Fréttablaðið - 16.11.2013, Blaðsíða 118
16. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 86
Íslenski leikurinn QuizUp nýtur
gríðarlegra vinsælda en einn af þeim
sem hafa spilað hann er leikarinn
Arnar Dan Kristjánsson. Leikstjórinn
Ragnar Bragason segir
frá því á Facebook-
síðu sinni að Arnar
sé sérfræðingur í
söngkonunni Taylor
Swift. „Ekki reyna
að skora á hann í
Quiz Up, þið
verðið bara
fyrir von-
brigðum,“
bætir
Ragnar
við. - lkg
SÉRFRÆÐINGUR
Í TAYLOR SWIFTÍslenski spurningaþátturinn Vertu
viss hóf göngu sína á RÚV um
síðustu helgi en kynnir er Þórhallur
Gunnarsson. Uppsafnað áhorf á
þáttinn var 50 prósent
en annar þáttur fer í
loftið í kvöld. Nú er
búið að opna Vertu
viss-leikinn á heima-
síðu Íslandsspila
þar sem áhorfendur
heima í stofu geta
spreytt sig
á marg-
víslegum
spurning-
um.
NÝR NETLEIKUR
„Þegar ég varð ólétt að seinni
stráknum var vinur minn með
áhyggjur af því að mínir draumar
færu í ævilanga bið sökum þungun-
arinnar. Út frá því var ég staðráðin
í að láta drauma mína rætast, vegna
barnanna en ekki þrátt fyrir þau,“
segir hin 23 ára gamla Katrín Ósk
Jóhannsdóttir, barnabókahöfundur
og móðir, sem er að senda frá sér
tvær barnabækur.
Fyrsti draumur Katrínar var að
verða rithöfundur og hefur hún nú
skrifað tvær barnabækur sem bera
annars vegar titilinn Karólína og
týndu skórnir, og hins vegar Karó-
lína og eggið.
„Sagan varð til þegar ég var að
segja eldri stráknum sögu fyrir
svefninn, hann hafði bara svo
gaman af henni að mig langaði að
skrifa hana,“ útskýrir Katrín, sem
á tvo stráka, annan fimm ára og
hinn tveggja ára. „Þeir voru mínir
helstu ráðgjafar þegar ég skrifaði
sögurnar og hjálpuðu þeir mér mjög
mikið,“ bætir Katrín við.
Sagan fjallar um könguló sem
heitir Karólína en hún fer alltaf í
morgungöngu og lendir í alls kyns
ævintýrum.
„Í fyrri sögunni lendir Karólína í
því að týna skónum sínum, en hún er
auðvitað í átta skóm og lendir í alls
kyns ævintýrum í leit sinni að skón-
um. Í seinni bókinni finnur hún egg í
morgungöngunni sem hún ætlar sér
að koma til skila.“ Báðar bækurnar
eru einnig eins konar kennslubæk-
ur. Þær eru hugsaðar fyrir yngstu
börnin en þó gætu eldri börn haft
gaman af sögunni. Hún er um tutt-
ugu blaðsíður, gefin út af Óðinsauga
og Jenny Rojas myndskreytir.
„Hugmyndin er að gera þetta að
lengri syrpu ef þetta gengur vel,“
bætir Katrín við en hún er farin að
huga að þriðju bókinni.
Bækurnar koma í verslanir
20. nóvember og einnig verður
útgáfuhátíð haldin 1. desember í Iðu
í Lækjargötu.
„Það væri gaman, ef vel gengur,
að vinna enn frekar með bækurn-
ar, eins og að búa til þrauta- og/eða
verkefnabók og einnig væri gaman
að búa til app úr þessu,“ segir Katr-
ín að lokum hress og kát. - glp
Næsta Hello Kitty
Katrín Ósk hefur skrifað tvær barnabækur og ætlar að fylgja draumum sínum.
➜ Í fyrri bókinni er farið yfir
litina, því Karólína er með
átta fætur og eru allir skórnir
hennar í mismunandi litnum.
Í seinni bókinni kemur fyrir
talnakennsla því þar finnur hún
eitt egg, í garðinum sem hún
býr í eru tvö tré og á hvoru tré
eru þrjár greinar, þannig að
þarna eru tölurnar í öndvegi.
„Ég var alltaf fyrir
það að vera nak-
inn. Ég elskaði að
vera nakinn. Ég var
mjög opinn þann-
ig að ég hugsaði
að ég gæti alveg
eins fengið borgað
fyrir það,“ segir
leikarinn.
CHRIS PRATT
UM FORTÍÐ SÍNA
SEM FATAFELLA.
