Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.11.2013, Qupperneq 36

Fréttablaðið - 16.11.2013, Qupperneq 36
16. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 36 stjórnar- og aðflugstæki flugvallarins. Full- trúar annarra flugfélaga voru á sama máli og gefin var út rannsóknarskýrsla í samráði við bandaríska sérfræðinga sem stangaðist verulega á við niðurstöður fyrri rannsókn- arinnar. Var niðurstaða þessar- ar nýju rannsóknar sú að meginorsakir slyssins hafi verið skortur á viðhaldi aðflugstækja og að áhöfn vélarinnar hafi fengið rang- ar upplýsingar frá flugturni. Þá var veðrið talið hafa átt sinn þátt, en mikil rigning var þegar slysið varð, vind- ur og niðurstreymi. Leifur Eiríksson, DC-8-þota Flug-leiða, brotlenti í aðflugi við Kat-unayake-flugvöll í Kólombó á Srí Lanka fyrir 35 árum í gær. Um er að ræða mannskæðasta slys íslenskrar flugsögu, en 183 fórust, þar af átta íslenskir starfsmenn Flugleiða. Vélin var á leið frá Sádi-Arabíu með indónesíska pílagríma á leið til síns heima, Millilenda átti í Kólombó þar sem auka- áhöfn og starfsmenn áttu að verða eftir. Í afleitu veðri og skyggni brotlenti vélin á kókoshnetuplantekru skömmu fyrir mið- nætti, rúmum tveimur kílómetrum frá enda flugbrautarinnar. Þjóðin harmi slegin 79 komust lífs af úr slysinu, þar af fimm Íslendingar. Þeir voru flugfreyjurnar Jón- ína Sigmarsdóttir, Kristín E. Kristleifs- dóttir, Oddný Björgólfsdóttir og Þuríður Vilhjálmsdóttir, og Harald Snæhólm flug- stjóri. Þau eru öll á lífi í dag. Áhöfn Dagfinns Stefánssonar, flugstjóra, beið vélarinnar á flugvellinum, en hún átti að taka við henni og flytja pílagrímana áfram til Indónesíu. Hópurinn sat í far- þegasal flugvallarins þegar honum voru flutt tíðindin. Íslendingarnir fimm sem komust lífs af voru fluttir á sjúkrahús í Kólombó og reynd- ist ekkert þeirra lífshættulega slasað. Að kvöldi 19. nóvember lenti Boeing 727-þota Flugleiða með lík sjö þeirra átta Íslendinga sem fórust í slysinu. Fjöldi einkennisklæddra starfsmanna Flugleiða stóð heiðursvörð við móttökuathöfnina og lúðrasveit spilaði á meðan líkkistunum var raðað fyrir framan vélina. Þjóðin var harmi slegin. Rannsóknin gagnrýnd Rannsókn flugmálayfirvalda á Srí Lanka var gagnrýnd af Flugmálastjórn Íslands. Niðurstaða rannsóknarinnar var sú að gáleysi flugmannanna hefði verið megin- orsök slyssins. Hópur íslenskra rannsóknarmanna sem var sendur utan komst að annarri niður- stöðu og taldi ýmislegt athugavert við flug- 35 ár liðin frá mannskæðasta slysi íslenskrar flugsögu Í gær voru 35 ár liðin síðan þota Flugleiða brotlenti í aðflugi á Srí Lanka. 183 fórust í slysinu, þar af átta Íslendingar. Ásta B. Hauksdóttir var fimmtán ára þegar faðir hennar, flugstjórinn Haukur Hervins- son, fórst í flugslysinu. „Slysið verður sex um kvöld að íslensk- um tíma en þetta er ekkert eins og núna. Þú værir búinn að vita þetta eftir eina mínútu. Ég man að presturinn kom heim morguninn eftir klukkan sjö og bankaði upp á með hempuna og hringdi dyrabjöll- unni. Mamma fór og kíkti út um lítinn glugga í betra anddyrinu og sá þennan mann. Þá vorum við kallaðar fram syst- urnar,“ segir Ásta. „Okkur var sagt að vélin hefði farist í flugtaki, en hún fórst í aðflugi. Allar upplýsingar voru rangar en boðleiðirnar voru aðrar á þeim tíma. Það var enginn sem fékk áfallahjálp. Ég er fimmtug í dag og er enn þá að glíma við þetta. Ég hef unnið með sjálfa mig en maður er fullorðin kona í dag og þetta „markerar“ mann alveg fyrir lífstíð.“ Þrátt fyrir slysið hræðilega ákvað Ásta fimm árum síðar að „fara í flugið“ eins og hún kallar það. Hún starfaði sem flug- freyja í mörg ár og lærði síðan flugrekstr- arfræði. Aðspurð segir hún slysið ekki hafa dregið úr sér kjarkinn. „Þegar slysið varð sagði ég að ég ætlaði aldrei að fara í flugvél aftur. Svo bara var ég með þessa bakteríu í blóðinu og þetta átti hug minn allan.