaníði dreift um heiminn