Fréttablaðið - 16.11.2013, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 16.11.2013, Blaðsíða 42
16. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 42 Heimsmeistaraeinvígið í skák fer nú fram í borginni Chennai á Indlandi þar sem Viswanathan Anand, núverandi heimsmeistari, ver heimsmeistaratitil sinn gegn norska undrabarninu Magnusi Carlsen. Langt er síðan heimsmeistara- einvígi hefur vakið jafn mikla athygli og tala margir um að framtíð skáklist- arinnar sé jafnvel í húfi. Magnus Carl- sen er um 20 árum yngri en Anand. Ef Norðmaðurinn ungi sigrar fær skákin svo sannarlega andlitslyftingu. Magnus Carlsen er ekki bara snillingur við skákborðið – hann er ofurstjarna, módel og hefur oft verið kallaður rokk- stjarna skákheimsins. Fyrstu fjórar skákirnar í einvíginu enduðu með jafntefli. Upphaf einvíg- isins minnir á þungavigtarbardaga í hnefaleikum þar sem menn nota fyrstu loturnar til að fá tilfinningu fyrir and- stæðingnum. Sigurvegarinn í einvíginu fær 2,5 milljónir Bandaríkjadala í sinn hlut – rétt rúmar 300 milljónir íslenskra króna. En það eru ekki bara peningar í húfi. Þrátt fyrir að það hafi aldrei fleiri teflt á heimsvísu hafa vinsældir skák- listarinnar dalað. Það er orðið langt síðan almenningur vissi hver væri heimsmeistari í skák eða þekkti sterk- ustu skákmenn heims með nafni. Skákin náði hæstu hæðum með ein- vígi Bobby Fischers og Boris Spassky á Íslandi árið 1972. Enda fékk einvíg- ið viðurnefnið Einvígi aldarinnar og varð táknmynd kalda stríðsins, heims- veldanna tveggja sem litu á heiminn eins og skákborð í flóknu stríði. Skákin komst aftur í sviðsljósið þegar Garry Kasparov, þá ungur maður á þrítugs- aldri, skoraði sovéska heimsmeistarann Anatoly Karpov á hólm. Einvígi þeirra var langt og snúið. Kasparov, sem var gyðingur og fæddur í Armeníu, var ekki með sovésku skákelítuna með sér í liði en hæfileikar hans voru slíkir að hann vann engu að síður og varð yngsti heimsmeistari sögunnar árið 1985. Síðar átti Kasparov eftir að vekja heimsathygli þegar hann tefldi gegn ofurtölvunni Deep Blue árið 1997 og tapaði. Líklega var það síðasta skák- einvígið sem náði heimsathygli enda töluðu margir um viðureignina sem uppgjör mannsins gegn tölvunum. Kasparov settist í helgan stein árið 2005. Síðan þá hafa átök innan alþjóða- skáksambandsins og sterkustu skák- manna heims gert það að verkum að erfitt hefur reynst að krýna óumdeild- an heimsmeistara. Almenningur hefur misst áhugann á keppnisskák. Síðustu heimsmeistaraeinvígi hafa verið háð fyrir tómum áhorfendasölum í borgum sem fáir þekkja. Einvígið milli Anands og Magnusar Carlsen er upplagt tækifæri fyrir skák- ina að ná aftur fyrri vinsældum. En þá þarf Magnus Carlsen helst að vinna og verða hið nýja andlit skákarinnar. Öll spjót beinast í raun að Anand sem hefur í gegnum árin sýnt gríðarlegan styrk í einvígum um heimsmeistaratitilinn en ekki náð jafn góðum árangri á venjuleg- um mótum. Spurningin er hvort aldur- inn, reynslan og undirbúningur nái að sigra snillinginn Magnus Carlsen sem er þekktur fyrir að vilja finna lausn á flóknum stöðum yfir borðinu, gefur minna fyrir undirbúning og kann því vel að sigla á óþekkt mið. Það er kannski dæmi um pressuna á Anand að þegar hann var spurð- ur hvernig hægt væri að vekja aftur áhuga almennings á skák og fá stór- fyrirtæki til að veita meiri peningum í íþróttina var svarið