“ Hún bætir við að íslenskir flug- menn séu tvímælalaust þeir bestu í heimi. Í fluginu kynntist hún einmitt vel þeim sem lifðu slysið af og hefur hún verið í góðu sambandi við marga þeirra í gegnum árin. Þess má geta að Ásta á þrjár dætur og er ein þeirra, sem er sextán ára, harð- ákveðin í að verða flugmaður. Ásta bjó í útlöndum í tíu ár en flutti aftur heim til Íslands í vor. Síðan þá hefur hún átt í viðræðum við Icelandair um að reistur verði minnisvarði um þá sem fór- ust. Hún hefur einnig áhuga á að stofna minningarsjóð sem yrði veitt úr einu sinni á ári, 15. nóvember. Henni finnst mikilvægt að eftirlifendur slyssins og ættingjar þeirra sem fórust haldi hópinn meira. „Það þarf einhvern til að taka það frumkvæði og ég hugsa að ég geri það. Ég gekk með það í maganum að við myndum fara ferð til Srí Lanka. Ein- hverjir hafa tekið vel í það og svo þarf bara að framkvæma þetta.“ Presturinn bankaði upp á með hempuna Flugstjórinn Harald Snæhólm, sem er 74 ára, var einn þeirra fimm Íslendinga sem lifðu slysið af. Hann flaug sem farþegi og sat aftast í eldhúsi flugvélarinnar þegar slysið varð. „Ég slasaðist mikið. Ég man að lung- un lögðust saman, bakið fjórbrotnaði og hausinn á mér var allur skorinn í sundur,“ rifjar Harald upp fyrir blaðamann. „Stélið fór niður og það kom mikill hvellur. Svo rankaði ég ekki við mér fyrr en 100 til 200 metra frá flugvélinni með stórt pálmatré yfir brjóstinu á mér og ég gat ekki hreyft mig, var alveg pikkfastur. Vélin sprakk og ég hélt ég myndi brenna lifandi. En ég gat grafið undan bakinu á mér með höndun- um þannig að ég gat ýtt mér undan trénu. Þannig skreið ég í burtu og tveir innfædd- ir fundu mig og drösluðu mér á spítala. Þetta var bara Guð og lukkan.“ Harald bætir við að öll deyfilyf hafi verið búin. „Þegar andlitið á mér var saumað saman héldu þeir mér niðri, Dag- finnur Stefánsson og Einar Guðlaugsson, sem voru í áhöfninni sem átti að taka við af okkur.“ Eftir að hann var gróinn sára sinna sneri Harald aftur til starfa sem flugstjóri þrátt fyrir þessa ógurlegu lífsreynslu. Það gerðu einnig hinir fjórir eftirlifendurnir og áttu þau eftir að fljúga margoft saman. „Ég var settur í þjálfun aftur og svo byrj- aði þetta smám saman að koma. Þetta var andskoti erfitt en það var annaðhvort að takast á við þetta eða finna sér aðra vinnu.“ Harald fékk enga áfallahjálp frekar en aðrir sem lentu í slysinu en segir það hafa hjálpað sér mikið að tala við aðra flug- menn um það sem gerðist. „Þeir voru allt- af að spyrja mig og ég var alltaf að kjafta. Þá losar maður um þetta. Ég hef fengið hálfgerða hjálp þannig.“ Þegar Útkalls-bók Óttars Sveinssonar um slysið kom út árið 2006 hitti Harald í fyrsta sinn ættingja þeirra sem fórust í slysinu. „Það var mjög þægileg og góð stund.“ Aðspurður segist hann hafa áhuga á að fara aftur til Srí Lanka og setja þar upp minnisvarða að heiman. „Það fyndist mér réttlætanlegt. Ég held að við værum öll til- búin til að gera það.“ Hélt ég myndi brenna lifandi Haukur Viðar Alfreðsson haukur@frettabladid.is Freyr Bjarnason freyr@frettabladid.is MISSTI PABBA SINN Í SLYSINU Ásta B. Hauksdóttir lét flugslysið ekki draga úr sér kjarkinn og gerðist flugfreyja þegar hún var tvítug. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA HARALD SNÆHÓLM Harald er einn þeirra fimm Íslendinga sem lifðu slysið af. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FLAKIÐ Flak flugvélarinnar á staðnum þar sem Harald Snæhólm flugstjóri fannst. MYND/ÚR EINKASAFNI FLUGVÉLIN SEM BROTLENTI Flugvél Loftleiða, Leifur Eiríksson TF-FLA, kemur til lendingar á Reykja víkur flug- velli á flugdegi í ágúst 1978. Tæplega þremur mánuðum síðar fórst vélin í að- flugi að flugvell- inum í Kólombó á Srí Lanka. 183 manns fórust. MYND/LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR FORSÍÐA VÍSIS Vísir fjallaði ítarlega um slysið á forsíðu sinni 16. nóvember 1978.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.