„Það virðist vera þannig hjá fjöl-
skyldunni að leiðir allra liggja
beint í tónlist,“ segja mæðgurnar
Ellen Kristjánsdóttir og Sigríður,
Elísabet og Elín Eyþórsdætur, sem
halda svokallaða Mæðgnatónleika
á Café Rosenberg við Klapparstíg
í kvöld.
„Mamma og pabbi hafa tileink-
að líf sitt músík, Sigríður er að
læra tónsmíðar við Listaháskólann
og við Elísabet höfum tónlist líka
að aðalstarfa,“ segir Elín Eyþórs-
dóttir um fjölskylduna tónelsku,
en faðir hennar er Eyþór Gunnars-
son tónlistarmaður. „Svo er litli
bróðir okkar, Eyþór Ingi, líka far-
inn að búa til músík,“ segir Elín.
„Ég held að við höfum aldrei átt
neitt val,“ segir hún létt í bragði.
Í kvöld halda mæðgurnar tón-
leika þar sem þær koma til með að
spila eigið efni í bland við annarra.
„Þórir Úlfarsson verður á píanói og
við ætlum að syngja saman og til
skiptis,“ segir Elín.
Tónleikarnir eru þeir fyrstu þar
sem mæðgurnar koma allar saman
opinberlega. „Við höfum oft sung-
ið saman, en aldrei svo ég muni
höfum við haldið heila tónleika allar
saman,“ segir Elín. „Nema kannski
í stofunni heima,“ segir Elín.
Tónleikarnir hefjast klukkan tíu
og eru eins og áður sagði á Café
Rosenberg við Klapparstíg. - ósk
Tónelskasta fj ölskylda á Íslandi?
Ellen Kristjánsdóttir og dætur hennar þrjár halda tónleika í kvöld á Rósenberg.
FYRSTU TÓNLEIKARNIR SAMAN Þetta
verður í fyrsta sinn sem mæðgurnar
koma allar saman fram opinberlega.
Sagan varð
til þegar ég var að
segja eldri strákn-
um sögu fyrir
svefninn, hann
hafði bara svo
gaman af henni
að mig langaði að
skrifa hana.
Hin árlega herrafatasýning Herra-
fataverzlunar Kormáks & Skjaldar
verður haldin í Þjóðleikhúskjallar-
anum miðvikudaginn 20. nóvem-
ber. „Herrafatasýningin er eins
og flestir þekkja ekki hefðbundin
tískusýning heldur koma saman
glaumgosar og önnur glæsimenni
og sýna það helsta sem verslunin
hefur upp á að bjóða frá vönduð-
um vörumerkjum utan úr heimi,“
segir Ragnar Ísleifur Bragason,
aðstoðarverslunarstjóri Herrafata-
verzlunar Kormáks & Skjaldar.
Ný herrafatalína verslunarinnar
verður kynnt en hún er samstarf
Gunnars Hilmarssonar, Kormáks
og Skjaldar og starfsmanna versl-
unarinnar.
„Línan í ár er sú stærsta og fjöl-
breyttasta hingað til og má í henni
finna þriggja hluta tvídjakkaföt,
tvíhneppt jakkaföt og staka jakka.
Einnig er fjölbreytt úrval af skyrt-
um og yfirhöfnum ásamt slaufum
fyrir unga sem aldna, sem hand-
gerðar eru af klæðskera verslun-
arinnar,“ segir Ragnar. - ósk
Glaumgosar og
glæsimenni sýna föt
Árleg tískusýning Kormáks og Skjaldar á næsta leiti.
NÝ LÍNA FRÁ KORMÁKI & SKILDI
Afrakstur samstarfs Gunnars Hilmars-
sonar, Kormáks og Skjaldar og starfs-
manna. MYND/BALDUR KRISTJÁNSSON
Sögusamkoma í Hannesarholti, Grundarstíg 10,
sunnudaginn 17. nóvember kl. 15.
Gunnar Karlsson segir frá bók sinni
Ástarsaga Íslendinga að fornu
og
Gísli Sigurðsson frá verki sínu
Leiftur á horfinni öld.
A L L I R V E L K O M N I R
ÁSAMT SONUM
SÍNUM Katrín
Ósk Jóhanns-
dóttir, ásamt
sonum sínum
og ráðgjöfum,
Jóhanni Andra og
Brynjari Atla.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
GEFUR ÚT BARNABÓK
Eva Einarsdóttir, borgarfulltrúi Besta
flokksins, gefur á laugardaginn út
barnabókina Saga um nótt. Þegar
dóttir Evu, Saga, varð myrkfælin
sagði Eva henni sögu til að minna
hana á að myrkrið væri ekki hættu-
legt. Á endanum skrifaði hún söguna
niður sem varð svo
að barnabókinni
Saga um nótt.
Listakonan Lóa
Hlín Hjálmtýs-
dóttir mynd-
skreytir bókina.