einfalt: Magnus Carlsen. Framtíð skáklistarinnar í húfi Norska undrabarnið Magnus Carlsen berst um heimsmeistaratitilinn í skák við indverska snillinginn Viswanathan Anand. Þeir eru fulltrúar mismunandi kynslóða en vonir standa til þess að sigur Carslens gæti endurvakið áhuga almennings á skák. GRÍÐARLEGAR VINSÆLDIR Þessar stelpur sendu Verdens Gang mynd til stuðnings Magnusi Carlsen. Myndin hefur vakið mikla athygli í Noregi eins og einvígið allt. ➜ Fulltrúar ólíkra kynslóða Magnus Carlsen er fæddur 30. nóvember 1990 og verður því 23 ára gamall síðar í mánuðinum. Hann er í fyrsta sæti á styrkleikalista FIDE yfir sterkustu skákmenn heims – hærri á listan- um en heimsmeistarinn Anand, sem hann teflir nú við í Chennai á Indlandi. Magnus Carlsen var aðeins 13 ára gamall þegar hann náði stórmeistaratitlinum. Fyrir utan að vera einn besti skákmaður í heimi er Magnus Carlsen sannkölluð ofurstjarna í Noregi. Hann þykir fram- bærilegt módel og hefur verið andlit vörumerkisins G-Star Raw og ekki er óalgengt að hann sé umvafinn stúlknaskara sem öskrar af fögnuði þegar hann birtist. Viswanathan Anand fæddist 11. desember 1969. Hann hefur fimm sinnum unnið heims- meistaratitilinn í skák og hefur verið óumdeildur heimsmeistari frá árinu 2007. Hann er einnig þekktur fyrir hæfileika sína í hraðskák þar sem fáir standast honum snúning. Anand varð fyrsti indverski stórmeistarinn árið 1988. Hann hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga á Ind- landi þar sem hann er afar þekktur. Anand er lýst sem afar fjölhæfum skákmanni. Sigur gegn Magnusi Carlsen myndi innsigla stöðu hans sem eins af risunum í skáksögunni. „Einvígið vekur gríðarlega athygli hér í Noregi,“ segir Gísli Kristjánsson, fréttaritari í Ósló. Hann segir það hafa komið fjölmiðlum þar í landi talsvert á óvart. „Sérstaklega hafa net- miðlarnir grætt á þessum mikla áhuga. Verdens Gang er með beina útsendingu á netvarpi sínu og áhorfið hefur farið fram úr öllum vonum. Áhuginn er svo mikill að sums staðar liggur vinna í fyrirtækjum niðri. Menn liggja bara á netinu og fylgjast með leikjunum í beinni.“ Gísli segist ekki hafa séð fjölgun á skákborðum á kaffihúsum og götum úti. „Nei, stóra sagan í þessu er snjallsímabyltingin. Nú sér maður svart á hvítu hvað snjallsím- arnir og spjaldtölvurnar eru að breyta hefðbundinni fjölmiðlun. Það er sama hvert maður lítur, það eru allir með einvígið og leikina í beinni í snjallsímunum. Í gamla daga sá fólk þetta í sjónvarpinu en nú eru það litlu tölvurnar sem allir fylgjast með. Þetta er sigur snjallsímanna í fjölmiðlastríðinu.“ Hann segir Norðmenn hæfilega bjartsýna á sigur. „Fyrstu fjórar skákirnar enduðu með jafntefli svo mótstaðan er sterkari en menn héldu. En þetta heldur fólki við efnið. Hver skák tekur óskaplegan tíma en hér í landi er fólk vant að horfa á íþróttir eins og 50 kílómetra skíðagöngu þar sem klukkutími getur liðið milli þess sem menn sjást í mynd. Svo skákin er bara nokkuð æsileg hér í Noregi um þessar mundir.“ Sigur snjallsímanna Áhuginn er svo mikill að sums staðar liggur vinna í fyrirtækj- um niðri. Menn liggja bara á netinu og fylgjast með leikjunum í beinni. Símon Birgisson simon@frettabladid.is ALLT UNDIR Magnus Carlsen og Viswanathan Anand einbeittir við skák- borðið við upphaf einvígisins í Chennai á Indlandi. Mynd AP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.